24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 58

24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 58
YFIRLÝSINGIN 24stundir/Frikki Eldar Ástþórsson framkvæmdarstjóri Kraums tónlistarsjóðs og Iceland Airwaves fæddur 29.05.1977 Sæl Sigrún Ása. Við erum hér með eina 13 ára sem hefur lést ískyggilega mikið að okkur finnst síðustu mán- uði. Hún er ca. 160 á hæð, því miður vitum við ekki hvað hún er þung þar sem hún fer undan í flæmingi í hvert skipti sem við göngum á hana. En hún lítur alls ekki vel út. Hún var bara venjuleg stelpa, alls ekki þykk, en núna finnst okkur beinin stingast alls staðar út. Þegar við spyrjum hana út í hvort hún sé að grenna sig, þá neitar hún því, segist bara hafa mikið að gera og gleymi stundum að borða. Okkur finnst einnig eins og hún sé að forðast okkur, er oft hjá vinkonum sínum og segist þá hafa borðað þar. Við vitum satt að segja ekki hvað við eigum til bragðs að taka. Hvað getum við gert til þess að komast betur að því hvort hér sé eitthvað alvar- legt í gangi? Og ef svo er, hvernig tökum við þá á því? Vonandi getur þú ráðlagt okkur eitthvað. Með fyrirfram þökk. Kveðja, foreldrar. Kæru foreldrar. Ég vil byrja á því að hrósa ykkur fyrir að vera svona vel vakandi yfir unglingnum ykkar og leita ykkur upplýsinga svona fljótt. Það getur skipt sköpum að grípa inn í eins fljótt og hægt er, sé um einhvers konar átröskun að ræða. Lystarstol og lotugræðgi eru mjög alvarlegar raskanir sem oft er mjög erfitt að meðhöndla. Það er því lykilatriði að einstaklingur með átröskun komist undir hendur sérfræðinga sem fyrst. Því fyrr sem einstaklingur fær meðhöndlun, því meiri líkur eru á fullum bata. Ég skil áhyggjur ykkar vel og það er full ástæða til að fylgj- ast vel með þessari breytingu á dóttur ykkar og reyna að kom- ast til botns í því hvort hér sé eitthvað alvarlegt á ferðinni. Það mynstur sem þið lýsið hér, þ.e.a.s að léttast mikið á skömmum tíma og forðast að borða með fjölskyldunni, getur vissulega átt við einstakling sem er að þróa með sér átröskun, en það þarf þó ekki endilega að vera svo og er því mikilvægt að huga að öðrum þáttum. Á kynþroskaaldrinum breytist lögun líkamans mikið hjá ungum stúlkum og margar þeirra bæði lengjast og grennast töluvert án þess að eitthvað sé at- hugavert við það. Á þessum aldri verður unglingurinn einnig oft mjög virkur í félagslífinu og má af engu missa og gæti það því skýrt það að hún vilji hanga mikið með vinkonum sínum. Hins vegar er mjög mikilvægt að hafa góða yf- irsýn yfir helstu athafnir barna sinna og passa upp á að sleppa þeim ekki frjálsum þó að þau séu komin á unglingsaldur. Á þeim aldri er einmitt mikilvægt að halda mjög vel utan um þau, fylgjast með hvað þau eru að gera, þekkja vini þeirra og hafa reglur í kringum útivistartíma og annað. Hvað varðar dóttur ykkar, þá tel ég mikilvægt að þið setjist niður með henni og ræðið við hana op- inskátt um áhyggjur ykkar. Látið hana vita að þið hafið áhyggjur af henni og hún geti leitað til ykkar ef hún hefur þörf á því. Þó svo að hún opni sig ekki á þeim tíma er mikilvægt að hún fái að heyra það að þið séuð til staðar fyrir hana hvenær sem er. Annað sem er mikilvægt er að setja henni reglur varðandi mat- málstíma. Hún er bara 13 ára og 13 ára barn