24 stundir - 09.04.2008, Page 29

24 stundir - 09.04.2008, Page 29
24stundir MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 29 þessum hóp að vera slakur kylfing- ur og jafnvel byrjandi. „Inntöku- skilyrðið er það eitt að hafa gaman saman og við gerum ýmislegt til þess. Auðvitað reynum við allir að bæta golfið eins og hægt er en það er aukaatriði. Allir erum við kring- um fertugsaldurinn og ég hvet alla hressa menn til að heilsa upp á okkur eða í það minnsta kíkja á síðuna og láta sannfærast.“ Sigurður bendir á að ein skýring þess hve fjölmennur hópurinn er orðinn á aðeins sjö árum frá því að örfáir félagarnir ákváðu að taka eina golfferð til Flórída sé einmitt sú að alltaf hafi tekist að útvega vænan afslátt á árlegum ferðum þangað. „Hver vill ekki spila golf í Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Sé einhver í vafa um stuðið og stemningu þá er fylgir hópnum nægir að líta augum nokkrar þær mynda er blogg þeirra prýða. Þar er skemmtunin í forgrunni og án hennar væri ekkert gaman að golfi eða neinu öðru að mati eins for- sprakkanna, Sigurðar Hlöðvers- sonar. „Þeir eru til sem halda að þetta sé einhver lokaður fé- lagsskapur en það er fjarri lagi. Við erum kringum 50 talsins í dag og margir hverjir þekktust ekkert áð- ur. Þetta er í raun bara félagsskapur þeirra sem áhuga hafa á að fara ódýrt til Flórída einu sinni á ári og hafa gaman af. Það var upphaflega hugmyndin og hún vatt svona upp á sig.“ Bros nauðsyn, forgjöf ekki Það þykir ekkert tiltökumál í bullandi sólskini í Flórída með skemmtilegu fólki fyrir 95 þúsund krónur? Það var verðið hjá okkur síðast enda höfum við farið það oft að við fáum afslátt víða og eigum góða að þar. Við tökum gjarna aðra hópa í fóstur. Því fleiri því betra og skemmtilegra.“ Slóðin á vef þeirra félaga er http://golf.blog.is/blog/golf/ og má þar finna allar upplýsingar um hve- nær félagarnir hittast og æfa sig, verð til Flórída og annað misvænt. Þar er einnig ógrynni ljósmynda sem kannski öðru fremur sanna að sennilega er Sigurður ekkert að fara með fleipur hvað skemmtun varð- ar. Fimmtíu félagar úr ýmsum áttum halda reglulega til Flórída í golf Snýst bara um að hafa gaman saman Sé einhver í vandræðum með að finna sér fé- lagsskap í golfinu eru hæg heimatökin að heim- sækja bloggsíðuna Birdietravel. Henni halda úti ýmsir gleðigosar og allir eru velkomnir í hóp- inn svo lengi sem bros er á vör. Aðrir haldi sig fjarri. Þeir gallhörðustu Þó fé- lagsskapurinn telji 50 alls er mætingin mjög upp og niður á æfingar í Básum. Rauðir og grænir Félagarnir ryðja veginn þegar kemur að tísku. 24stundir/Ómar Heilsuvika Hrafnistu vikuna 7. til 11. apríl vi lb or ga @ ce nt ru m .is Canneloni með spínati, ítalskri sósu, búlgur grjónum og rómansalati sumarferdir.is Fleiri holur fyrir færri krónur Sameinaðu áhugamálið og yndislegar samverustundir með fjölskyldunni. Bættu forgjöfina og njóttu lífsins með þínum nánustu á heillandi áfangastað. Alicante Costa del Sol Dublin Kynntu þér spennandi golftilboð á sumarferdir.is

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.