24 stundir - 09.04.2008, Síða 15
24stundir MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 15
Steingrímur Hermannssonþótti hafa föðurlegt yf-irbragð sem
forsætisráðherra
sem þjóðin kunni
vel að meta og gerði
hann vinsælan.
Davíð Oddsson
þótti líka hafa slíkt
yfirbragð, að minnsta kosti fyrstu
árin í forsætisráðherrastólnum,
hann gantaðist og talaði við þjóð-
ina í góðlátlegum tóni. Geir
Haarde virðist hafa annan stíl því
bloggheimur telur hann hroka-
fullan í garð fólksins í landinu
hvort sem um flutningabílstjóra
er að ræða eða aðra. Ögmundur
Jónasson tekur undir það og segir
á heimasíðu sinni: „Geir H.
Haarde, forsætisráðherra, ætti að
vara sig á hrokafullum við-
brögðum af því tagi sem hann
sýndi í þinginu.“ Ögmundur
spurði ráðherra um ferðir í einka-
þotum á Alþingi í fyrradag sem
Geir þótti afar lágkúrulegt.
Egill Helgason er gagn-rýndur í greinum í Morg-unblaði og Fréttablaði í
gær og sakaður um að vera öfga-
hægrimaður vegna
vals á viðmælanda í
þætti sínum þar
sem fjallað var um
umhverfismál og Al
Gore. Egill svarar
fyrir sig á heimasíðu
sinni og segir: „Maður hefur vit-
laust fyrir sér af því maður er ekki
í réttu liði og tekur ekki undir
með því sem „allir“ eru að segja.“
Í framhaldinu bendir Egill á
ranghugmyndir í fræðum nób-
elsverðlaunahafans Al Gore og
bætir síðan við: „Þegar svo er litið
til þess að Gore lifir engan veginn
samkvæmt fræðum sínum, að
hann á stórar uppljómaðar hús-
eignir, kaupir fast-
eignir við sjávarsíð-
una í San
Fransisco-flóa, að af
fræðum hans leiðir
stórkostlegur bis-
ness með útblást-
urskvóta þar sem hann á hags-
muna að gæta og að hann tekur
morð fjár fyrir fyrirlestra sína og
kolefnisspúandi ferðalög – er þá
furða að manni detti í hug að
hann sé charlatan?“ Þar á Egill við
að hann sé svikahrappur eða
loddari. Leiðari Fréttablaðsins í
gær er á svipuðum nótum, enda
margir sem telja Al Gore fara yfir
strikið í málflutningi sínum um
hlýnun jarðar.
elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Stimpilgjald er skattheimta sem
gerir viðskiptaumhverfið erfiðara
en það væri ef stimpilgjaldið yrði
fellt burt. Bent hefur verið á að
stimpilgjaldið sé m.a. til þess fallið
að draga úr möguleikum lántak-
enda til að skipta um lánastofnun
og taka ný og hagstæðari lán. Þeg-
ar kostnaður við uppgreiðslu og
stimpilgjald nýrra veðskjala kemur
til viðbótar þá er ávinningurinn af
nýju láni oft takmarkaður eða
enginn. Stimpilgjaldið mismunar
líka lántakendum. Þeir sem eiga
þess kost að fá tryggingabréf í stað
veðskuldabréfs þurfa ekki að
greiða nema 0,5 prósent af höf-
uðstól á meðan þeir sem þurfa að
þinglýsa veðskuldabréfum þurfa
að greiða 1,5 prósent af höfuðstól.
Kaupendur húsnæðis þurfa að
greiða umtalsverða fjármuni
vegna stimpilgjalds af kaupsamn-
ingi, afsali og lánaskjölum. Þeir
sem verst eru settir í þjóðfélaginu
og þurfa að sæta því að gert sé hjá
þeim lögtak fyrir skuldum við rík-
issjóð þurfa að sæta því að stimp-
ilgjald bætist ofan á allt annað við
þinglýsingu gerðarinnar.
Stjórnarflokkarnir lofuðu að
þeir myndu fella stimpilgjaldið
niður. Ekkert hefur enn orðið úr
efndum á því loforði. Við gerð
kjarasamninga milli Samtaka at-
vinulífsins og ASÍ lofuðu tals-
menn ríkisstjórnarinnar að beita
sér fyrir að stimpilgjaldið yrði af-
numið að hluta. Ríkisstjórnin ætl-
ar að efna kosningaloforðið að
hluta núna. Afganginn á sjálfsagt
að bíða með þangað til hillir und-
ir næstu kosningar til Alþingis.
