24 stundir - 09.04.2008, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir
Orðið nei verður gjarnan vin-
sælasta orðið í orðaforða smá-
barnsins. Með þessu vill það
sýna fram á fyrstu merki um
sjálfstæði sitt en þetta getur
hins vegar gert foreldra al-
gjörlega brjálaða eða að minnsta
kosti pirraða. Nokkur hefð-
bundin dæmi um slíkan mót-
þróa eru að barnið vill ekki láta
festa sig í kerrunni eða vill ekki
borða mat sem því fannst góður
í síðustu viku. Misjafnt er hve
lengi mótþróaskeiðið varir en
það reynist sumum foreldrum
mjög erfitt að höndla. Til að
barnið svari ekki eingöngu neit-
andi skaltu gefa því takmarkaða
valmöguleika. Spyrðu það hvort
viltu frekar skinku eða ost á
samlokuna? Frekar en: viltu ost
eða skinku? Sé barnið með-
óþekkt, gefðu því þá aðra kosti
eins og að það megi ekki lita á
vegginn en það megi hins vegar
lita í litabókina eða á blað.
Mundu loks að halda í jákvætt
viðhorf, sjá það góða í barninu
og hrósa því fyrir góða hegðun.
maria@24stundir.is
Nei, nei, nei ég vil ekki svona
Mótþróaskeið
smábarna
➤ Það hjálpar bæði þér ogbarninu ef matar- og svefn-
tímar eru reglulegir. Þannig
verður barnið síður pirrað.
➤ Reyndu að róa barnið meðþví að dreifa athygli þess og
láta það einbeita sér að ein-
hverju spennandi eins og að
einhver sé að koma í heim-
sókn.
SMÁBÖRNReytir þú hár þitt yfir
barninu þínu sem segir
bara nei og er ekkert
nema óþekktin? Vill
ekki borða eða sitja
kyrrt? Barnið er bara að
reyna að sýna sjálfstæði
sitt þó svo að þú gætir
haldið annað.
Jú, víst Ég ætla að fara
í þessum búningi í leik-
skólann alveg sama
hvað þú segir!
Vorið er rétt handan við hornið
og því kominn tími til þess að
dusta rykið af útileikföngunum.
Körfuboltarnir, fótboltarnir, línu-
skautarnir, sippuböndin og tram-
pólínin hafa beðið í geymslunni og
nú er um að gera að drífa sig út og
hreyfa sig.
Spennandi fjölskyldukeppni
Útileikir hafa marga kosti fram
yfir skipulagðar íþróttaæfingar en
stærsti kosturinn er að fjölskyldan
getur leikið sér saman. Fimm
manna fjölskylda getur til dæmis
spilað hörkuspennandi körfu- eða
fótboltaleik. Sigurliðið myndi þá
slaka á eftir kvöldmatinn á meðan
tapliðið vaskar upp og gengur frá.
Gott ráð er að allir í fjölskyld-
unni finni út hvað þeim finnst
skemmtilegast að gera og fjöl-
skyldan reyni svo að skiptast á að
skipuleggja íþróttadag með mis-
munandi þemu þannig að allir fái
eitthvað við sitt hæfi. Möguleik-
arnir eru nær ótakmarkaðir ef allir
taka sig saman.
Hraðinn í samfélaginu er slíkur
að oft gleymist að fjölskyldubönd-
in þarf að rækta eins og blóm ef
þau eiga að dafna og standast tím-
ans tönn. Fjölskylduleikir eru sér-
staklega góðir til þess að skapa
minningar sem hægt er að ylja sér
við þegar börnin yfirgefa hreiðrið í
lengri eða skemmri tíma.
iris@24stundir.is
Íþróttir eiga ekki bara heima í félagsheimilum íþróttafélaganna
Sumaríþróttamót fjölskyldunnar
Hoppað Börn fá hreyf-
ingu með því að hoppa.
24stundir/RAX
„Bragðast hollur matur betur í
Latabæjarumbúðum,“ er spurning
sem Ingibjörg Gunnarsdóttir,
matvæla- og næringarfræðingur,
velti upp á fyrirlestri í Háskóla Ís-
lands í gær en Ingibjörg telur að
framboð á hollum mat fyrir börn
sé ekki nægjanlegt. „Það sem er
verið að bjóða börnum núna eru
alls ekki bestu vörurnar. Ég held
að menn hafi ekki þorað að ganga
alla leið. Því velti ég fyrir mér hve
langt er hægt að ganga í hollust-
unni með Latabæjarmyndir á um-
búðunum. Er ekki hægt að ganga
aðeins lengra ef hluti af ímyndinni
er fallegar umbúðir og eitthvað
skemmtilegt?“ segir Ingibjörg og
tekur það fram að hún vinni ekki
fyrir Latabæ en Rannsóknarstofa í
næringarfræði stefni að rann-
sóknum og þróunarvinnu í sam-
starfi við Latabæ. „Við höfum
áhuga á að kanna hvort matur í
Latabæjarumbúðum bragðast bet-
ur en Latibær hyggur á kynningu á
hollum vörum fyrir börn. Mitt
áhugasvið er að rannsaka hvaða
áhrif svona markaðssetning getur
haft áhrif á mataræði barna og
vilja barna til að borða hollan mat.
Auðvitað má gagnrýna markaðs-
setningu sem beint er að börnum
og hún hefur verið gagnrýnd mjög
mikið, ekki síst á matvælasviðinu
því vörur sem eiga að höfða til
barna hafa oft verið lélegar, með
mikið af mettaðri fitu, sykri og
salti. Í þessum vörum verður því
virkilega passað upp á að vörurnar
verði með því besta í sínum
flokki.“
Ingibjörg segir að vitanlega sé til
mikið af hollum matvörum en oft
hefur neytandinn ekki næga þekk-
ingu til að velja rétt. „Þekking Ís-
lendinga og íslenskra neytenda á
næringarfræði er ekki nógu góð og
eins vantar merkingar á matvæli
svo að auðveldara sé að velja rétt.“
svanhvit@24stundir.is
Skortur á hollum matvörum fyrir börn
Bragðast Latabæjarhollusta betur?
Hollusta Hafa umbúðir
og markaðssetning áhrif
á mataræði barna?
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 www.rumgott.is
Gel/ethanOl
aRineldStæði í
SumaRbúStaðinn
eða heimilið.
ReyKlauS OG
lyKtaRlauS
byltinG í SVefnlauSnum
tilbOðSdaGaR - VaxtalauS lán í 6 mánuði
55
ára
Húsgagnavinnustofa rH
Frí legugreining og
fagleg ráðgjöf um val
á heilsudýnum.
20-50%
afSláttuR