24 stundir - 09.04.2008, Blaðsíða 16
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-umhverfisvænn ferðamáti
16 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Verkfræðingurinn Matthew Melis
var svo lánsamur að hann rambaði
á ævistarf sem honum þykir geysi-
spennandi. Enda skyldi kannski
engan undra, því Melis starfar við
geimferðaáætlun Bandaríkjanna
hjá NASA.
Melis er staddur hér á landi í
boði Háskólans í Reykjavík. Þar
heldur hann fyrirlestur sem byggir
meðal annars á reynslu hans af
rannsókn á atburðum sem leiddu
til þess að geimskutlan Columbia
fórst árið 2003. Hann ræðir einnig
um öryggismál við starfsmenn ál-
vers Alcoa á Reyðarfirði.
Mannshöndin hefur áhrif
„Ég vann í hópi sem hafði gert
tilraunir með árekstra á miklum
hraða. Við vorum kallaðir til
skömmu eftir Columbiu-slysið.
Við bjuggumst við nokkurra mán-
uða rannsókn, en hún stóð í 5 ár.“
„Við höfum lært heilmikið af
Columbia-óhappinu. Að ýmsu
leyti má rekja orsakirnar til mann-
legs eðlis. Allt sem við gerum bygg-
ir á því, þannig að möguleikinn á
mistökum er innbyggður.“
Öryggismál eiga líka við álver
Melis segir reynslu sína ekki hafa
beina samsvörun við starfsmenn
álvers, en allt sé þetta sömu ann-
mörkum háð. „Framleiðsla áls fer
eftir flóknu verkferli, þar sem
möguleikar á slysum leynast víða. Í
álbræðslu flæðir geysilega mikið
rafmagn og bráðinn málmur er
færður á milli staða.
Geimferðaáætlunin er kannski
flóknasta verkferli sem til er. Í
hverri skutlu eru milljón hreyfan-
legir hlutar. Á þeim áratugum sem
geimskutlurnar hafa verið í rekstri
höfum við í rauninni staðið okkur
mjög vel. Það hafa orðið tvö meiri-
háttar óhöpp, sem við höfum lært
heilmikið af.
Yfirleitt þegar eitthvað fer úr-
skeiðis í öryggismálum má rekja
það til þess að einhver hefur sofnað
á verðinum. Þannig að ég vil
minna starfsmennina á hversu
mikilvægt er að hafa öryggismálin
alltaf í huga.“
Hvetur ungmenni til dáða
Melis nýtir heimsóknina til að
tala í þremur framhaldsskólum.
Þar reynir hann að sýna ungmenn-
unum hversu spennandi geim-
ferðaáætlunin er.
„Mér þykir mjög skemmtilegt að
gera fólk spennt fyrir tækninni.
NASA hefur kannski lagt of mikla
áherslu á að tala alltaf um verk-
fræði, en það hafa ekki allir áhuga á
að læra verkfræði.
Ég bendi krökkunum á að ein-
hver þurfi að taka myndir af geim-
skotinu – það eru 200 atvinnuljós-
myndarar að störfum við hvert
skot. Einhver þarf að stýra kran-
anum sem kemur skutlunni fyrir –
kranastjórinn handleikur geim-
skutluna áður en hún fer á loft.
Maður getur nefnilega orðið hvað
sem er, en samt starfað við geim-
ferðaáætlunina.“
NASA kennir
Alcoa öryggi
Verkfræðingur sem sinnir öryggi hjá NASA heimsækir Ísland
Matthew Melis Vill halda
því á lofti að á bak við
NASA standi venjulegt fólk.
➤ Tvær geimskutlur NASA hafafarist. Challenger árið 1986
og Columbia árið 2003.
➤ Í dag hefur NASA yfir þremurskutlum að ráða.
GEIMSKUTLUR NASA
MARKAÐURINN Í GÆR
!""
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
'
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>??5?@33
AB@B45?54
53??>3>C5
AB55C>34B
AB4A4BDABB
D3@4?B?4
C3BAC5BB
CDAD5A5CD@
AB4BADABCB
AA5A5C>
CA>3A?AD@
C3BC@AABA
AACCC>>>
A>5BBB
CC>>B
B
435CA@
AA?4>CA
5>C@@
,
@@D@@5
,
,
AD45>>5D
,
,
ABBC?3AAB
,
,
@ED>
DDE@B
ACE@?
@EAC
A>EBB
CDEDB
CDEB5
>4BEBB
3AEBB
?AE5B
5E54
ACE4>
DED@
?CEBB
AE35
4E@5
CCBEBB
ADADEBB
3>BEBB
BE@C
AD4E5B
,
,
4E?C
,
,
5BDBEBB
ABEBB
,
@ED?
D5EA5
ACE>>
@ECB
A>EAB
C5EA5
CDEC5
>4DEBB
3AEB5
?CEBB
5E4?
ACE@B
DE5A
?CE5B
AE3@
4E>B
CA>EBB
ADC5EBB
3?BEBB
BE@3
AD>EBB
AE>C
CAE?5
ABEBB
,
,
5B?5EBB
ACEBB
4EAB
/
- AC
35
>@
34
@@
AB
C
AA3
@5
5
>3
C3
4
A
C
,
A
3
A
,
>
,
,
D
,
,
>
,
,
F#
-#-
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
DDCBB>
>DCBB>
>DCBB>
>DCBB>
@DCBB>
>DCBB>
AB3CBB>
A>CCBB>
>DCBB>
4ACCBB@
CC>CBB@
>DCBB>
CDCBB>
@3CBB>
● Mest viðskipti í Kauphöll OMX
í gær voru með bréf Kaupþings,
fyrir um 2,4 milljarða króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum
SPRON, eða 4,40%. Bréf FL
Group hækkuðu um 3,60% og
bréf Skipta um 1,93%.
