24 stundir - 05.04.2008, Page 10
10 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Robert Zoellick, forseti Alþjóða-
bankans, segir nauðsynlegt að ríki
heims bregðist þegar í stað við sí-
hækkandi matarverði, sem leiði af
sér matarskort, hungur og vannær-
ingu víðs vegar um heim. Zoellick
segir skortinn krefjast athygli og
viðbragða stjórnmálaleiðtoga í öll-
um ríkjum heims, þar sem hátt
verð og óstöðugleiki muni að öll-
um líkindum vara í nokkurn tíma.
Margir óttast að hækkanirnar
muni leiða af sér enn frekari fé-
lagsleg vandamál í fátækari ríkjum
heims.
Gríðarleg hækkun
Heimsmarkaðsverð á korni og
öðrum hrávörum hefur rokið upp
úr öllu valdi síðustu mánuði.
Þannig hækkaði verð á hrísgrjón-
um, sem er grunnfæða rúmlega
þriggja milljarða jarðarbúa, um
heil 42 prósent á fyrsta ársfjórð-
ungi 2008, samanborið við 33 pró-
sent allt síðasta ár.
Stjórnvöld í Kína, Indlandi, Ví-
etnam, Egyptalandi og fleiri af
mestu framleiðsluríkjum heims á
hrísgrjónum hafa dregið verulega
úr eða lokað á allan útflutning til
þess að halda niðri verðinu heima
fyrir.
Dregið úr matvælaaðstoð
Talsmenn Matvælaáætlunar
Sameinuðu þjóðanna segja stofn-
unina nú neyðast til að draga úr
matvælaaðstoð sinni við Darfúr-
hérað í Súdan og fleiri staði þar
sem neyð ríkir, verði ekkert að gert.
John Powell, yfirmaður hjá
stofnuninni, segir að án frekari
framlaga ríkja verði gjafirnar minni
eða að þær berist færra fólki. „Við
erum að ræða um fátækasta fólk í
heimi. Slíkt mun hafa hrikaleg
áhrif á framtíð þessa fólks, heilsu
og lífsviðurværi.“
Powell segir hækkandi matar-
verð í heiminum helst orsakast af
hækkandi olíuverði, aukinni eftir-
spurn í Kína og Indlandi, loftslags-
breytingum og alþjóðlegri eftir-
spurn eftir lífrænu eldsneyti.
Hrísgrjón Stjórnvöld í Indlandi og fleiri
löndum hafa bannað útflutning til að
halda verðinu niðri heima fyrir.
Matarskortur
vaxandi vandi
Heimsmarkaðsverð á hrísgrjónum hækkaði um 42% á fyrsta árs-
fjórðungi Forseti Alþjóðabankans kallar eftir viðbrögðum
➤ Náttúruhamfarir og aukin eft-irspurn frá Kína, Indlandi og
fleiri ríkjum hefur valdið
hækkandi verði á ýmsum
grunnvörum.
➤ Verð á grunnvörum hefurhækkað um 80 prósent frá
2005.
➤ Alþjóðabankinn telur að fé-lagslegur óstöðugleiki muni
aukast í 33 ríkjum vegna
hækkandi matarverðs á
næstu árum.
HÆKKANDI MATARVERÐ
Nuri al-Maliki, forsætisráðherra
Íraks, segir að öryggissveitir
muni stöðva handtökur á liðs-
mönnum Mehdi-hers sjítaklerks-
ins Moqtada al-Sadr, leggi þeir
niður vopn sín. Í yfirlýsingu segir
Maliki að hann muni veita öllum
þeim sem tóku þátt í bardög-
unum í Basra í lok síðasta mán-
aðar sakaruppgjöf, skili þeir
vopnum sínum til yfirvalda.
