24 stundir - 09.04.2008, Side 23

24 stundir - 09.04.2008, Side 23
24stundir MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 23 Í framhaldi af hugsjónastarfi og mikilli vinnu hefur Leikskólinn Álfaheiði í Kópavogi náð að upp- fylla nauðsynleg skilyrði til að fá að flagga Grænfánanum. Fáninn er alþjóðlegt merki um gott um- hverfisstarf og menntun í skólum og mun Landvernd afhenda leik- skólanum hann við hátíðlega at- höfn á degi umhverfisins þann 25. apríl nk. Tímabil eftir árstíðum Umhverfisnefnd starfar við skólann og leika elstu börnin þar stórt hlutverk. Að öðru leyti taka öll börn leikskólans þátt í þessu skemmtilega starfi eftir aldri, áhuga og getu. „Leikskólaárinu er skipt í fjögur tímabil eftir árstíð- unum sem hefur opnað augu barnanna fyrir náttúrunni og því sem hún hefur upp á að bjóða hverju sinni. Við búum til moltu úr lífrænum úrgangi með góðum árangri og í mörg ár höfum við ræktað kartöflur og tínt rifsber og sólber í garðinum okkar. Þessi störf hafa vakið mikla ánægju hjá börnunum og starfsfólki,“ segir El- ísabet Eyjólfsdóttir leikskólastjóri. Listverk úr umbúðum Á leikskólanum er allt sorp flokkað og endurnýtt eins mikið og hægt er. Þannig skapa börnin heilu listaverkin úr umbúðum og öðrum efniviði sem til fellur sem annars færi beint í ruslið. „Við leggjum mikla áherslu á að bæði börn og starfsfólk geti notið og upplifað nánasta umhverfi á já- kvæðan, fróðlegan og skemmti- legan hátt. Gönguferðir og útivera skipa stóran sess í starfi leikskólans og á hver barnahópur sitt svæði í næsta nágrenni sem heimsótt er vetur, sumar, vor og haust. Þá minnum við okkur á árs- tíðaskiptin með því að syngja fal- leg lög. Núna eru vor- og sum- arlögin því farin að óma um allan skólann, t.d. Lóan er komin og Vertu til er vorið kallar á þig,“ segir Elísabet. maria@24stundir.is Áhersla á tengsl við náttúruna á Álfaheiði Grænfánanum flaggað Sýning á bókverkum sem elstu börnin á leikskólanum Sæborg hafa gert var nýlega opnuð í bóka- versluninni Útúrdúr á Njálsgötu 14. Börnin fengu frjálsar hendur við gerð bókverkanna og fjalla þau um ýmis viðfangsefni. Á sýning- unni eru sjóræningjabækur, prins- essubækur, jólasögubækur og strumpasögur. Börnin sáu sjálf um textasmíði og myndskreytingar og því er hver bók einstakt listaverk. Sýningin stendur til 12. apríl næstkomandi. dista@24stundir.is Börnin á Sæborg með sýningu á bókverkum Bókverk barna í Útúrdúr „Börn græða lítið á metnaði og ofurkappsemi foreldra þegar kemur að því að þroska gáfur þeirra,“ segir Philip Adey, pró- fessor í Kings College í Bretlandi. Snemma á níunda áratugnum leiddu rannsóknir í ljós að hlustun á klassíska tónlist jók einbeitni nem- enda við lausn verkefna. Í dag hafa nýlegar þýskar rann- sóknir leitt í ljós að áhrif hlustunar á tónlist eru skammtímaáhrif. Áhrif á rúmskynjun og rökhugsun endast aðeins í tuttugu mínútur. Enginn deilir þó um það að tón- list sé þroskandi og gefandi iðja fyrir börn en nú þykir af og frá að álykta að börnum vaxi hrein snilligáfa við að hlusta á klassíska tónlist og eru foreldrar varaðir við að beita börn sín of miklum þrýstingi við að hlusta á tónlist og læra á hljóðfæri. Of mikið áreiti geti valdið þeim kvíða og örðugleikum með svefn. dista@24stundir.is Klassísk tónlist og litlir snillingar? Foreldrar geta slakað á Börnin á Álfaheiði Eru í nánum tengslum við náttúruna. Börn geta notið góðs af því að umgangast gæludýr og þær rann- sóknir sem gerðar hafa verið sýna fram á að börn sem umgangast gæludýr séu betur stödd á tilfinn- ingasviðinu sem og því félagslega. Gæludýr eru nú til dags orðin mjög algeng á heimilum fólks. Ástæðan fyrir því að fjölskyldur vilja halda gæludýr getur þó verið af ýmsum toga, bæði af fé- lagslegum og tilfinningalegum ástæðum en einnig sem áhugamál en svo eru æ fleiri fjölskyldur sem bætast í hópinn sem eignast gælu- dýr í þeim ákveðna tilgangi að auka vellíðan og færni barna sinna. Í Joseph Clarke School, Highams Park í London hafa verið gerðar rannsóknir til margra ára á því hvort nálægð við dýr skipti börn máli hvað varðar vellíðan þeirra og færni. Í skólanum eru sjónskertir og blindir nemendur sem að auki stríða við námsörðugleika. Í ljós kom að þau börn sem fengu dýr til að annast sýndu fljótt aukið sjálf- stæði, meiri einbeitingu og fundu til slökunar og vellíðunar við að annast dýrin. Margir leikskólar halda dýr Margir leikskólar hér á landi hafa ákveðið að halda gæludýr fyrir börn. Þeirra á meðal er Urðarhóll, heilsuleikskóli í vesturbæ Kópa- vogs. „Í starfi skólans hafa börn komist í tæri við dýr og fengið að annast þau, við fengum hér unga fyrir páskana til að mynda. Börnin fylgdust með ungunum klekjast úr eggi og vaxa úr grasi. Þetta fannst þeim spennandi og þau sýndu dýr- unum mikla athygli,“ segir Sigrún Hulda Jónsdóttir leikskólastjóri. Börn njóta góðs af því að annast gæludýr Félagsfærni eykst Mig langar svo í hund Börnum er hollt að hugsa um dýr. Ef heimilis- aðstæður leyfa ættu for- eldrar að hugsa um að bæta við fjölskyldu- meðlimi. Ungar á Urðarhóli Krakkarnir önnuðust ungana vel. 11. apríl Auglýsingasímar: Katrín Laufey 510 3727 kata@24stundir.is Kolbrún Dröfn 510 3722 kolla@24stundir.is Hafðu samband og fáðu gott pláss fyrir auglýsinguna þína Brúðarblaðið Sérstakt brúðarblað fylgir með 24 stundum föstudag- inn 11. apríl. Rætt verður við verðandi brúðhjón og hjón sem hafa verið gift lengi og rifja upp brúð- kaupsdaginn. Spurt er hvort stóru brúðkaupsveislurnar séu að víkja fyrir litlum, fá- mennum veislum? Við fjöll- um um sveitabrúðkaup og giftingu hjá sýslumanni. Nýjustu brúðarkjólarnir, tert- urnar og hver eru vinsælustu lögin í brúðkaupum? Það verður fjölbreytt og skemmtilegt efni í brúðar- blaði 24 stunda.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.