24 stundir - 09.04.2008, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Er ekki eitthvað bogið við það að Heimdellingar samþykki sérstaka
ályktun til að taka undir með formanni Samfylkingarinnar og brýni ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins til að fylgja hennar stefnu? Það gerðist í síðustu
viku þegar stjórn Heimdallar tók undir hugmyndir Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur um lækkun innflutningstolla, neytendum til hagsbóta.
Þar var líka skorað á Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráðherra að
„fylgja stefnu Sjálfstæðisflokksins um að minnka tollavernd og stefna að því
að almenn markaðslögmál gildi í landbúnaði eins og skýrt kom fram á síð-
asta landsfundi Sjálfstæðisflokksins“.
Ingibjörg Sólrún þakkaði Heimdellingum fyrir sig í ræðu á ársfundi Út-
flutningsráðs í fyrradag. Hún rifjaði upp haftatímann og hvernig Viðreisn-
arstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks jók frjálsræði og fækkaði höft-
um. „Afleiðingarnar voru ekki aðeins mældar í krónum og aurum heldur
einnig í betra og heilbrigðara andrúmslofti í þjóðfélaginu,“ sagði utanrík-
isráðherrann.
Hún sagði líka að stjórnmálamönnum bæri fyrst og fremst að gæta al-
mannahagsmuna. „Við getum ekki látið eins og rödd neytenda sé ekki til,“
sagði Ingibjörg Sólrún og sagðist ekki telja réttlætanlegt að halda uppi toll-
múrum á pasta, kjúklingum og svínakjöti til að halda uppi verði á lamba-
kjöti. Hún lofaði að berjast fyrir því að uppboði á tollfrjálsum innflutnings-
kvóta yrði hætt, þannig að tollfríðindin skiluðu sér beint til neytenda.
Ingibjörg Sólrún sagðist hafa þá trú á íslenzkum bændum og mat-
vælaframleiðendum, að þeir yrðu ekki undir í frjálsri samkeppni, heldur
myndi vöruþróun eflast, vöruúrval aukast og innvið-
irnir styrkjast. „Ég er þess fullviss að sömu lögmál gilda
í landbúnaði og í öðrum atvinnugreinum,“ sagði for-
maður Samfylkingarinnar og hljómaði eins og berg-
mál af landsfundi Sjálfstæðisflokksins. „Vandi ís-
lenskra bænda er eftirlegukindurnar sem verða að
lokum þrælar þess staðnaða kerfis sem þeir hafa sjálfir
tekið þátt í að byggja upp og varið með kjafti og klóm.“
Hvað á fólk að halda? Heimdellingar álykta eins og
ungkratar. Formaður Samfylkingarinnar talar eins og
sjálfstæðismaður. Og landbúnaðarráðherrann lætur
eins og framsóknarmaður. Hver sneri pólitíkinni á
hvolf?
Pólitíkinni
snúið á hvolf
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Auðvitað væri það Ólafi Ragnari
eitur í beinum ef eitthvert peð
byði sig fram gegn honum því allt
minna en 95%
stuðningur væri
ósigur. Ég held að
almenningur vilji
ekki sjá forseta-
kosningar og
raunar held ég að
Ólafur njóti ótrú-
lega mikil stuðn-
ings. Að minnsta
kosti þekki ég engan sem hefur
sérstakan áhuga á því að end-
urtaka skrípaleikina úr kosning-
unum 1980 og 1996. En þótt eng-
in ástæða sé til annars en að leyfa
Ólafi Ragnari að halda áfram að
leika kóng á Bessastöðum er ekki
þar með sagt að ekki eigi að vera
eðlilegt aðhald að forsetanum …
Árni Snævarr
arni.eyjan.is
BLOGGARINN
Kóngurinn
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sagði að það detti engum ábyrg-
um stjórnmálamanni í hug að
taka mark á ólög-
legum aðgerðum.
Nú liggur það
fyrir að Geir H.
Haarde stóð að
því að ryðja í
gegnum Alþingi
eftirlaunalögum
ráðherra og
æðstu embættis-
manna. Samkvæmt lögum á að
kostnaðarmeta frumvörp, en það
var ekki gert. Auk þess héldu
Sjálfstæðismenn því fram að
kostnaður vegna frumvarpsins
væri enginn eða í mesta lagi 6
millj. kr. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur staðið í vegi fyrir um-
ræðum og endurskoðun ...
