24 stundir - 05.04.2008, Síða 42
Mjög stórt og flókið í nefi þar sem helst má finna sedrusvið, tóbak, trufflur, skógarbotn, bláber og
brómber svo eitthvað sé nefnt. Gífurlega ríkt í munni með þroskuðum ávöxtum, skógarberjasultu og
þurrkuðum kryddjurtum. Tignarleg tannín skapa mýkt í munni og áhrifamikill þéttleiki
er í fullkomnu jafnvægi við sýru sem gefur heillangan endi.
Algjört matarvín sem gengur vel með öllum þungum kjötréttum, sérstaklega villi-
bráð og þungum ostum. Tilbúið til neyslu strax en best að geyma í 16-18 ár.
Bodegas Valduero er meðal yngri húsanna í vínheiminum til að hafa
skapað sér svo stórt nafn fyrir áreiðanlega framleiðslu á eðalvínum. Stofn-
að árið 1984 í þorpinu Gumiel de Marcado (í Ribera del Duero-
héraðinu) og rekið af Garcia Viadero-fjölskyldunni sem hefur gert
nafn hússins að samasemmerki fyrir stöðugleika og gæði. Öll vín-
ræktin fer fram í 850 metra hæð yfir sjávarmáli og er byggð ein-
ungis á Tinto Fino-þrúgunni sem er einnig þekkt. Eftir margra
ára reynslu hafa vínframleiðendur Valduero komist að þeirri
niðurstöðu að Tinto Fino dafnar best í bandarískri eik og þar
af leiðandi fer öll þroskun fram í henni, ýmist nýrri eða gamalli.
Valduero Reserva er geymt í 20 mánuði á eik og 16 mánuði í
flösku fyrir sölu.
Þrúga: Tempranillo. Land: Spánn. Hérað: Ribera del Duero.
2.720 kr.
Vín vikunnar
Elísabet Alba Valdi-
marsdóttir vínþjónn
Valduero Reserva 2000
42 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Á undanförnum árum hafa
margir lært listina að elda góðan
mat hjá Fríðu Sophiu Böðvars-
dóttur enda hefur hún verið dug-
leg að halda alls kyns matreiðslu-
námskeið samhliða störfum
sínum sem heimilisfræðikennari í
Víkurskóla í Grafarvogi.
Jurtir í mat og te
Í skólanum hefur Fríða verið
óhrædd við að brydda upp á nýj-
ungum og samtvinna heimilis-
fræðina við jurtafræðslu og úti-
kennslu.
„Ég kenni krökkunum til
dæmis að tína jurtir úr nátt-
úrunni, meðhöndla þær og mat-
reiða úr þeim. Þeim finnst rosa-
lega skemmtilegt og spennandi
að geta notað þær í mat og búið
til te,“ segir Fríða og bætir við að
jafnframt sé áhersla lögð á hollt
mataræði í heimilisfræðikennsl-
unni.
Á undanförnum árum hefur
Fríða einnig haldið fjölda mat-
reiðslunámskeiða í Kvöldskóla
Kópavogs. Námskeiðin eru af
ýmsu tagi og hefur hún til dæmis
kennt fólki að matreiða græn-
metisrétti, hráfæði, bökur, súpur
og brauð. Þá hefur hún boðið
upp á sérstök námskeið í mat-
argerð fyrir karlmenn, jafnt byrj-
endur sem lengra komna.
Karlar læra að elda
„Mig langaði til að prófa eitt-
hvað nýtt og ég er svolítið fyrir
að demba mér út í djúpu laugina
og sjá hvað gerist,“ segir Fríða
um tildrög þess að hún ákvað að
halda slíkt námskeið. „Þetta er
mjög vinsælt og skemmtilegt
námskeið. Ég kenni þeim allt frá
grunni upp í að elda stórsteik,“
segir Fríða og bætir við að bak-
grunnur þátttakenda sé mjög
misjafn. „Þetta eru bæði giftir og
einhleypir menn, strákar sem eru
að byrja að búa og svo framvegis.
Svo er svolítið um að konurnar
gefi þeim námskeiðið í afmælis-
eða jólagjöf. Það er í tísku
núna,“ segir Fríða Sophia sem
deilir að lokum uppskriftum að
þremur einföldum en góðum
réttum með lesendum 24 stunda.
Kennir körlum að elda Fríða
Sophia Böðvarsdóttir heldur meðal
annars matreiðslunámskeið sem
eru sérstaklega ætluð karlmönnum.
Fríða Sophia kennir fólki listina að elda
Kemur börnum og
körlum á bragðið
Fríða Sophia Böðv-
arsdóttir kennir jafnt
körlum að elda fljótlega
rétti og grunnskólabörn-
um að nýta jurtir úr
næsta nágrenni til matar-
gerðar.
➤ Fríða fékk áhuga á grænmet-ismat þegar hún bjó í Dan-
mörku og var um tíma græn-
metisæta.
➤ Fríða hefur haldið námskeið íKvöldskóla Kópavogs í 17 ár
og unnið sem heim-
ilisfræðikennari í sex ár.
FRÍÐA SOPHIA
24stundir/Kristinn
LÍFSSTÍLLMATUR
matur@24stundir.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
Það er meira
í Mogganum
í dag
reykjavíkreykjavík
Ópera byggð á lífi
Önnu Nicole
Smith er nú í
smíðum. Óperan
verður að öllum
líkindum flutt í
Konunglegu óp-
erunni í London
og fellur að sögn
handritshöfundar afar vel að óp-
eruforminu. Nema hvað?
» Meira í Morgunblaðinu
Harmleikur á svið
Eftir margra
vikna stríð
Mennta-
skólans í
Reykjavík og
Mennta-
skólans í
Hamrahlíð hafa ræðulið skólanna
lagt niður vopnin. Ræðuliðin féllust
í faðma á Klambratúni í gær og
hétu hvort öðru heiðarlegri keppni.
» Meira í Morgunblaðinu
Ræðulið fallast í faðma
Magni Ásgeirsson tekur við af
Jónsa og syngur titillagið í nýjum
Latabæjarþáttum sem sýndir
verða um allan heim næsta vetur.
» Meira í Morgunblaðinu
Magni flytur í Latabæ
Laugardagur 5. apríl 2008