24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir
Það er orðinn svo mikill aragrúi af afmælum hjá mér að þau eru dálítið farin að bland-
ast saman en mér þykir mjög gaman að eiga afmæli og þótti það kannski sérstaklega á
fyrri hluta ævinnar. Það er aðallega þegar maður á stórafmæli sem maður hefur áhyggj-
ur af því hvernig maður eigi að halda upp á það. En þegar ég varð sextugur hélt ég upp
á það með því að fara með börnin mín á barnaleikrit og spila svo skvass við elsta son
minn. Þetta reyndist með skemmtilegustu afmælisdögunum, að vera með fjölskyldunni
og láta lítið fara fyrir sér. Ég hef líka haldið upp á afmælið mitt með veislu, t.d. þegar
ég varð fimmtugur og það heppnaðist ágætlega, margir komu og skemmtu sér vel. Af-
mælið mitt er 10. október og hér áður fyrr þegar ég var á þingi var 10. október þing-
setningardagur. Ég hélt því fram að það væri sett mér til heiðurs þennan dag! Í október
er langt liðið á árið og ég get því líka nýtt daginn til að gera upp árið og líta yfir farinn
veg. Nú til dags læt ég annars bara hvern dag nægja, afmælisdagur er alltaf hátíðisdagur
og segir manni það að maður sé ennþá lifandi sem er nú kannski mest um vert. Lífið
verður æ dýrmætara eftir því sem maður eldist og maður þakkar fyrir hvern afmæl-
isdag. Eller B. Schram alþingismaður.
Lífið æ dýrmætara
Ég er mikið afmælisbarn og hef alltaf verið,
ég nýt þess að eiga þennan dag og er í raun
algjör prinsessa hvað afmælisdaginn varðar.
En mér finnst líka gaman að gera mikið úr
afmælisdögum fjölskyldunnar. Það er
skemmtilegt að eiga afmæli og ég tek öllum
svona tilefnum til að gera eitthvað skemmti-
legt og öðruvísi fagnandi. Annars hef ég
hingað til ekki verið vön því að halda veislu
heldur frekar gert eitthvað með fjölskyld-
unni og kærastanum. Í fyrra tók ég mig þó
til og hélt heljarinnar veislu ásamt kærast-
anum mínum en þá áttum við bæði stór-
afmæli, ég 25 ára og hann þrítugur. Við
leigðum samkomuhús á Þingvöllum og vor-
um með hoppukastala fyrir börnin auk þess
sem farið var í alls konar leiki. Síðar um
kvöldið var síðan kveikt stórt bál og sunginn
brekkusöngur, loks var slegið upp hlöðuballi
sem stóð fram eftir nóttu og margir sem
gistu. Þetta er í raun í eina skiptið sem ég hef
gert eitthvað svona stórfenglegt og þetta var
mjög eftirminnilegur og skemmtilegur af-
mælisdagur. Næst verð ég hins vegar 26 ára
og ætli ég hnipri mig þá ekki bara uppi í
rúmi með tilvistarkreppu og kaupi mér
hrukkukrem.
Védís Hervör Árnadóttir
söngkona.
Brekkusöngur
á Þingvöllum
Ég á afmæli í ágúst og þá er aðeins farið að
skyggja svo að þetta er svolítið rómantískur
tími og gaman að eiga afmæli þegar sumri er
tekið að halla. En ég held að eftirminnileg-
asta afmælið mitt hafi verið 17 ára afmælið
mitt sem haldið var á grísku eyjunum. Þar
var ég í fríi með vinum mínum og hót-
elstjórinn sló upp veislu fyrir mig með mat
og öllu saman en síðan var synt miðnæt-
ursund í sjónum. Eftir þetta kom ég heim og
tók bílpróf svo að þetta var góður endir á
sumrinu. Ég er mikill afmæliskarl, þetta er
minn dagur og jafnast nærri á við jólin,
finnst mér. Mér finnst gaman að halda upp á
daginn og undirbúningurinn er svolítil
heilaleikfimi. Því er ég þegar byrjaður að
plana næsta afmæli þó að það sé svo sem al-
veg nógur tími framundan.
