24 stundir - 08.03.2008, Síða 70

24 stundir - 08.03.2008, Síða 70
70 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir „Það er búið að gefa út á mig veiðileyfi í Jökuldal. Er víst sið- laus, illviljaður og tala úr mór- ölsku hásæti – jú og ég var víst líka kallaður fífl. Skrif mín í stað- arblaðið um skemmtiatriði á þorrablóti sveitarinnar virðast hafa valdið uppnámi á nokkrum bæjum í Jökuldalnum.“ Einar Ben Þorsteinsson einar.eyjan.is „Úr minningargreinum. ‘Hann giftist eftirlifandi eig- inkonu sinni og átu þau tvö börn.’ ‘Hún hafði það sterka skapgerð að rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi.’ ‘Hann var sannur Íslendingur og dó á 17. júní.’ ‘Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag.’“ Marta Gunnarsdóttir blogg.visir.is/skandala „Enn og aftur klikkar dómarinn í Gettu betur! Þetta er bara einn mesti skandaladómari sem gefið hefur sig í það að dæma í Gettu betur. Það hefur verið eitthvað að í öllum þáttunum. Þetta er bara skandall og ætti raunar að halda keppnina aftur, með þá öðrum dómara.“ Guðmundur Óli visir.is/gudmunduroli BLOGGARINN Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Gaukurinn er að detta inn í 25. starfsárið sitt. Ég kveð nafnið með tárum,“ segir athafnamaðurinn Kristján Jónsson, betur þekktur sem Kiddi Bigfoot. Gaukur á Stöng, einn sögufræg- asti tónleikastaður Íslandssög- unnar, verður tekinn í gegn á næst- unni. Nafni staðarins verður breytt og áhersla verður lögð á plötu- snúða í stað lifandi tónlistarflutn- ings. „Ég er að fara að breyta staðnum í næturklúbb,“ segir Kiddi. Hann tók við Gauki á Stöng í fyrra og endurnýjaði innréttingar staðarins. Áður en Kiddi tók við staðnum ríkti óvissa um framtíð hans og uppi voru hugmyndir um að breyta staðnum í minja- gripaverslun. Gaukurinn gekk ekki upp „Maður reyndi þetta í tæpt ár, en dæmið gengur ekki upp – eins og margt,“ segir Kiddi. Á næstunni skýrist hvað nýr og endurbættur Gaukur á Stöng mun heita, en endurbætur hefjast í kringum páska. Spurður um ástæður þess að Gaukur á Stöng gangi ekki sem tónleikastaður segir Kiddi að nóg sé af stöðum í Reykjavík sem bjóða upp á tónleikahald. „Hljómsveitir eru uppteknar í alls konar uppá- komum úti í bæ og fyrirtæki eru dugleg að vera með hljómsveitir. Það er ekki hlaupið að því að vera með hljómsveit og ballmenningin er ekki eins fyrirferðarmikil og áð- ur,“ segir hann. „Böll eru þó til staðar. Það eru staðir sem gera fína hluti með þau, eins og til dæmis Players og Nasa. Ég leyfi þeim að halda því áfram.“ Þó að Gauknum verði breytt hverfur sviðið sögufræga ekki. Margar af mögnuðust hljóm- sveitum landsins hafa troðið upp á sviðinu á Gauki á Stöng og munu væntanlega gera það áfram, til dæmis á Iceland Airwaves- hátíðinni, sem mun að öllum lík- indum afdrep á Gauknum. Þá segir Kiddi að nýr Gaukur verði ekki lokaður fyrir ýmsum viðburðum í miðri viku. Einn sögufrægasti tónleikastaður landsins umturnast Gaukur af Stöng Tónleikastaðurinn Gauk- ur á Stöng hefur þjónað Íslendingum í 25 ár og margar af mögnuðustu hljómsveitum landsins hafa troðið þar upp. Staðurinn gengur í gegn- um endurbætur á næst- unni og breytir meðal annars um nafn. Breytir til Kiddi Bigfoot hyggst breyta Gauki á Stöng í næturklúbb. 