Stimpilgjöld eru úrelt og órétt-
lát tekjuöflunarleið fyrir ríkissjóð.
Tekjur ríkissjóðs af stimpilgjöld-
um árið 2007 eru áætlaðar um 6,2
milljarðar króna. Tekjur ríkissjóðs
af stimpilgjöldum hafa verið um-
talsverðar á þensluárunum frá
2005 en ljóst hefur verið að þau
mundu dragast verulega saman
þegar umsvif minnkuðu í þjóð-
félaginu, þá sérstaklega þegar um-
svif minnkuðu á fasteignamark-
aðnum. Samt sem áður má ætla
að tekjur ríkissjóðs af stimpilgjaldi
geti numið um 5 milljörðum á
venjulegu ári. Með því að fella
stimpilgjöld niður yrði ríkissjóður
fyrir nokkru tekjutapi sem nemur
þó innan við 2 prósentum af
heildargjaldtöku ríkisins.
Fjármálaráðherra hefur lagt
fram frumvarp á Alþingi í sam-
ræmi við þau fyrirheit sem gefin
voru samningsaðilum við kjara-
samninga. Fjármálaráðherra gefur
þó ekki meira en slitið hefur verið
þegar undan skattaránsnöglum
hans. Afnema á stimpilgjald vegna
kaupa á fyrstu íbúð og lögin eiga
ekki að koma til framkvæmda
samkvæmt frumvarpinu fyrr en 1.
júlí. Frumvarp ráðherrans er gall-
að að mörgu leyti. Í fyrsta lagi á
að setja upp flólkið eftirlitskerfi
með því hverjir séu að kaupa íbúð
í fyrsta sinn. Þá er innbyggt órétt-
læti í kerfið með því að takmaka
niðurfellinguna við þá sem eru að
kaupa í fyrsta skipti. Fólk þarf
iðulega að kaupa nýtt húsnæði
vegna breyttra aðstæðna. Algeng-
ast er að sami einstaklingur þurfi
að skipta um húsnæði ekki sjaldn-
ar en 4 sinnum á lífsleiðinni og
það allt af þörf vegna breyttra að-
stæðna. Í þriðja lagi eiga lögin
ekki að taka gildi um leið og þau
kunna að verða samþykkt. Það
mun leiða til þess að húsnæð-
ismarkaðurinn stíflast. Kaupendur
sem eiga rétt á niðurfellingu
stimpilgjalds samkvæmt lögunum
draga að kaupa húsnæði þangað
til þeir eru lausir við þessi auka-
gjöld sem geta numið allt að
hálfri milljón.
Mergurinn málsins er þó sá að
það er mikilvægt að losna við
þessa óréttlátu gjaldtöku í eitt
skipti fyrir öll. Margir horfa fram
á samdrátt í viðskiptum á þessu
ári og þegar svo horfir þá er það
hlutverk ríkisins að auðvelda við-
skipti fólks og afnema svo sem
mest má vera óréttláta skatt-
heimtu. Við eigum því að skora á
ríkisstjórnina að standa við kosn-
ingaloforð sitt núna og afnema
stipmilgjaldið núna. Það er ekkert
réttlæti í því að afnema stimp-
ilgjaldið bara fyrir suma, það þarf
að losna við stimpilgjaldið.
Höfundur er alþingismaður
Burt með stimpilgjaldið
VIÐHORF aJón Magnússon
Þeir sem
verst eru
settir í þjóð-
félaginu og
þurfa að
sæta því að
gert sé hjá
þeim lögtak fyrir skuld-
um við ríkissjóð þurfa að
sæta því að stimpilgjald
bætist ofan á allt annað
við þinglýsingu gerðar-
innar.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Búdapest
8. maí
frá kr. 49.990
Frábær 4 nátta ferð um Hvítasunnu!
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í þúsundatali á
hverju ári með Heimsferðum. Vorið er frábær tími til að heimsækja borgina.
Tíminn í þessari ferð nýtist einkar vel þar sem flogið er út í beinu morgun-
flugi en heim seint að kvöldi annars í Hvítasunnu. Fararstjórar Heimsferða
gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu.
Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri
gestrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmtistaða.
Verð kr. 49.990
- *** gisting
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 4
nætur á Hotel Tulip Inn *** með morgun-
mat. Aukalega kr. 4.000 ef gist er á Hotel
Mercure Duna ***.
Verð kr. 59.990
- **** gisting
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 4
nætur á Hotel Atrium ****
með morgunmat.
M
bl
98
98
95