24 stundir - 08.03.2008, Síða 60

24 stundir - 08.03.2008, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Fyrst og fremst er áherslan þó á öryggisþátt- inn en meiðsl og slys á vélsleðum voru afar al- geng áður fyrr í keppnum sem og leik. Þetta er að skila sér enda slysum snarfækkað undanfarin ár. Íþróttablaðið Marca í Ma-drid telur sig hafa nægarheimildir til að birta frétt þess efnis að stjórnarmenn Real Madrid íhugi nú að skipta út Bernd Schuster þjálf- ara strax í lok tímabils fyrir hinn litríka Portúgala Jose Mo- urinho. Stjórnarformaðurinn Ramón Calderon segir þetta rangt en sagan er til vitnis um að forráðamenn liðsins grípa gjarnan til örþrifaráða löngu áður en þeirra er þörf og þjálf- arar hafa fokið þar á bæ fyrir þær sakir einar að tryggja lið- inu spænska titilinn. Schus- ter þykir hins vegar ekki alveg hafa náð að koma félaginu í þann sambatakt sem aðdáendur vilja og vænta. Ólíklegt verður að telja að Mourinho geri það betur. Börsungar eru byrjaðir aðstyrkja sig fyrir næstuleiktíð og hafa náð samkomulagi við danska miðjumanninn Christian Poulsen hjá Se- villa. Poulsen þykir einn af þeim betri á miðj- unni í Evrópu og hefur staðið sig stórkostlega með Sevilla undanfarin ár. Þrjú ár í viðbót. AlexFerguson, stjóri United,sem reglulega hefur ætlað að hætta allan áratuginn, hefur gefið enn eina yfirlýsingu um áframhald- andi störf í þágu liðsins. 2011 er nefnt en þá kemst karl loks á sjötugsald- urinn og ellilífeyririnn er ekki af skornum skammti. Enn er ekki ljóst hversulengi Eduardo verður fráleik vegna fótbrots í leik gegn Birm- ingham um daginn. Bjart- sýnustu menn tala um sex mánuði. Enn hefur gerand- inn, Martin Taylor, ekki séð stæðu til að heimsækja kappann á spítala. Hinn umdeildi Sepp Blatter, for- seti Alþjóða knattspyrnusam- bandsins, hefur enn á ný komist í sviðsljósið með hugmyndir sínar. Vill hann nú kanna hvort ekki sé rétt að dæma leikmenn er viljandi brjóta mjög alvarlega af sér í leik verði dæmdir í lífstíðarbann frá knattspyrnu. Hugmyndin sem slík er kannski ekki alveg ný af nálinni en lífstíð- arbann er nýjung. Víst er að tækl- ingar og samstuð mörg í boltanum eru af ásetningi og fyrir kemur að alvarleg slys hljótast af. Síðasta dæmið er fótbrot Eduardo hjá Ars- enal sem mun halda kappanum frá fótbolta í fleiri mánuði og jafnvel heilt ár. En sú hugmynd að setja menn í lífstíðarbann er ekki vinsæl og vart verða þeir menn vinmargir er það ákveða hverju sinni. Þá verður lík- lega eilíflega rifist um hvern dóm fyrir sig og eins og menn þekkja sýnist sitt hverjum. Afar fín lína er á milli þess að tækla einhvern illa og tækla einhvern frábærlega og jafnvel þótt sjónvarpsvélar séu fjöl- margar til aðstoðar í stærstu leikj- um á það ekki við um neðri deildir þar sem þær eru yfirleitt ekki til staðar. Þá liggur ábyrgðin á lífsvið- urværi leikmanna um alla tíð á herðum eins dómara sem kannski og kannski ekki er vel staddur til að dæma stöku atvik. Viðbrögð þjálfara og leikmanna í Englandi og á Spáni við tíðindum Blatters voru að mestu leyti nei- kvæð en karlinn hefur gríðarleg áhrif og fær sínu jafnan framgengt. Forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins kemur enn fram með umdeildar tillögur Lífstíðarbann fyrir alvarlegar tæklingar? Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Heila læknisfræðibók þyrfti til væri ætlunin að skrásetja þau meiðsli sem Alexander Kárason, Lexi, hefur orðið fyrir í snjósleða- akstri síðustu tíu árin. Sá fórnar- kostnaður hafði þó í för með sér að hann var lengi fremsti vélsleða- maður landsins og sá eini sem keppt hefur oftar en einu sinni á stórmótum erlendis. Í dag er öldin önnur og hann hættur að keppa en gerir nánast allt annað; skipulegg- ur keppnir og félagsstarf, heldur úti vinsælum snjósleðaskóla sem og vinsælustu heimasíðu vélsleða- manna á landinu. Snör fjölgun vélsleðamanna Það hefur vart farið framhjá nokkrum manni að mikil fjölgun hef- ur orðið hjá vélsleðafólki í vetur. Þús- undir Íslendinga eiga nú vélsleða og umgjörðin um íþróttina er orðin allt öðruvísi og betri en áður var. „Það er ánægjulegt en var viðbúið um leið og loks kom nægur snjór. Það er það erf- iðasta við sportið, sérstaklega suðvest- anlands, að snjórinn hefur verið af skornum skammti en hér eru lang- flestir íbúar og vissulega hefur algjör sprenging orðið í vetur.“ Aðstöðuleysi Vélsleða er eðlilega vel hægt að nota með góðu móti um land allt sé nægur snjór en vélsleðamenn hafa ekki fengið úthlutað svæði til kennslu og æfinga eins og margir aðrir hafa fengið og það svíður. „Það er vandamál eins og staðan er hér suðvestanlands. Okkur er ekki heimilt að vera á sleðum á skíða- svæðunum og sleðamenn farið í Jósepsdalinn til æfinga en hann er ekki hentugur. Mér þykir sýnt að við þurfum fasta aðstöðu til kennslu og æfinga sem er undir- staða þess að fólk læri almennilega á sleðana og þannig má koma í veg fyrir slys og meiðsl enda auðvelt að lenda í slíku fyrir óvana.“ Sleðaskóli Slys og óhöpp voru nokkuð al- geng í íþróttinni hér fyrir nokkr- um árum og það var af því tilefni sem Alexander setti á stofn sleða- skóla ásamt félaga sínum. „Það verkefni hefur tekist vonum fram- ar. Fyrst sóttu um tíu manns nám- skeiðið en nú eru 40 manns að lág- marki. Slíkt er einmitt fyrsta skrefið til að kynnast öðru fólki í bransanum og margir sem klára skólann hafa í kjölfarið tekið þátt í keppnum. Fyrst og fremst er áherslan þó á öryggið og þetta er að skila sér enda hefur slysum á sleðum snarfækkað undanfarin ár.“ Keppnisskap Þótt Lexi keppi ekki sjálfur leng- ur er hann þungvigtarmaður í skipulagningu keppna og fé- lagsstarfs í íþróttinni. Hann vann Íslandsmeistaratitilinn í nokkur skipti og reyndi nokkrum sinnum fyrir sér á sterkum mótum erlend- is. „Ég tók það upp hjá sjálfum mér að fara í keppnir. Ég keppti í Evrópu í svokölluðum pro-flokki eins og hér heima en komst fljót- lega að því að þar er himinn og haf á milli. Ég reyndi tvívegis fyrir mér á X-leikunum í Aspen í Bandaríkj- unum en það er stærsta jaðar- keppni heims og áhorf á hana svip- að og á Ólympíuleika að mér skilst. Mér gekk nú ekkert sérstaklega vel en þetta var mikil upplifun.“ Mývatn um helgina Lexi verður áhorfandi nú um helgina þegar keppni fer fram á Mývatni. Það dugar honum ekki og því sér hann um að keppnin sú sé tekin upp á myndband og ætl- unin er að útbúa nokkra þætti og koma í sjónvarp. „Það hefur geng- ið illa að fá allt mótorsport í sjón- varp og skiptir engu þótt við gef- um efnið. Við ætlum að gera eina tólf þætti nú og fá þá sýnda á Skjá einum enda nauðsynlegt fyrir þessa íþrótt að fá athygli. Fram- undan er svo keppni á Húsavík og svo lokakeppni vetrarins á Egils- stöðum um miðjan apríl og þá verður öllu til tjaldað.“ Frekari upplýsingar um mótin og annað má finna á heimsíðunni lexi.is. Lurkum laminn en áfram heldur hann þó  Alexander Kárason hefur öðrum fremur komið vélsleðaíþróttinni á kortið hérlendis  Hann var Íslandsmeistari um tíma, keppti erlendis og rekur vinsælan snjósleðaskóla Vélsleðaskólinn Fer árlega fram í Ólafsfirði og verður vinsælli með hverju ári. SKEYTIN INN Starfsmenntanám · Blómaskreytingar · Búfræði · Garðyrkjuframleiðsla · Skógur og umhverfi · Skrúðgarðyrkjubraut www.lbhi.is Háskóli lífs og lands Umsóknarfrestur um skólavist er til 4. júní

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.