24stundir/KGA Í þá gömlu góðu Gaukur á Stöng á árið 1990 þegar Kim Larsen tróð þar upp. HEYRST HEFUR … Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi æfir af kappi fyrir Queen-söngskemmtun sem kórinn setur upp í vor. Magni Ásgeirsson fer með hlutverk Freddy Mercury. Hann æfir nú heima hjá sér, en mætir á æfingar með kórnum eftir páska. Engum sögum fer af því hvernig Magna gengur að safna yf- irvaraskeggi, en hann lofaði að safna voldugri mottu í viðtali við 24 stundir fyrr í vetur. afb Tónlistarmennirnir og erkisnillingarnir Rúnar Júl- íusson og Bjartmar Guðlaugsson eru væntanlegir heim frá Jamaíka þar sem þeir hafa dvalið síðustu daga. Bjartmar sagði í viðtali við 24 stundir fyrir nokkrum vikum að hann hygðist fara í hljóðver í kjölfar ferðalagsins. Vonast hann til að geta nýtt suðræna sólargeisla í tónlistarsköpun sína og tekið upp sumarplötu á meðan sjónum kyngir niður. afb Halli Valli og félagar hans í hljómsveitinni Ælu hafa brugðið sér út fyrir landsteinana og eru um þessar mundir að spila í Frakklandi. Þeir komu fram á tónleikum í Laval í gærkvöldi og í kvöld munu þeir spila í höfuðborginni París. Einnig komu þeir fram órafmagnað á frönsku sjónvarps- stöðinni Domino TV en það er hægt að sjá á mys- pace-síðu þeirra pilta, myspace.com/aelaspace. re Hinn sívinsæli sjónvarpsþáttur Stöðvar 2, Logi í beinni, þar sem Logi Bergmann Eiðsson tekur á móti góðum gestum, er þó ekki alltaf í beinni útsendingu eins og nafnið gefur til kynna. Hafa síð- ustu þættir verið teknir upp fyrr í vikunni og síðan sendir út á föstu- dögum. Að sögn Loga er gild ástæða fyrir þessum „vörusvik- um“, ef þannig má að orði komast. Band Bubba fær forgang „Síðustu tveir þættir hafa verið teknir upp áður þar sem Bandið hans Bubba hefur verið með upp- tökuverið í notkun,“ segir Logi. „En í þeim þáttum sem teknir voru upp, sleppti ég minni hefðbundnu kynningu, þar sem ég býð áhorf- endur velkomna í beina útsend- ingu. Þannig var það með Ladda- þáttinn í gær, sem var tekinn upp í Borgarleikhúsinu, enda ekki hægt að vera með beina útsendingu það- an meðan verið er að sýna.“ Pálmi Guðmundsson, sjón- varpsstjóri Stöðvar 2, tekur undir með Loga. „Logi í beinni hefur alltaf verið í beinni útsendingu ut- an tveggja síðustu þátta, þar sem Bandið hans Bubba notast við sama upptökuver og Logi. Því hef- ur þurft að taka upp þáttinn,“ segir Skarphéðinn og bætir við: „Það eru nú til fordæmi fyrir þessu. Sat- urday Night Live er til dæmis ekki alltaf í beinni útsendingu og ekki heldur Jay Leno, þótt bragurinn sé þannig á þeim þáttum. Þar að auki hefur Logi ekki notað sína hefð- bundnu kynningu í óbeinu þátt- unum, þar sem hann býður alla velkomna í beina útsendingu.“ traustis@24stundir.is Ekki er allt sem sýnist í sjónvarpinu Logi í beinni ekki í beinni útsendingu Logið í óbeinni? Þáttur Loga ber ekki alltaf nafn með rentu. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 1 3 9 8 5 6 4 2 7 7 4 5 9 1 2 8 3 6 6 2 8 7 4 3 5 9 1 8 9 7 4 6 5 2 1 3 4 5 3 1 2 9 6 7 8 2 1 6 3 7 8 9 4 5 9 8 2 5 3 1 7 6 4 3 6 4 2 8 7 1 5 9 5 7 1 6 9 4 3 8 2 Af hverju myndi ég taka pípuna þína? Ertu búinn að leita í eldhúsinu? 24FÓLK folk@24stundir.is a Ég vona bara að Ruth sé runnin reiðin. Eiríkur, er Ruth runnin reiðin? Eiríkur Jónsson er ritstjóri Séð & heyrt en í frétt 24 stunda í gær, undir fyrirsögninni Ruth reið Eiríki, sagði af hugs- anlegu kærumáli Ruthar á hendur blaðinu fyrir grein sem átti að hafa valdið söngkonunni tilfinningalegu tjóni. Á páskum 2008, dagana 20.- 24. mars, verður árleg dagskrá á Kirkjubæjarklaustri sem nefnist Sigur lífsins. Fléttað verður saman fræðslu um Skaftáreldanna 1783, útivist á söguslóðum og helgihaldi páskahátíðarinnar. Dagskráin er á vegum Kirkjubæjarstofu, í samvinnu við sóknarprest og sóknarnefnd Prestsbakkasóknar. Nánari upplýsingar í síma: 487 4645, á netfangi: kbstofa@simnet.is á vefsíðu: www.kbkl.is og www.klaustur.is Sigur lífsins- páskadagskrá á Kirkjubæjarklaustri

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.