Agnar Jón Egilsson
leikstjóri.
Afmæli á grísku
eyjunum
Ég hef ekki haldið upp á afmælisdaginn á
svokallaðan hefðbundinn hátt í mörg ár en
hvorugt okkar hjónanna er mikið fyrir að
standa í stórræðum í sambandi við slíkt.
Okkur finnst miklu skemmtilegra að gera
það okkur til dundurs og hátíðabrigða að
skella okkur út að borða eða til útlanda og
þá ekki hvað síst þegar afmælið mitt brestur
á síðast í nóvember. Á þessum árstíma er
mikið framboð af styttri ferðum eins og
helgar- og jólaferðum og alveg upplagt að
nýta sér það. Enga betri afmælisgjöf get ég
hugsað mér en að sitja í flugvél á leið á vit
ævintýranna. Höfum við ferðast nokkuð
víða í þessu skyni, t.d. til Boston, Brussel,
Vínarborgar, New York og til Prag í fyrsta
skipti í fyrra. Það var gaman að koma þang-
að og sjá allan ferðamannaflauminn svo að
það má rétt ímynda sér að öll þessi afmæli
mín séu mjög eftirminnileg og þessu afmæl-
isflakki ætla ég að halda áfram um ókomin
ár. Mér finnst alveg fullkomið afmæli að vera
svona á ferð og flugi og nóvember er mjög
góður tími til að ferðast þar sem þetta er rétt
fyrir jólin og hægt að nota tímann til að
kaupa jólagjafir og upplifa jólastemninguna.
Svanhildur Jakobsdóttir
útvarpskona.
Afmælisdagar
í háloftunum
Ætli eftirminnilegasti afmælisdagurinn hafi
ekki verið þrítugsafmælið mitt. Þá byrjaði ég
daginn á því að hlaupa eina 12 km í rokinu
úti á Seltjarnarnesi en ég á afmæli í október.
Þetta var sérstakur dagur því að ég var svo
ánægð með þennan áfanga sem kom mér
dálítið á óvart því að oft er þeirri klisju hald-
ið fram að maður vilji ekki eldast. En ég var
hins vegar hæstánægð með að vera orðin
virkilega fullorðin og var sátt við hvar ég var
stödd í lífinu. Eftir hlaupatúrinn fór ég að
vinna og hélt síðan upp á afmælið með
kunningjum og vinum helgina á eftir. Þetta
voru skemmtileg tímamót og mér fannst ég
vera á góðum stað í lífinu svo að þetta er sæt
minning. Ég er vog og hef alltaf verið haust-
kona í mér og mér finnst haustið fallegur
árstími bæði á Íslandi og í San Francisco þar
sem ég bjó í 18 ár. Ég er talsvert afmælisbarn
en held þó að ég sé að verða hógværari með
aldrinum og ég er farin að gera minna úr
deginum en þetta gat orðið dramatískur
dagur þegar maður var yngri. Núna síðast
hitti ég vinkonur mínar og hafði það nota-
legt, svo finnst mér voða gaman að halda
upp á afmæli annarra.
Ragnhildur Magnúsdóttir
dagskrárgerðarkona.
Sátt á þrítugs-
afmælinu
Eftirminnilegasti
afmælisdagurinn
þinn?
Afmælisdagurinn markar vissan áfanga á hverju ári þar sem við
höfum náð að verða árinu eldri. Sumir eru mikil afmælisbörn og
geta ekki hugsað sér annað en að halda upp á daginn með pomp
og prakt meðan aðrir vilja láta lítið fyrir sér fara og taka því ró-
lega. Sumir afmælisdagar standa upp úr fyrir þær sakir að við
höfum staðið á tímamótum eða átt sérlega skemmtilegan eða
óvæntan dag. Viðmælendur segja lesendum hér frá eftirminni-
legasta afmælisdeginum.
LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ
bladid@24stundir.is a
Lífið verður æ dýrmætara eftir því
sem maður eldist og maður þakkar
fyrir hvern afmælisdag.