24 stundir


24 stundir - 08.03.2008, Qupperneq 66

24 stundir - 08.03.2008, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir Í kvöld er óvenjulegt skemmti- kvöld í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð en þar er myndinni „The Big Le- bowski“ fagnað. „Ég og vinur minn, Ólafur Jakobsson, erum miklir aðdáendur,“ segir Svavar Jakobsson. „Hugmyndin kemur frá Bandaríkjunum, en þar hafa svona hátíðir verið haldnar síð- astliðin 7 eða 8 ár.“ Svavar fór að stunda keilu eftir að hann sá myndina sem hann hefur séð 30-50 sinnum. „Við héldum svipað partí í fyrra, en bara fyrir vinina, nú verður opið fyrir alla.“ Kvöldið hefst klukkan 20.00 og farið er í keilu klukkan 21.00. Því næst verða úrslit í búninga- keppninni kynnt, en vonast er til að sem flestir mæti sem karakter- ar úr myndinni. Að lokum er svo kvikmyndin The Big Lebowski sýnd. Verð aðgöngumiða er 2990 og innifalið er keiluleikur, sér- merktur bolur, myndasýningin og einn White Russian. re Lebowski heiðraður Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@24stundir.is Hópur svokallaðra moggablogg- ara, með Ásthildi Cesil Þórð- ardóttur og Jakob Fal Kristinsson í fararbroddi, hefur uppi háleitar hugmyndir um að gera Vestfirði að fríríki og jafnvel lýsa yfir sjálfstæði fjórðungsins frá Íslandi. Hér gætu einhverjir haldið að um grín væri að ræða, en svo er víst ekki. „Ég hafna aldr- ei góðum hug- myndum. Og þessi hugmynd kann vel að vera raun- hæf. Þarna skapast tækifæri fyrir Vestfirði til að marka sérstöðu í ferða- mannaþjónustu til dæmis, nokkuð sem ekki hefur tekist enn.“ Meðal hugmynda hópsins er að laða að erlend umhverfisvæn fyr- irtæki, hanna nýjan fána, semja nýjan texta við Ísland er land þitt, sem yrði nýr þjóðsöngur, og síðast en ekki síst gera Reyni Pétur Ingv- arsson að sendiherra Vestfjarða á Íslandi og afmælisdag hans að þjóðhátíðardegi. Fylgjandi málinu „Þetta er nú sniðugt hjá þeim sko. Ekki var haft samband við mig samt. Ég veit nú ekki hvort ég myndi nenna að vera sendiherra heldur. Við svoleiðis innivinnu safnar maður bara ístru við að sitja á rassinum!“ sagði Reynir Pétur, sem var á fullu í garðræktinni á Sólheimum. Ásthildur Cesil Þórðardóttir vill fullt sjálfstæði frá Íslandi. „Ég er orðin dauðþreytt á að kvótinn og allt annað sé rifið frá okkur Vest- firðingum. Við erum betur sett sem sjálfstætt ríki, þar sem við get- um ráðstafað okkar eigin auðlind- um. Þetta var gert í Kosovo og við getum vel gert það hér einnig,“ segir Ásthildur og verður spenn- andi að fylgjast með framvindu mála. Skilnaður á þjóð og landi Bloggarar bjarga Vestfjörðum (BBV) vilja sjálf- stæði Vestfjarða frá Íslandi. Hópur moggabloggara með háleitar hugmyndir Fríríkið Vestfirðir Hópur moggabloggara vill gera Vestfirði að frí- ríki og jafnvel lýsa yfir sjálfstæði Vestfjarða frá Íslandi. Vilja þau jafn- framt nýjan fána, þjóð- söng og þjóðhátíðardag. Sendiherrann? Reynir Pétur segist ekki vilja verða skrifstofublók. bandi, en lokatónleika hjá lélegu bandi.