24 stundir - 05.04.2008, Page 40
40 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 24stundir
Hefurðu mildast með árunum?
„Ég hef vonandi eitthvað vaxið
að þroska. Stjórnmálaskoðanir
mínar hafa hins vegar ekki breyst í
meginatriðum. Ég er þeirrar skoð-
unar að menn verði að læra af
mistökum sínum í stað þess að
endurtaka þau. Ég er líka þeirrar
skoðunar að peningar skipti ekki
öllu í lífinu þannig að ég sé ekki
mjög mikið eftir þeim peningum
sem ýmsir hafa verið að reyta af
mér. Það er tvennt sem skiptir
meira máli en peningar og það er
góð heilsa og góðir fjölskylduhag-
ir. Ég held að það sé það sem færi
mönnum hamingjuna. Ég ætla
hins vegar ekki að gera lítið úr
hlutverki peninga því þeir geta
verið afskaplega gagnlegir til að
gera lífið þægilegra og skemmti-
legra.“
Sjálfstæðisflokkurinn er kominn
með nýjan formann og nýir menn
eru í forystuliði Sjálfstæðisflokksins.
Finnst þér þú stundum vera utan-
veltu þar?
„Nei, ég er mjög sáttur við for-
ystuskiptin í Sjálfstæðisflokknum.
Davíð Oddsson og Geir Haarde
eru báðir góðir vinir mínir. Við er-
um í sama vinahópnum eða sömu
klíkunni eins og sumir myndu
segja. Allt frá því snemma á átt-
unda áratugnum höfum við hist
nokkrir saman hálfsmánaðarlega í
hádeginu og Davíð og Geir eru þar
á meðal. Sá hópur sem ég tilheyri
hefur ekki misst völdin því Geir
Haarde var hinn eðlilegi eftirmað-
ur Davíðs sem studdi hann mjög
eindregið. Það er því ekki hægt að
tala um þennan hóp í þátíð.“
En vingastu nokkuð við fólk sem
hefur ekki sömu pólitísku skoðanir
og þú?
„Þetta er misskilningur. Í fé-
lagsvísindadeild, þar sem ég kenni,
eru fáir með sömu stjórnmála-
skoðanir og ég en eru samt góðir
vinir mínir. Ég á ekkert erfitt með
að umgangast fólk af öðru póli-
tísku sauðahúsi. En lengsta og
óslitnasta vináttan er við pólitíska
baráttufélaga mína. Ég á marga
góða vini og í mínum vinahópi er
mikið mannval.“
Hef séð drauma mína rætast
Hvað veitir þér ánægju í lífinu?
„Ég varð mjög snemma bóka-
ormur, hvarf inn í heim bókanna.
Ég hef enn mjög gaman af að lesa
og hlakka til að fara í langar flug-
ferðir vegna þess að þá get ég lesið
hnausþykkar bækur. Eftirlætis-
bækur mínar eru vel skrifaðar ævi-
sögur og sagnfræðilegt efni, þótt
ég hafi líka gaman af skáldsögum.
Í gamla daga hafði ég mjög gaman
af Tolstoy og Dostojevskí en nú
finnst mér bækur þeirra vera allt
of dramatískar, sérstaklega Dostoj-
evskís; nánast fyrir hrifnæma ung-
linga. Ég les frekar gömlu bresku
höfundana, Hume, Macaulay lá-
varð og Dickens, en ég er líka núna
að lesa Hippolyte Taine sem skrif-
aði margar bækur um frönsku
byltinguna.
Ertu lífsnautnamaður?
„Já, ég held að það sé óhætt að
segja það. Ég hef gaman af góðum
mat og góðum vínum. Ég hef verið
mikill gæfumaður því mér hefur
tekist að sjá flesta drauma mína
rætast. Ég er í starfi sem mér finnst
skemmtilegt og get varla hugsað
mér betra starf eða ánægjulegra.
Ég hef nóg fyrir mig þótt ég eigi
litlar eignir eftir þessi ósköp. Ég
þarf ekkert að kvarta.“
Hvaða manneskja hefur skipt þig
mestu máli í lífinu?
„Ég myndi fyrst nefna móður
mína. Hún var einstaklega góð
móðir og hafði mikil áhrif á mig.
Síðan nefni ég minn elskulega vin,
Davíð Oddsson, sem er frábær
maður, sterkur og hlýr og afar
framsýnn. Ef einhver maður hefur
sjöunda skilningarvitið fræga þá er
það Davíð. Svo verð ég að nefna
Friedrich von Hayek sem var minn
lærimeistari, djúpvitur maður, og
sömuleiðis Milton Friedman.“
Geturðu sagt mér eitthvað af
þessu góða fólki?