● Mesta lækkunin var á bréfum
Færeyjabanka, eða 2,33%. Bréf Ice-
landair Group lækkuðu um 1,02%
og bréf 365 um 0,74%.
● Úrvalsvísitalan hækkaði um
0,67% í gær og stóð í 5.429 stig-
um í lok dags.
● Íslenska krónan styrktist um
0,35% í gær.
● Samnorræna OMX40-
vísitalan lækkaði um 1,13% í
gær. Breska FTSE-vísitalan lækk-
aði um 0,4% og þýska DAX-
vísitalan um 0,7%.
Bandaríski álrisinn Alcoa hefur
tilkynnt að hagnaður félagsins
hafi verið 54 prósentum minni á
fyrsta fjórðungi þessa árs sam-
anborið við sama tímabil í fyrra.
Hagnaðurinn nam 303 milljónum
Bandaríkjadala, jafnvirði 22 millj-
arða króna. Minnkandi hagnaður
er rakinn til hærra orkuverðs og
lækkunar á gengi Bandaríkjadals.
Alain Belda, forstjóri Alcoa, segir félagið nú leita að langtíma-
orkusamningum og stefna að aukinni notkun ódýrari vatnsorku til
minnkunar rekstrarkostnaðar.
Belda reiknar með að hagnaður félagsins aukist um 50 sent á hvern
hlut á þessu ári, vegna nýrra fjárfestinga, þar á meðal vegna stækkunar
Fjarðaáls. Álver Alcoa á Reyðarfirði mun auka framleiðslugetu sína í
300 þúsund tonn á árinu. atlii@24stundir.is
Hagnaður Alcoa minnkar
Seðlabankinn mun tilkynna
vaxtaákvörðun sína á fimmtudag
og eru spár greiningardeilda
bankanna misjafnar. Kaupþing
spáir óbreyttum 15 prósenta
stýrivöxtum þar sem ljóst sé að
hækkun muni ekki verða mikil
stoð við krónuna. Glitnir telur
hins vegar að stýrivextir verði
hækkaðir um 0,5 prósentustig, í
15,5 prósent. Landsbankinn hef-
ur ekki gefið út neina spá um
vaxtaákvörðun.
Það er ekki eingöngu á Íslandi
sem tilkynnt verður um stýri-
vaxtaákvörðun heldur einnig í
Bretlandi og á evrusvæðinu. Í
meðalspá greinenda samkvæmt
Bloomberg er gert ráð fyrir
óbreyttum vöxtum á evrusvæð-
inu, þeir haldist í 4 prósentum,
og að Englandsbanki lækki vexti
um 0,25 prósent, í 5 prósent.
Ólíkar spár
bankanna
Skuldatryggingarálag íslensku
bankanna hélt áfram að lækka í
gær. Þannig hefur álag Glitnis
lækkað úr 790 punktum í 730
punkta, Kaupþings úr 780 punkt-
um í 720 og Landsbankans úr 555
punktum í 520 punkta.
Skuldatrygg-
ingarálag lækkar
Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands jókst um tæplega 8% í síðasta mán-
uði, samkvæmt mánaðarlegum tölum sem bankinn gaf út í gær. Hækk-
un forðans má helst rekja til almennra verðhækkana eigna s.s. gulls.
Þannig er ósennilegt að um hreina aukningu á gjaldeyrisforðanum sé
að ræða. Á milli ára er um að ræða 19% aukningu og nemur forðinn
nú um 220 milljörðum króna. Tilgangur gjaldeyrisvaraforða er í stuttu
máli að styrkja möguleika viðkomandi seðlabanka á að geta haft áhrif
á verðmyndun á viðkomandi gjaldeyrismörkuðum t.d. til að stuðla að
almennum verð- og fjármálastöðugleika í hagkerfinu. Þannig getur
gjaldeyrisforðinn verið vörn gegn spákaupmennsku og raunar getur
stærð hans ein og sér haft fælandi áhrif á fjárfesta sem ekki geta lagt í
stríð við seðlabanka með sterkan gjaldeyrisforða nema með ærnum til-
kostnaði og mikilli áhættu.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans eykst
Stjórn ítalska flugfélagsins Ali-
talia kemur saman í dag til þess
að ræða hvað hægt sé að gera í
stöðunni eftir að viðræður um yf-
irtöku Air France-KLM á félaginu
runnu út í sandinn í síðustu viku.
Er talið að Alitalia færist sífellt
nær gjaldþroti en tap félagsins
nemur um 1 milljón evra á dag.
Samkvæmt ítalska viðskipta-
blaðinu Il Sole-24 Ore mun
stjórnin fresta því að taka
ákvörðun um hvort sækja eigi um
greiðslustöðvun þar til eftir fund
með fulltrúum stjórnvalda og
verkalýðsfélaga.
Alitalia færist
nær gjaldþroti
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Kranastjóri handleikur geimskutluna
áður en hún fer á loft. Maður getur
nefnilega orðið hvað sem er, en samt starfað
við geimferðaáætlunina.