“ Tónleikarnir hefjast á nokkurra mínútna jarðarfarartónlist en um leið og því er lokið tekur fjörið við og varir fram eftir nóttu. „Þetta verður óvissupartí. Við ætlum að gera eitthvað rosalegt, og erum komnir með atriði sem er sögulegt. Við höfum undirbúið þetta mjög vel.“ Tónleikarnir hefjast kl. 22.30 og frítt er inn. heida@24stundir.is Hljómsveitirnar Últra Mega Technobandið Stefán, Who Knew?, Ask the Slave og For a Mi- nor Reflection hafa brugðið á það ráð að halda erfidrykkjupartí fyrir hljómsveitina Jakobínurínu, sem er að hætta og heldur jarðarfarar- tónleika í kvöld á Organ. Erfi- drykkjupartíið verður hinum megin við götuna á skemmti- staðnum Amsterdam á sama tíma. Sigurður Ásgeir Árnason, for- sprakki Últra Mega Technobands- ins Stefáns, segist ætla að halda áfram að skemmta sér og ekki láta brottför Jakobínurínu úr íslensku listalífi á sig fá. „Yfirskrift tón- leikanna er eiginlega Partí, partí – Erfidrykkja Jakobínurínu. Hug- myndin að tónleikunum er sprottin af almenningsáliti. Það eru fáir að fara að mæta á jarð- arförina, því að það er alltaf meiri eftirvænting eftir erfidrykkj- unni en jarðarförinni.“ Þegar Sigurður er spurð- ur hvort ekki hefði verið skynsamlegra að hafa erfidrykkj- una á eftir jarðarför- inni, svarar Sigurður að svo sé alls ekki. „Fólk hef- ur alveg vit á að mæta á okkur. Við finnum ekki fyrir neinni samkeppni gagnvart Jakobínurínu. Fólk á frekar að mæta á tónleika hjá góðu upp- rennandi Fjórar hljómsveitir halda erfidrykkjupartí Jakobínurínu Ultra Mega Teknóbandið Stefán Syrgja ekki Jakobínurínu. „Óþarfi að samhryggjast lélegri hljómsveit“ Sigurður Lofar sögulegu atriði á Amsterdam í kvöld. Ein vinsælasta hljómsveit landsins, ef ekki sú vinsælasta, Sálin hans Jóns míns, fagnar tví- tugsafmæli sínu um þessar mundir. Af því tilefni hefur sveit- in gefið út tvær veglegar öskjur, Vatnaskil, með öllum plötum sveitarinnar og einni betur, Arg. Arg er safn laga sem nefnast „munaðarleysingjar“, lög sem að- eins hafa ratað á ýmsar safn- plötur í gegnum tíðina, en ekki átt samastað á breiðskífum Sálar- innar. Í tilefni afmælisins kemur sveitin saman þann 14. mars í Laugardalshöll og blæs til stór- tónleika, þar sem blásarar, strengjasveit, Gospelkór Reykja- víkur og ýmsir leynigestir stíga á stokk, ásamt auglýstum trúði, sem hlýtur að teljast óvenjulegt. „Það er nú meira gert til gamans. Aldrei að vita nema einn slíkur dúkki upp. Annars erum við nú með einn trúð í bandinu, Jens Hansson. Kannski við látum hann nægja, “ sagði Stefán Hilm- arsson, söngvari sveitarinnar. Vatnaskil hjá Sálinni hans Jóns míns 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Fólk hefur alveg vit á að mæta á okkur. Við finnum ekki fyrir neinni samkeppni gagnvart Jakobínurínu. Chevrolet Captiva er glæsilegur sportjeppi sem tekið er eftir. Bíllinn er hannaður til að mæta kröfum evrópskra ökumanna og er útkoman áberandi glæsilegur bíll. Kraftmikil túrbó dísilvél og 5 þrepa sjálfskipting, og þú getur valið um 5 eða 7 manna bíl. Komdu við hjá okkur, við erum á Tangarhöfðanum - Alltaf heitt á könnunni. CAPTIVA 7 manna sjálfskiptur dísil sportjeppi...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.