„Ja, menn kunna nú líklega ekki
að meta foreldra sína að fullu fyrr
en þeir eru allir. Til dæmis kunni
ég ekki alltaf að meta matinn hjá
móður minni, mér fannst matur-
inn oft betri hjá vinkonu hennar
hinum megin gangsins, sem líka
var hálfgerð fósturmóðir mín.
Þegar mér fannst maturinn vond-
ur hjá mömmu, fór ég yfir. Þá
laumaðist móðir mín með matinn
þangað, húsfreyjan þar setti hann
á disk og ég borðaði með bestu
lyst. Þær sögðu mér frá þessu hlæj-
andi mörgum árum seinna.
Það vita auðvitað allir hversu
snjall og orðheppinn Davíð er, svo
að þar er engu við að bæta. En
varðandi Hayek og Friedman þá er
mér enn minnisstætt þegar ég sat
kvöldverð með Hayek í London
vorið 1985. Það var svo margt sem
hann sagði mér og vinum mínum
frá Oxford sem vorum komnir
þangað til að finna hann. Til
dæmis sagði hann okkur hvernig
hann hefði afvopnað frú Thatcher.
Hún var lærimær hans, ef svo má
segja, og þegar hún var nýtekin við
völdum frétti hún að hann væri
staddur í London svo að hún bauð
honum í Downingstræti 10. Hún
tók á móti honum í anddyrinu og
sagði með sinni sérstöku rödd:
„Prófessor Hayek, ég veit alveg
hvað þér ætlið að segja við mig.
Þér ætlið að segja að ég hafi ekki
gert nóg. Og auðvitað hafið þér al-
veg rétt fyrir yður um þetta.“
Í þessum kvöldverði sagði Ha-
yek okkur í smáskálaræðu: „Ungu
menn! Mér finnst vænt um að þið
skuluð vilja hitta mig og að þið
skuluð lesa bækurnar mínar. En ég
hef aðeins eina ósk. Ekki verða ha-
yekistar. Ég hef tekið eftir því að
marxistarnir voru miklu verri en
Marx og keynesistarnir miklu verri
en Keynes. Haldið þið áfram að
vera gagnrýnir í hugsun og gangist
ekki á hönd neinum rétttrúnaði.“
Ég veit nú ekki hvort mér hefur
alltaf tekist að fara eftir þessu boð-
orði Hayeks.“
Tala ekki um einkalífið
Þú sagðir fyrr í viðtalinu að fjöl-
skyldan skipti gríðarlegu máli í lífi
hvers einstaklings, en nú ert þú ein-
hleypur.
„Hvað veist þú um það?“
Af hverju talarðu aldrei um
einkalíf þitt?
„Það er ekki vegna þess að ég
hafi eitthvað til að skammast mín
fyrir. Ég veit að mér hættir til að
vera sjálfhverfur en ég er að reyna
að vinna bug á því. Eitt af því sem
ég geri til þess er að tala ekki um
einkalíf mitt.“
Þú hefur dvalið þó nokkurn tíma
í Brasilíu. Hvað er svona heillandi
við Brasilíu?
„Starf háskólaprófessors sem er
virkur í rannsóknum er mjög oft
alþjóðlegt. Ég hef ferðast mikið,
þar á meðal verið mikið í Brasilíu.
Ég gerði það líka að gamni mínu
fyrir nokkrum árum að læra
portúgölsku og það hefur reynst
mér vel. Ég á þar fjölmennan vina-
hóp og mál hafa þróast þannig að
Brasilía er nánast eins og mitt
annað heimili. Mér líður afskap-
lega vel þar.“
Þú ert sívinnandi. Að hverju ertu
að vinna núna?
„Ég er að þýða Svartbók komm-
únismans sem er yfirlitsrit sem
nokkrir franskir fræðimenn tóku
saman um sögu kommúnismans.
Ég skrifa íslenskan viðauka við
bókina. Ég er líka að skrifa bók um
hina miklu breytingu á Íslandi
sem varð frá 1991 til 2007 og
áhrifin á kjör almennings. Svo geri
ég ráð fyrir því þegar dómsmálum
lýkur að skrifa um þau, og þar
mun sjálfsagt ýmislegt koma á
óvart.“
Áttu þér lífsmottó?
„Ætli ég verði ekki að hafa sama
mottó og er í lok myndinnar Life
of Brian: Always look on the
bright side of life.
Gæfumaður „Mér hefur
tekist að sjá flesta
drauma mína rætast.“
a
Ég er í starfi sem
mér finnst
skemmtilegt og
get varla hugsað mér
betra starf eða ánægju-
legra. Ég hef nóg fyrir
mig þótt ég eigi litlar
eignir eftir þessi ósköp. a
Ég veit að mér
hættir til að vera
sjálfhverfur en
ég er að reyna að vinna
bug á því. Eitt af því sem
ég geri til þess er að tala
ekki um einkalíf mitt.
24stundir/RAX