24 stundir - 09.04.2008, Síða 10

24 stundir - 09.04.2008, Síða 10
Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Yfirmaður herliðs Bandaríkjanna í Írak hvatti til þess að hætt yrði að fækka hermönnum í landinu í sumar. Sagði David Petraeus hers- höfðingi við upphaf vitnaleiðslna fyrir þingnefnd að þeim umbótum sem náðst hefðu í öryggismálum í Írak að undanförnu væri stefnt í voða ef brotthvarf Bandaríkjahers bæri of brátt að. Þingnefndin mun kalla til fjölda sérfræðinga í málefnum Íraks á næstu dögum, en athygli manna beinist ekki síður að þeim sem bera upp spurningarnar. Forsetafram- bjóðendurnir þrír eru taldir líklegir til að nýta sér tækifærið til að koma málefnum sínum á framfæri. 45 daga hlé á brotthvarfi Í lok júlí verða þeir viðbótarher- menn sem Bush Bandaríkjaforseti sendi til Íraks á síðasta ári komnir til síns heima. Að þeim tíma loknum fer Petraeus fram á að ekki verði fækkað í herliðinu um 45 daga skeið. Segist hann vilja nota þann tíma til að styrkja og meta heraflann. „Að tímabilinu loknu munum við halda áfram matsferli til að kanna aðstæður á svæðinu og meta hvenær við getum mælt með frekari fækkun í liðinu,“ segir Petraeus. Hershöfðinginn lagði á það áherslu að ástandið í Írak væri enn afskaplega viðkvæmt. Hætt væri við að hópar hliðhollir al-Qaeda eða herskáir síta-múslímar ryfu vopnahlé sem klerkurinn Moq- tada al-Sadr hefur fyrirskipað. Opið í annan endann Formaður þingnefndarinnar, demókratinn Carl Levin, segist ótt- ast að áform Petraeusar geti fram- lengt dvöl herliðsins ótímabundið og gert stjórn Íraks óþarflega háða því. Ryan Crocker, sendiherra Banda- ríkjanna, hefur hins vegar bent á að undanfarið hafi íraskar öryggis- sveitir sýnt hvers þær eru megnug- ar, sem hann segir þær hafa sýnt í nýlegum bardögum í Basra. „Þetta voru íraskar aðgerðir, skiplagðar og framkvæmdar af Írökum,“ segir Crocker. „Þetta eru aðgerðir sem Írakar hefðu einfald- lega ekki getað staðið í fyrir stuttu.“ Næsti forseti ræður Hverjar sem niðurstöður þing- nefndarinnar verða er ljóst að fram- hald stríðsins í Írak verður í hönd- um eins þremenninganna sem nú berjast um forsetaembættið. Öld- ungadeildarþingmennirnir Clin- ton, McCain og Obama munu með spurningum sínum í þingnefndinni koma afstöðu sinni til Íraks á fram- færi. Vill halda lið- styrk í Írak  Bandarísk þingnefnd hefur hafið vitnaleiðslur um ástand mála í Írak  Hershöfðingi hvetur stjórnmálamenn til að fara sér hægt ➤ Nú eru um 160.000 banda-rískir hermenn í Írak. 20.000 þeirra munu hverfa á brott fyrir lok júlí. ➤ Viðbótarherafli sem GeorgeBush sendi til landsins er tal- inn hafa skilað bættu örygg- isástandi, en deilt er um hvort það sé til frambúðar. ➤ Petraeus óttast að ávinninguraf viðbótarheraflanum fari fyrir lítið ef herlið er dregið of skjótt til baka. BANDARÍKIN Í ÍRAK Nordic-Photo/AFP Petraeus hershöfðingi Hvetur yfirmenn sína til að fara sér hægt í að fækka hermönnum í Írak. 10 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir Borgarmálaráð og Samfylkingarfélagið í Reykjavík bjóða til hugmyndasmiðju miðborgar miðvikudaginn 9. apríl kl. 20.30. Húsið opnað kl. 20.00. Smiðjustjórar: Oddný Sturludóttir borgar- fulltrúi og Sverrir Bollason verkfræðingur með þátttöku íbúa, listafólks og áhugasamra um skapandi miðborg. Opin hugmyndasmiðja miðborgar Allir velkomnir Á síðasta ári voru 451.300 menn kallaðir til herþjónustu í Þýska- landi. Úr þeim hópi sá herinn sér aðeins fært að ráða tæp 55% til starfa, sem er lægsta hlutfall í sögu hersins. Hinir stóðust ekki þær kröfur sem gerðar eru til líkamlegs og andlegs atgervis hermanna. Peter Tobiassen, framkvæmda- stjóri samtaka herkvaðningarand- stæðinga, telur þetta hlutfall til marks um minnkaða þörf fyrir hermenn. Telur hann