24 stundir


24 stundir - 08.03.2008, Qupperneq 72

24 stundir - 08.03.2008, Qupperneq 72
24stundir ? This Is My Life er líklega eina íslenskaJúrósigurlagið sem fólki virðist fyr-irmunað að muna eða raula eftir tíunduhlustun. Virðist ótrúlega auðgleym-anlegt lag. Og þó: Menn geta ekki gleymtlagi sem þeir hafa aldrei getað munað.Íslendingar vilja sko ekki senda aðraSilvíu í Júróið og ekkert fjandans grín eins og Ha Ha Ha we say Hí Hí Hí. Þeir vilja fólk sem er að taka þátt í þessari grínkeppni af fullri alvöru. Þeir vilja al- vöru volgt flatt óáfengt öl sem engum getur svelgst á. Einsog smáborgara er háttur þá eru Íslendingar afar viðkvæmir fyrir því hvaða augum umheimurinn lítur þá og vilja fyrir engan mun verða sér til minnkunar á erlendri grund og blóð- roðnuðu því af blygðun þegar Silvía var að fíflast bláedrú á Grikklandi. Sjálfir rúlla þeir flestir sauðdrukknir um bari erlendis öskrandi og ælandi og eru hvar- vetna til ama og leiðinda en það finnst þeim ókey vegna þess að þeir eru ekki í sjónvarpinu. Við kjósum ekki lengur það lag sem okkur sjálfum finnst best heldur það lag sem við höldum að muni falla öllum út- lendingum í geð. En sá sem reynir að gera öllum til hæfis gerir engum til hæf- is. Við hefðum t.d. aldrei þorað að senda finnsku skrímslin út. Hvað gætu útlend- ingar haldið um okkur? Hvort hefði verið betra að senda Merzedes Club út í djóki eða Euroband- ið í fullri alvöru? Veit það ekki, en alvaran er nú oft broslegri en grínið. Er geðslegt að geðjast öllum? Sverrir Stormsker veltir fyrir sér ótta þjóðar- innar við heimsálitið YFIR STRIKIÐ Er Eurovision háalvarleg keppni? 24 LÍFIÐ Gaukur á Stöng verður tekinn í gegn í kringum páska. Gaukurinn verður að næturklúbbi og nafninu breytt. Gaukur á Stöng breytir um nafn »70 24 stundir grófu upp fimm leikara og leikkonur sem slógu í gegn ung að árum og eru óþekkj- anleg í dag. Broslegar barna- stjörnur úr fortíðinni »62 Vestfirðingar vilja slíta sig frá Íslandi og breyta Vestfjarðakjálkanum í frí- ríki. Þeir vilja eigin þjóð- söng og reglur. Sjálfstæðisbarátta Vestfirðinga hafin »66 ● Í varastjórn „Mér finnst spennandi tæki- færi að fá að taka þátt í stefnumót- un stærsta fyr- irtækis á Íslandi og að vera með í að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja,“ segir Auður Einarsdóttir, sem í gær var kjörin í varastjórn Kaupþings ásamt fjórum öðrum konum. „Ég er viðskiptafræðingur og með MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Undanfarið hef ég unnið að því að stofna og stýra öflugu félagi MBA- kvenna við HR. Svo er ég fram- kvæmdastjóri heimilisins líka.“ ● Víkingar! „Það er ekkert víkinga- félag í Reykjavík sem vildi gera eitt- hvað í því,“ segir nútímavíking- urinn Gunnar Ólafsson. Gunnar og aðrir víkingar stofna víkingafélagið Einherja formlega í dag og koma saman í Norræna húsinu klukkan 15. Stofnfélagar eru 25 og Gunnar býst við að félagið vaxi og dafni á næstu árum. „Áhuginn er mjög mikill, ég er ekki einu sinni byrjaður að aug- lýsa.“ Einherjar draga nafn sitt af úrvalsbardagamönnum Óðins. Fé- lagið æfir bardagalistir víkinga, en þær eru iðkaðar víða um heim. ● Tískukóngur „Ég ritstýrði nátt- urlega tveimur tískutímaritum en núna er ég bara í blaðamannatísk- unni,“ segir Reyn- ir Traustason, rit- stjóri DV. Starfsfólk Birtíngs, sem gefur með- al annars út DV, Nýtt líf og Vik- una, hélt til Svíþjóðar á árshátíð fyrir helgi. Margir töldu að Reynir myndi standa uppi sem sigurvegari í kosningu sem var í gangi á skrif- stofu útgáfufélagsins í vikunni þar sem starfsmenn völdu meðal ann- ars tískukóng fyrirtækisins. Ritstjórn Sími: 510 3700 ritstjorn@24stundir.is Auglýsingar Sími: 510 3700 auglysingar@24stundir.is Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.