ætti að borða kvöld- mat í faðmi fjölskyldunnar nema eitthvað alveg sérstakt komi til. Reyni hún að komast hjá því, eða borði hún lítið og jafnvel það hita- einingasnauðasta sem er á borð- stólum, þá er vissulega ástæða til að hafa áhyggjur af því. Ég hvet ykkur til að fylgjast vel með henni þegar hún er heima, taka eftir því hvers konar fæðu hún setur ofan í sig og hversu mikið magn. Einnig er gott að fylgjast með henni eftir matmálstíma, til dæmis vera vakandi fyrir tíðum klósettferðum eftir matmálstíma með það í huga hvort hún mögu- lega gæti verið að kasta matnum upp. Einnig er mikilvægt að vera meðvitaður um hvort hún hreyfir sig óhóflega mikið. Ég hvet ykkur einnig til að ræða þetta við kenn- arann hennar, því mikilvægt er að fá upplýsingar um hvort hún eigi erfitt með að einbeita sér í skólanum, sé að dragast aftur úr í náminu og þ.h. Ég ráðlegg ykkur að hafa góða yfirsýn yfir hana næstu 2 vikurnar eða svo og meta svo framhaldið út frá því Ef ykkur finnst ástand hennar versna, eða þá að ykkur finnst hegðun hennar óeðlileg á ein- hvern hátt, þá hvet ég ykkur til að leita til sérfræðings hið fyrsta Eins og ég sagði í upphafi þá er lykilatriði að einstaklingur sem er að þróa með sér átröskun kom- ist undir hendur sérfræðinga sem fyrst. Gangi ykkur sem allra best Kveðja, Sigrún Ása sálfræðingur – Ráðgjafi hjá femin.is www.salarlif.is Sæl Guðrún. Ég er nýbúin að gera mér grein fyrir því að ég er með- virk. Ég hef alltaf vitað af með- virkni í fjölskyldunni minni, en ég hef aldrei séð það í sjálfri mér fyrr en nú. Ég keypti Code- pendent No More um daginn og því meira sem ég les, því meira sé ég að ég þarf virki- lega að vinna í mínum málum. Ég bý ekki á Íslandi og það eru engir CODA-fundir nálægt mér. Það er 12 spora kerfi í bókinni sem ég keypti en er hægt að fara í gegnum það án þess að fá utan- aðkomandi hjálp? Hvað get ég gert ein til að vinna í mér? Get og vil ekki vera svona lengur. Sæl og blessuð. Takk fyrir bréfið. Ég vil byrja á að óska þér til hamingju með að vera búin að finna út að þú vilt bæta þig sem manneskju. Nú veit ég ekki hvar þú býrð en ég gæti trúað að t.d. Al-Anon- fundir séu einhvers staðar á svæð- inu, þar sem það eru mjög út- breidd samtök. Skv. heimasíðu Al Anon-samtakanna hér á Íslandi eru Al-Anon-samtökin starfandi í 115 löndum með 28.000 deildum Tékkaðu á þessu, því að í Al-Anon er alveg eins verið að takast á við meðvirkni, myndi ég segja, eins og í CODA. Í 12 spora kerfinu erum við að fást við okkur sjálf. Að vinna í sér sjálf er alveg hægt að ákveðnu marki. En ég er viss um að þér tekst að finna þótt ekki væri nema eina mann- eskju sem er á svipuðu andlegu róli og þú. Það er auðvitað mjög gott að lesa sem allra mest, að svara spurningunum í bókinni er bara góð hugmynd. Mig langar líka til að benda þér á heimasíðu Al-Anon-samtakanna á Íslandi www.al-anon.is og CODA-sam- takanna á Íslandi, http://this.is/ coda/. Á báðum þessum síðum er fullt af góðu lesefni. Gangi þér vel Guðrún Brynjólfsdóttir – Ráðgjafi hjá femin.is Meðvirkni – vantar hjálp Er dóttir okkar með átröskun? LIGGUR Á HJARTA Sendið fyrirspurnir á netfangið: femin@femin.is – Merkt: Fyrirspurn til ráðgjafa vegna 24 stunda 58 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.