pólitískan vilja skorta til að fækka þeim sem kallaðir eru til herþjónustu, og því sé gripið til þess ráðs að herða inn- tökuskilyrði til að fækka í hópnum. Hefur hlutfall þeirra sem ekki komast í þýska herinn hækkað úr 17% í 45% á síðustu 5 árum, en er í kringum 10% í Evrópuríkjum. aij Þýski herinn vísar mönnum unnvörpum frá Nærri helmingur stenst ekki kröfur Fjöldi þeirra sem handteknir voru vegna gruns um tengsl við hryðjuverkasamtök tvöfaldaðist innan Evrópusambandsins árið 2007. Þeir sem lögreglan hafði af- skipti af tengdust í langflestum til- fellum hreyfingum aðskilnaðar- sinna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Evrópu- lögreglan Europol kynnti í gær. Á síðasta ári bárust Evrópulög- reglunni tilkynningar um 583 til- ræði og 1044 einstaklinga sem handteknir voru. Af þessum mál- um áttu 89% tilræðanna rætur að rekja til aðskilnaðarhreyfinga á Spáni og í Frakklandi. Öfgasinnuðum múslímum sem lögreglan gómaði fækkaði úr 257 árið 2006 í 201 árið 2007. Segir Max-Peter Ratzel, yfirmaður Evr- ópulögreglunnar, þá gjarnan sækja styrk í pakistanska hópa sem tengj- ast al-Qaeda. Einnig ber á tengslum við hópa í Afganistan, Írak og Sómalíu. Í öllum hópum grunaðra voru flestir með evrópskt ríkisfang. „Það bendir til þess að heimaöldum hryðjuverkamönnum sé að fjölga innan ESB,“ segir Ratzel. aij Sífellt fleiri handteknir vegna hryðjuverka Tvöfalt í Evrópu STUTT ● 6.000 skilvindur Mahmoud Ahmadinejad fagnaði kjarn- orkudegi Írans með því að til- kynna að vinna væri hafin við að fjölga skilvindum sem not- aðar verða við auðgun úrans. Þegar er talið að stjórnvöld hafi yfir að ráða 3.000 skilvindum í Natanz, en þeim á að fjölga upp í 6.000. ● Smitaðist af syni sínum Kínverji sem greindist með fuglaflensu smitaðist að öllum líkindum af syni sínum. Þetta eru niðurstöður vísinda- manna sem hafa rannsakað feðgana. Þeir telja ákveðna huggun vera í því að eingöngu faðirinn hafi smitast. Það bendi til þess að veiran hafi ekki stökkbreyst í form sem eigi mjög auðvelt með að smitast á milli manna. Því séu líkur á faraldri enn litlar. Ungbörn sem sofa minna en tólf stundir á sólar- hring eru tvisvar sinnum líklegri til að vera of þung við þriggja ára aldur en þau sem sofa lengur. Þetta eru niðurstöður rann- sóknar sem nýlega voru kynntar. „Sífellt fleiri rannsóknir benda til þess að of lítill svefn geti haft meiri áhrif á heilsu okkar en áður var talið,“ segir Elsie Taveras, einn vísindamannanna sem stóðu að rann- sókninni. „Nú höfum við komist að því að þessi neikvæðu áhrif eiga jafnvel við kornabörn. Sífellt verður erfiðara að fá nægan svefn, þar sem sjónvarp, netið og tölvuleikir eru í herbergjum þar sem börn sofa,“ segir Taveras. „Nið- urstöður okkar benda til þess að foreldrar ættu að reyna hvað þeir geta til að bæta nætursvefn barna sinna.“ aij Svefnleysi leiðir til offitu Dómstóll í Texas hefur kveðið upp úr um að 5 dala nefskattur á hvern viðskiptavin skemmtistaða þar sem nektardans fer fram standist ekki stjórnarskrá Bandaríkjanna. Gjaldtökunni var ætlað að afla fjár til áætlunar gegn kynferðisofbeldi og að tryggja ósjúkratryggðum heilbrigisþjónustu. aij Súluskattur dæmdur af Finnskir vísindamenn standa ráðþrota frammi fyrir mikilli fækkun úlfa í austurhluta lands- ins. Áætla þeir að úlfastofninn telji nú um 200 dýr, en hafi verið um 250 fyrir ári. Lét ráðuneyti landbúnaðar og skógræktar meta stofnstærðina í janúar og febrúar vegna þess að talið var að dýrunum hefði fjölg- að, en annað kom á daginn. „Töl- urnar hefði mátt nota til að út- hluta veiðileyfum til að halda stofninum í skefjum, en þess ger- ist ekki þörf,“ segir Ilpo Kojala, starfsmaður ráðuneytisins. aij Finnskum úlfum snarfækkar

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.