24 stundir


24 stundir - 08.03.2008, Qupperneq 64

24 stundir - 08.03.2008, Qupperneq 64
64 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir Starfsmenntanám · Blómaskreytingar · Búfræði · Garðyrkjuframleiðsla · Skógur og umhverfi · Skrúðgarðyrkjubraut www.lbhi.is Háskóli lífs og lands Umsóknarfrestur um skólavist er til 4. júní Misty, Laugavegi 178, Sími 551 3366 Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf www.misty.is Létt fylltur og flottur í BC skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,- Íþróttahaldarinn sívinsæli í BCD skálum á kr. 2.350,- teygjubuxur í stíl á kr. 1.450,- Flottur stuðningur í CDE skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,- Hinn væntanlegi stórleikur Spore, frá Will Wright sem gerði meðal annars Sims-leikina, mun verða fáanlegur á iPhone í september. Þetta tilkynnti æðsti prestur Apple-sértrúarsafnaðarins, Steve Jobs, við hátíðlegt tilefni á fimmtudaginn. Spore er einungis einn af mörgum leikjum sem væntanlegir eru fyrir iPhone en hann mun verða fyrsti leikurinn fyrir iPhone sem er ekki gerður af Apple. vij Spore mætir á iPhone í haust Danger Mouse stýrir upptökum á næstu Beck-plötu, en hann er eft- irsóttur upp- tökustjóri ásamt því að vera helm- ingur hinnar snjöllu sveitar Gnarls Barkley. Nýr diskur Becks er sagður vera á fyrstu stigum upptöku en Beck sendi síðast frá sér geisladiskinn The Inform- ation árið 2006. re Stýrir upptökum fyrir Beck Leikarinn Ashton Kutcher hefur nú aftur tekið upp fyrri iðju við að hrekkja fólk en þáttaröð hans Punḱd vakti mikla athygli á sínum tíma. Nú hefur Ashton hins vegar ákveðið að snúa blaðinu við í nýrri þáttaröð sinni, Pop Fiction, en þar fær hann stjörnurnar í lið með sér til að hrekkja fjölmiðla og papparassa. Nú þegar hafa fjölmiðlar fallið fyrir einum hrekk Kutchers og fé- laga en það var fyrr í vikunni þegar Paris Hilton sást í för með hinum skrautlega Yogi Baba en sá síð- arnefndi átti að vera að vísa Paris réttu leiðina í lífinu. Framleiðandi Pop Fiction, Jason Goldberg, sagði í nýlegu viðtali í Bandaríkjunum að þátturinn ætti að vekja athygli á því hvað ástand- ið í skemmtanaheiminum er í raun og veru orðið sjúkt. „Við erum að tala þeirra tungumál. Við búum í heimi sem er knúinn áfram af fjöl- miðlum og þráhyggju gagnvart fræga fólkinu. Þetta er komið á það stig að fólk á sér ekkert einkalíf lengur.“ vij Kutcher kátur Spenntur fyrir því að hrekkja slúðurblöðin. ÞEKKIR ÞÚ BARNASTJÖRNURNAR? SVÖR VIÐ SPURNINGUM Á BLS. 62. Taran Noah Smith Hann lék Mark Taylor í þáttunum Handlaginn heimilisfaðir. Melissa Gilbert Hún lék Lauru Ingalls í þáttunum Húsið á sléttunni. Jeremy Jackson Hann lék Hobie Buchannon í þáttunum Strandverðir. Madeline Zima Hún lék Grace Sheffield í þáttunum Barnfóstran. Erik Per Sullivan Hann lék Dewey í þáttunum Malcolm í miðið. 1 2 3 4 5 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Ég er ekki mikið fyrir endalausa liti eins og margir í dag. Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég orðinn þreyttur á þessu lita-reif-brjálæði. Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur Halldora@24stundir.is „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa mínum fatastíl í fáeinum orðum. Undanfarið hef ég haft tilhneigingu til að vera geðveikt fínn, en stundum nenni ég því alls ekki og fer bara einhvern veginn út. Annars er stíllinn minn frekar fábreyttur og ég er mest fyrir grátónað, bláan og svona frekar látlausa pallíettu,“ segir Sigurður Oddsson, hönnunarnemi og bassaleikari rokksveitar- innar Mínus, aðspurður um eigin fatasmekk og áhersl- ur þegar að tísku kemur. Hann kveðst hafa látlausan stíl og kann illa við fjölskrúðuga litadýrð. „Ég er ekki mikið fyrir endalausa liti eins og svo margir í dag. Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég orðinn þreyttur á þessu lita-reif-brjál- æði. Hún höfðar einhvern veginn ekki til mín þessi ríkjandi menntaskólatíska eins og sumir virðast keppast við að klæðast eins mörgum litum og þeir mögulega geta. Það á allavega ekki við mig per- sónulega.“ Eyðir litlu í föt Enda þótt Siggi vilji eins og flestir líta ágætlega út kveðst hann ekki eyða miklum tíma fyrir framan speg- ilinn á morgnana. „Í rauninni fer ég bara í sturtu og út. Hárið mitt er bara eins og það er og ég hendi mér í einhver föt. Ég myndi ekki segja að ég hugsaði mikið um útlitið. En svo náttúrlega vill maður gera eitthvað við sérstök tilefni, auk þess sem maður hefur gaman af því að líta vel út,“ segir Siggi og bætir því við að hann reyni að sniðganga innkaupaferðirnar að mestu. „Ég versla ekki neitt rosalega mikið og reyni að eyða ekki of miklu í föt. Annars kíkir maður alltaf reglulega og reynir að skoða eitthvað ef maður fer til útlanda. Annars versla ég mest í Kron Kron hérna heima,“ segir Siggi að lokum. Siggi Odds dressar sig upp Með fá­breytt­an og lá­t­laus­an fat­as­mekk Sigurður Oddsson, bassaleikari rokk- hljómsveitarinnar Mínus, hefur fábreytt- an og látlausan fatastíl. Hann eyðir ekki stórum fúlgum í tískuvöruverslanir en finnst ekki leiðinlegt að klæðast sínu fín- asta pússi endrum og eins. Í MYND Ég er í Licentious-jakka úr Nonnabúð. Mér finnst hann stórkostlegur en eini gallinn er að það eru engir vasar á honum. Hins vegar var Jón Sæmundur að búa til nýja jakka í nýju línunni sinni sem er eiginlega alveg eins og þessi en með fullt af vösum – alveg fullkominn listamannajakki. Og helmingi ódýrari en þessi líka. JAKKI Peysan er úr versluninni Kron Kron. Ég hef notað hana mikið upp á síðkastið og hef frekar gaman af peysum – card- igans og öðru svipuðu. Svo á ég það til að nota peysurnar yfir skyrtu og bindi, allur gangur þar á. Svo fer maður nú að minnka peysunotkun á næstu mánuðum þegar vora tekur. Ég allavega vona það. PEYSA OG SKYRTA Ég er með Number (n)ine-grifflur, eða svona róna- hanska eins og þetta kallast. Svo er það trefill eftir Sruli Recht, ástralskanfata- hönnuð sem hefur búið á Íslandi í nokkur ár. Hann selur klúta og fleira skemmtilegt í Liborius. Hann gaf mér þennan tref- il. Svo fær keðjan að vera þarna með. AUKAHLUTIR Þessi stígvél fékk ég í Elvis. Ég er rosa ánægður með þau, enda eru þau fín í ógeðsveðrinu sem er núna alltaf og fínt að vera ekki blautur í fæturna. Svona yfirhöfuð er ég mikill skóböðull og á það til að ganga skó út mjög fljótt. Mér tekst stundum ótrúlega fljótt að eyðileggja skóna mína. SKÓR Þetta eru April 77-buxur sem ég fékk að mig minnir í Liborius fyrir ekki svo löngu. Ég nota þær frekar mikið og er reyndar rosalega hrifinn af April 77-bux- unum yfirhöfuð. Ég var einmitt að kaupa mér nýjar í gær. Annars er ég voða mikið í svona sniði – finnst fínt að vera í frekar þröngum buxum. BUXUR Kutcher pönkar pressuna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.