24 stundir - 09.04.2008, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Á námskeiðinu einblínir Gréta á
það hvernig best er fyrir foreldra
að tala við börnin þannig að þau
hlusti og læri. En það er einn liður
hinnar hjartanærandi uppeldis-
aðferðar. „Ég á sjálf 12 ára son sem
er greindur með ADHD með mót-
þróaþrjóskuröskun og hef notað
aðferðina á hann. Í framhaldi af
því hefur orðið alveg ótrúlega já-
kvæð breyting á honum þrátt fyrir
mörg áföll á leiðinni,“ segir Gréta
sem áður hafði reynt margvíslegar
aðferðir án árangurs.
Að leyfa tilfinningar
„Það er svo mikilvægt að tala
rétt við börnin og spegla það sem
þau segja. Ef barn kemur t.d. ösku-
reitt heim úr skólanum og finnst
hann ömurlegur er betra að segja;
Já, ég heyri að þér finnst skólinn
hundleiðinlegur, frekar en að segja
eitthvað í dúr við nei, nei, þér
finnst skólinn ekkert ömurlegur,
sem flestir foreldar eru fljótir að
segja. Þannig leyfum við barninu
að hafa sínar tilfinningar og barnið
veit að hlustað er á það,“ segir
Gréta. Hún segir aðferðina byggja
á þremur þrepum sem séu í raun
svo ótrúlega einföld að fólk trúi því
ekki fyrr en það reyni þau sjálft. „Í
fyrsta lagi er að hrósa barninu um
leið og það framkvæmir hlutina.
Annars vegar fyrir reynsluna eða
það sem barnið hefur þegar gert og
loks er það hin svokallaða forvarn-
arviðurkenning. Hún byggist á því
að segja eitthvað í dúr við: Takk
Atli minn fyrir að láta Söndru vera
og leyfa henni að læra í friði,“ eins
og ég segi stundum við strákinn
minn,“ segir Gréta. Þessi leið sé
best til að kenna börnum reglurnar
frekar en að skamma þau þegar illa
fer því börn sæki í neikvæða at-
hygli rétt eins og fullorðnir gera.
Myndi nýtast vel í skólum
Gréta segist gjarnan mundu vilja
að skólarnir nýttu sér þrepin þrjú
þar sem þau séu mjög svo einföld
fyrir kennara að tileinka sér. Síð-
asta námskeið hafi verið vel sótt
enda grípi foreldrar sem allt hafa
reynt nýjar og árangursríkar að-
ferðir feginshendi. „Staðreyndin er
sú að foreldrar kenna sér um og fá
gjarnan óbein skilaboð frá yf-
irvöldum og skóla um að þeir séu
ómögulegir uppalendur. Um leið
og barnið finnur að foreldrarnir
hafa áhuga á því sem það er að
gera nær það hins vegar að einbeita
sér mun betur og viðfangsefnið
verður spennandi. Þannig býr
maður til velgengni fyrir börnin
samhliða daglegu skipulagi þar
sem orku barnsins er beint í skipu-
lagðan farveg og leyft að njóta sín,“
segir Gréta.
Hegðunarmótun fyrir krefjandi börn og unglinga
Hjartanærandi
aðferðir gefast vel
➤ Athyglisbrestur og ofvirkni ertaugaþroskaröskun sem get-
ur haft víðtæk áhrif á daglegt
líf, nám og félagslega aðlög-
un.
➤ ADHD er alþjóðleg skamm-stöfun og stendur fyrir Atten-
tion Deficit Hyperactivity Dis-
order eða athyglisbrest og
ofvirkni.
ADHDGréta Jónsdóttir, fjöl-
skyldu- og hjónaráðgjafi,
beitir svokallaðri Hjarta-
nærandi uppeldisaðferð
til að kenna foreldrum
auðveldar leiðir í hegð-
unarmótun fyrir krefjandi
og erfið börn og ung-
linga.
Skammir Ekki endilega
rétta leiðin, segir Gréta
Jónsdóttir.
KYNNING
Ungbarnanudd er yndisleg aðferð
fyrir foreldra og börn til að tengj-
ast enn betur auk þess sem sýnt
hefur verið fram á að ung-
barnanudd hafi góð áhrif á þroska
barnsins, að sögn Hrannar Guð-
jónsdóttur heilsunuddara. Hrönn
býður upp á stutt námskeið í ung-
barnanuddi þar sem foreldrar geta
lært hvernig best er að bera sig að.
„Námskeiðið er einu sinni í viku í
fjórar vikur. Á námskeiðinu nudda
ég dúkku á meðan foreldrar nudda
börnin sín en þau læra að nudda
fætur, maga, andlit, bak, bringu og
handleggi,“ segir Hrönn og bætir
við að það sé mjög misjafnt hvern-
ig börnunum líkar nuddið. „Sum
börn elska að láta nudda sig frá
fyrsta degi en önnur þurfa aðlög-
unartíma. Nuddið hefur hins vegar
mjög góð áhrif á þau, bætir melt-
ingu og svefn, losar um spenna og
örvar blóðrás auk þess sem nuddið
bætir tengslamyndun milli foreldra
og barns.
Hrönn talar um að æskilegur aldur
barns á svona námskeiði sé 1-10
mánaða. „Reyndar er það mjög
einstaklingsbundið en oft þarf að
aðlaga nuddið frekar að eldri
börnunum. Rannsóknir sem hafa
verið gerðar á ungbörnum sýna að
börn sem eru nudduð reglulega
þyngjast og þroskast mun hraðar
en þau sem ekki eru nudduð.“
Námskeiðið kostar 10 þúsund
krónur og frekari upplýsingar má
fá á Ungbarnanudd.is.
svanhvit@24stundir.is
Ungbarnanudd stuðlar að þroska barna
Bætir tengslamyndun foreldra og barns
Ungbarnanudd Börn sem eru nudd-
uð reglulega þroskast hraðar.
Í byrjun æviskeiðs barnsins
þegar gjafatímar eru ekki komnir
í fastar skorður er líklegast að
barnið gráti af því að það sé
svangt. Það geta þó verið ýmsar
aðrar ástæður til að mynda ef
barninu er of heitt eða kalt, ef
því er illt í maganum eða vill láta
skipta á sér. Það getur líka verið
að barnið gráti af leiða eða af því
að það vantar félagsskap. Grátur
á sér því yfirleitt ósköp eðlilegar
ástæður en ef þú hefur áhyggjur
eða finnst barnið gráta óvenju-
mikið skaltu spyrja heim-
ilislækninn þinn ráða.
Gegndarlaus grátur
Sum börn gráta einfaldlega
meira en önnur en tímabundnar
ástæður geta líkt haft sín áhrif eins
og ef farið er með barnið í frí eða
ef flutt er á nýjan stað. Börn eru
misjafnlega viðkvæm fyrir slíku.
Stress er ekki gott fyrir neinn,
hvorki fullorða né börn og sagt er
að það geti haft áhrif á hegðun
barna og hún breyst ef foreldrar
þeirra eru mjög stressaðir. Þá get-
ur verið erfitt að greina orsök og
afleiðingu; stafar stressið af grát-
inum eða gráturinn af stressinu?
Grátur getur átt sér margar skýringar
Stress hefur áhrif
Börn gráta Af
margvíslegum
ástæðum.
Hamraborg 7 • Kópavogi • Sími 564 1451
www.modurast.is
Vorvörurnar
komnar