Guðmundur Gunnarsson
gudmundur.eyjan.is
Að taka mark
Ríkissjóður er ekki sjálfstæður
lögaðili í eigu Sjálfstæðisflokks-
ins eða sitjandi ríkisstjórnar.
Kannski heldur
það einhver en
það er þá mis-
skilningur. Það
rétta er að rík-
issjóður er sam-
eign íslensku
þjóðarinnar. Þeg-
ar svo er komið
að efnahagsleg
kreppa, óðaverðbólga og mögu-
legt hrun vegna skuldasöfnunar
vofir yfir er algerlega óviðunandi
að yfirvöld geri það eitt að metast
við þegnana um það að þau hafi
nú staðið sig betur en hinir
skuldsettu. Ríkið hefur tekið aðra
hverja krónu af veltufé lands-
manna í sinn vasa ...
Bjarni Harðarson
bjarnihardar.blog.is
Sameign allra
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@24stundir.is
Þegar ég las forsíðufrétt 24 stunda í
gærmorgun sem bar yfirskriftina
„Áfengi í stað matar“ kom strax upp í huga minn
að þetta væri alls ekki ný frétt. Þegar ég kom heim
frá námi, sem var upp úr 1980, heyrði ég konur oft
segja þetta. Þær voru jafnvel stoltar af því að segja
mér að þær hefðu ekkert borðað í dag vegna þess
að þær ætluðu að fá sér í glas í kvöld. Þetta sýnir
fáfræði þessa fólks um næringar- og orkuneyslu
líkama síns.
Það er mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir því
að orka er ekki sama og næring. Líkaminn þarf
orku til að geta starfað allan daginn en hann þarf
einnig um 50 næringarefni til að starfa eðlilega.
Þarna er mikill munur á. Mikið af því sem við
borðum gefur okkur mikla orku en enga næringu,
þar má meðal annars nefna alkóhól og gosdrykki.
Orkuefni fæðunnar eru kolvetni, prótín, fita og
alkóhól. Segja má að þau séu eldsneyti fyrir líkam-
ann eins og bensín er eldsneyti fyrir bílinn.
Það er mjög almennt að fólk átti sig ekki á mik-
ilvægi næringarefnanna og haldi að vellíðan snúist
aðallega um orkuefnin og útlitið.
Skortur á næringarefnun getur orsakað mjög marga
kvilla, suma er hægt að bæta en aðrir geta verið
varanlegir og má þar til dæmis nefna klofinn hrygg
sem stafar af skorti á fólasíni í fæðu móður á með-
göngu.
Önnur skortseinkenni næringarefna eru þreyta,
náttblinda, líflaust hár, brotnar neglur, punktblæð-
ingar (marblettir), almennt þróttleysi, melting-
artruflanir, breytingar á húð, húðútbrot, þunglyndi,
sinnuleysi, ógleði, sár í munni og
munnvikum, kláði og sviði í aug-
um, ljósfælni og höfuðverkur.
Þessi upptalning er langt frá því að
vera tæmandi og hvet ég alla til að
gæta vel að næringarinntöku sinni
og hafa það í huga að til að lík-
aminn starfi eðlilega og við getum
fengið það besta út úr okkar lífi
þurfum við að vera rétt næring-
arlega samsett.
Höfundur er næringarráðgjafi
Mikilvægi næringarefna
ÁLIT
Guðrún Þóra
Hjaltadóttir
gthh@internet.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Brúðarblað
Auglýsingasímar:
Katrín Laufey 510 3727
kata@24stundir.is
Kolbrún Dröfn 510 3722
kolla@24stundir.is
Sérstakt brúðarblað fylgir með 24 stundum föstudaginn 11. apríl.
Rætt verður við verðandi brúðhjón og hjón sem hafa verið gift
lengi og rifja upp brúðkaupsdaginn. Spurt er hvort stóru brúð-
kaupsveislurnar séu að víkja fyrir litlum, fámennum veislum? Við
fjöllum um sveitabrúðkaup og giftingu hjá sýslumanni. Nýjustu
brúðarkjólarnir, terturnar og hver eru vinsælustu lögin í brúðkaupum?
11. apríl Hafðu samband og fáðu gott
pláss fyrir auglýsinguna þína
Það verður fjölbreytt og skemmtilegt efni í brúðarblaði 24 stunda.