24 stundir - 05.04.2008, Page 26
26 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 24stundir
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 7. apríl 2008
Heilsuvernd á tímum
loftslagsbreytinga
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er að venju haldinn 7. apríl ár
hvert í aðildarríkjum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO). Einkunnarorð dagsins í ár eru Heilsuvernd
á tímum loftslagsbreytinga (Protecting Health from
Climate Change). Markmiðið er að beina athyglinni að
áhrifum loftslagsbreytinga á heilsufar í heiminum og búa
aðildarríkin betur undir að mæta þeim ógnunum sem þær
kunna að hafa í för með sér á komandi tímum. Á þessari
öld er því spáð að meðalhiti á jörðinni geti hækkað um
1-3,5°C vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa. Þessi hita-
breyting er mun meiri en náttúrulegar breytingar sem orðið
hafa á loftslagi síðustu þúsund árin. Þessar breytingar og
ýmislegt annað í umhverfinu munu áreiðanlega hafa áhrif
á heilsufar fólks víða um heim. Spádómar varðandi Ísland
gera ráð fyrir að áhrifin á heilsufar þjóðarinnar verði með
minna móti. Ýmislegt bendir þó til þess að heilbrigðis-
kerfið verði að vera tilbúið að mæta aukningu ákveðinna
heilsufarsvandamála á komandi áratugum, svo sem frjó-
kornaofnæmi og öðrum öndunarfærasjúkdómum.
Fundur mánudaginn 7. apríl í Norræna húsinu
kl. 15:00 - 16:40
Fundarstjóri: Gunnar Alexander Ólafsson,
stjórnsýslufræðingur.
15:00 - 15:10 Ávarp
Guðlaugur Þór Þórðarson,
heilbrigðisráðherra.
15:10 - 15:30 Áhrif hlýnunar andrúmsloftsins á
heilsufar í heiminum.
Haraldur Briem, sóttvarnalæknir
15:30 - 15:50 Veðurfarsbreytingar og lýðheilsa á
norðurslóðum.
Níels Einarsson, forstöðumaður Stofnunar
Vilhjálms Stefánssonar
15:50 - 16:10 „Loftsgæði og heilsa – niðurstöður úr
Evrópukönnuninni“
Þórarinn Gíslason, prófessor og yfirlæknir
16:10 - 16:40 Umræður og fyrirspurnir. Auk fyrir-
lesara: Sigurður Guðmundsson, landlækn-
ir, Kristín Erla Harðardóttir, framkvæmda-
stjóri Mannfræðistofnunar HÍ, og Eyþór
Hreinn Björnsson, sérfræðingur.
16:40 Dagskrárlok
Í gær heyrði ég í útvarpinu að
nú hefðu ferðaþjónustufrömuðir
bæst í hóp þeirra sem vildu ganga
í Evrópusambandið – eða öllu
heldur taka upp evruna. Það er
hin trausta mynt sem er aðal-
keppikefli flestra og þar sem lítill
vafi er á að það sé út í hött að við
getum tekið upp evru án þess að
ganga í Evrópusambandið, þá
sætta æ fleiri sig við að inn í þetta
samband verðum við að fara.
Einn karl í Seðlabankanum
Ég veit um ósköp fáa núorðið
sem vilja halda í íslensku krón-
una; þennan hálfdanska ræfil sem
er ekki bara óbrúklegur í nútíma-
viðskiptum, heldur beinlínis
hættulegur.
Kannski einn og einn karl í
Seðlabankanum. Öllu fleiri eru
það nú ekki.
Íslenskir útvegsmenn halda því
enn fram að það sé varasamt að
ganga í Evrópusambandið af því
að þá missum við yfirráð yfir
fiskimiðunum; eiginlega allir aðr-
ir meta þá hættu sem hverfandi
litla eður enga.
Svo eftir hverju bíðum við?
Þarf fleiri dýfur í peningamálum
okkar áður en við druslumst til
að sækja um aðild að þessum
evrópska klúbb?
Nei, það er einfalt – við bíðum
eftir Sjálfstæðisflokknum.
Af því að á valdatíma Davíðs
Oddssonar varð það trúaratriði í
Sjálfstæðisflokknum að utan Evr-
ópusambandsins skyldum við
standa.
Land, þjóð og tunga – króna
sönn og ein!