Maliki hótaði því fyrr í vikunni
að hefja aðgerðir gegn vígum
liðsmanna Mehdi-hersins í Bag-
dad. Al-Sadr hefur áður sagt liðs-
mönnum að hunsa boð Malikis. aí
Reynir að draga
úr spennu
Sænskir forleifafræðingar hafa
fundið gamlan víkingafjársjóð
grafinn í jörð rétt norður af höf-
uðborginni Stokkhólmi. 470 pen-
ingar fundust við uppgröft þann
1. apríl.
Að sögn forleifafræðingsins Kar-
in Beckman-Thoor eru pening-
arnir taldir vera 12 til 14 alda
gamlir og flestir slegnir í Bagdad
og Damaskus. aí
Svíar finna
víkingafjársjóð
Réttarhöld eru nú hafin í Bret-
landi yfir átta mönnum sem grun-
aðir eru um að hafa haft í hyggju
að sprengja farþegaflugvélar í loft
upp yfir miðju Atlantshafi árið
2006. Fram kom í gær að sex
mannanna hafi búið til píslarvætt-
ismyndbönd, þar sem þeir óska
þess að árásum rigni yfir van-
trúaða. Áttmenningarnir neita allir
sök í málinu.
Mennirnir voru handteknir í
ágúst 2006 grunaðir um að hafa
ætlað að nota heimatilbúin
sprengiefni í fljótandi formi í flug-
vélum á leið frá Bretlandi til
bandarískra og kanadískra stór-
borga. Að sögn rannsökuðu menn-
irnir jafnframt neðanjarðarlestar-
kerfi Lundúnaborgar og orkuver
sem hugsanleg skotmörk.
Í kjölfar handtöku mannanna
voru settar reglur sem bönnuðu
flugfarþegum að vera með vökva í
handfarangri um borð í flugvélum.
atlii@24stundir.is
Grunaðir Mennirnir
voru handteknir 2006.
Réttarhöld hafin í Bretlandi
Framleiddu píslar-
vættismyndbönd
Jaap de Hoop Scheffer, fram-
kvæmdastjóri NATO, segir að
enginn verulegur árangur hafi
náðst í viðræðum Vladimirs
Pútíns Rússlandsforseta og
leiðtoga NATO-ríkja í Rúmen-
íu í gær. Scheffer segir viðræð-
urnar þó hafa verið jákvæðar,
en NATO hafði áður lýst yfir
stuðningi við uppsetningu
Bandaríkjahers á eldflauga- og
ratsjárstöðvum í Austur-
Evrópu og veitt vilyrði fyrir
aðild Úkraínu og Georgíu að
bandalaginu. Rússlandsstjórn
hafði áður lýst sig andvíga
hvoru tveggja.
Að sögn álíta Rússar nú að
nauðsynlegt sé fyrir þá að
grípa til gagnaðgerða til að
tryggja öryggi Rússlands. aí
Pútín á NATO-fundi
Enginn veru-
legur árangur
Hlutfall Bandaríkjamanna
sem telja þjóð sína reiðubúna
fyrir svartan forseta hefur
aukist og mælist nú 76 pró-
sent í nýrri könnun CNN.
Könnunin sýnir jafnframt að
hlutfall hvítra sem telja þjóð-
ina reiðubúna fyrir svartan
forseta er mun hærra en hlut-
fall svarta. Þá sýnir könnunin
að 63 prósent Bandaríkja-
manna telji þjóðina reiðubúna
fyrir kvenkyns forseta. aí
Bandarísk könnun
Fleiri tilbúnir
fyrir svartan
SAFT MÁLÞING UM ALLT LAND
SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga
netnotkun barna og unglinga á Netinu og tengdum
miðlum, stendur fyrir opnum málþingum um allt
land í apríl og maí 2008.
Akureyri•
Egilsstaðir•
Ísafj örður•
Stykkishólmur•
Höfn•
Nánari upplýsingar á www.saft .is
Borganes•
Sauðarkrókur•
Vestmanneyjar•
Selfoss•
Reyðarfj örður•
SAFT MÁLÞING
ÞÚ ERT ÞAÐ SEM ÞÚ
GERIR Á NETINU