Og hinn húsbóndaholli flokkur
hristi höfuðið í takt við foringja
sinn – nei, ónei, inn í Evrópusam-
bandið skulum við aldrei fara!
Land, þjóð og tunga – króna
sönn og ein!
Nú eru nokkur ár að verða síð-
an Davíð fór frá og undur hægt er
Sjálfstæðisflokkurinn að losa sig
úr viðjum Evrópusambandsfóbí-
unnar. Við vitum öll að innan
flokksins er alveg áreiðanlega
meirihluti fyrir því að ganga í
sambandið og taka upp evruna en
það virðist samt ganga undarlega
seint fyrir flokkinn að snúa við
blaðinu. Og afleiðingin er meðal
annars þessi þreytandi öldudalur
sem við erum nú stödd í í pen-
ingamálum og er mun dýpri en
hann þyrfti að vera ef við hefðum
verið búin að kasta í glatkistuna
hinni asnalegu og þjóðhættulegu
krónu.
Af hverju þarf mörg misseri í
viðbót áður en Sjálfstæðisflokk-
urinn þorir að koma út úr skápn-
um og viðurkenna að okkur beri
að stefna að evru og Evrópusam-
bandi? Af hverju þarf að draga
þetta í óratíma, bara svo sjálfstæð-
ismönnum finnist þeir ekki tapa
andlitinu með því að skipta um
skoðun of snögglega.
En meðan þeir tapa ekki andlit-
inu þá töpum við peningum.
Mara hvílir á þjóðinni
Eða óttast þeir enn að hringt
verði í þá úr Svörtuloftum ef þeir
reynast of opinskáir stuðnings-
menn evrunnar og talað til þeirra
hryssingslegri röddu?
Hvað á sú mara að hvíla lengi
á þjóðinni? Hvenær ætla sjálf-
stæðismenn að sýna að þeir beri
nafn með rentu, og geti tekið
sjálfstæðar ákvarðanir án þess að
líta flóttalega um öxl til að vita
hvort þeir séu nokkuð að ganga á
svig við vilja gamla foringjans?
Eins og hans ráð hafi reynst
ýkja merkileg upp á síðkastið!
Nei, Geir Haarde ætti að taka
strax til óspilltra málanna. Ef
hann ætlar ekki að sitja uppi með
þá ímynd að hann hafi þurft að
láta ýta sér til verka, þegar við
sækjum loks um aðild að Evr-
ópusambandinu, þá ætti að móta
nú þegar nýja stefnu Sjálfstæð-
isflokksins í Evrópumálum.
Lýsa því að við skulum sækja
um aðild við fyrsta mögulega
tækifærið. Ef ekki kemur neitt
nógu vænlegt út úr aðildarvið-
ræðum, þá fellum við bara aðild-
ina í þjóðaratkvæðagreiðslu.
En það er altént ekki eftir
neinu að bíða. Víst þurfum við
að taka svolítið til hér heima hjá
okkur áður en aðild kemur til
greina, en ósk um tafarlausar að-
ildarviðræður yrði strax jákvætt
skref.
Millibilsformaður?
Í almáttugs bænum, þurfum
við að bíða enn meira tjón af
ónýtri krónu, ónýtum Seðlabanka
og stöðugu flökti í hagkerfinu áð-
ur en við gerum það sem allir
vita að er það eina rétta í stöð-
unni? Bara til að styggja ekki einn
mann?
Ef Geir Haarde tekur þetta
frumkvæði mun vegur hans í
sögubókum framtíðarinnar vaxa
stórkostlega, því get ég lofað
honum. Ef hann hummar og ha-
ar þangað til annað fólk beinlínis
hrindir honum af stað verður
hann aldrei annað en millibils-
formaður í Sjálfstæðisflokknum.
Hans er völin.
Okkar kvölin.
Geirs er völin, okkar kvölin
aIllugi Jökulsson skrifar um Evrópu-sambandið
Ef Geir Haarde
tekur þetta
frumkvæði
mun vegur
hans í sögu-
bókum fram-
tíðarinnar
vaxa stór-
kostlega, því get ég lofað
honum.
Geir Haarde „Við vitum öll
að innan flokksins er alveg
áreiðanlega meirihluti fyrir
því að ganga í sambandið
og taka upp evruna.“
24stundir/Brynjar Gauti