24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 1

24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 1
24stundirþriðjudagur15. apríl 200871. tölublað 4. árgangur metan.is Ódýrasta eldsneytið í dag Umhverfið í framsætið Sverrir Viðar Hauksson fram- kvæmdastjóri fékk óvenjulega af- mælisgjöf þegar eiginkonan sendi hann í kokkaskóla í Bretlandi. Námskeiðið var á glæsilegum herragarði. FERÐIR»26 Kristín Kristjánsdóttir annar ekki eft- irspurn eftir fatnaði sem hún hannar og saumar og það þótt hún sé ekki útskrifaður hönnuður. Hún flytur einnig efnin inn sjálf til að vera öðruvísi en aðrir. Annar ekki eftirspurn TÍSKA»18 44% verðmunur á skyr.is NEYTENDAVAKTIN »4 Lögregla í Ástalíu tók nýverið til athugunar og efnagrein- ingar DNA-sýni úr ælu til að koma upp um glæpamann sem rændi pósthús í borginni Adelaide. Að sögn hafði hinn tvítugi Ahmed Habib Jalloul orðið svo stressaður þegar hann rændi pósthúsið að hann kastaði upp á gólfið áður en hann lagði á flótta með jafngildi 250.000 króna. Jalloul hlaut þriggja og hálfs árs dóm fyrir ránið, en tveir samverkamenn hans ganga enn lausir. aí Sönnunargagn- ið var gubb GENGI GJALDMIÐLA SALA % USD 74,81 1,57  GBP 148,45 2,25  DKK 15,89 1,71  JPY 0,74 1,96  EUR 118,57 1,72  GENGISVÍSITALA 151,95 1,78  ÚRVALSVÍSITALA 5.193,03 -1,55  5 3 -5 2 -1 VEÐRIÐ Í DAG »2 Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur fifa@24stundir.is „Þetta er kvöld sem löng hefð er fyrir hjá Herði og alltaf þetta atriði í lokin en eftir þessa uppákomu í fyrra þá ákvað félagið að halda þetta ekki í ár. Hins vegar voru þarna karl- menn sem tóku sig saman og héldu svona styrktarkvöld í þessum stíl. Það var einkasam- kvæmi,“ segir Guðjón Magnússon, formaður Hestamannafélagsins Harðar, um karlakvöld sem haldið var í félagsheimili félagsins um helgina. Meðal skemmtiatriða var kona sem fækkaði fötum. „Það eru skiptar skoðanir um þessi kvöld, þetta er búið að vera svona í áratugi og alltaf endað á þessum dagskrárlið, stuttu strippi,“ segir Guðjón en hann setti inn auglýsingu fyrir karlakvöld Harðar á vef félagsins 26. mars síð- astliðinn. Henni var seinna breytt þannig að nafn félagsins var tekið út. Rúmt ár er síðan félagið varð fyrir tölu- verðri gagnrýni vegna nektardans á karla- kvöldi. Í kjölfar þess skrifaði Stefán Konráðs- son, þáverandi framkvæmdastjóri Íþrótta- sambands Íslands, pistil á heimasíðu sambandsins. Þar segir meðal annars: „Getur það verið, að tilgangurinn með herrakvöld- unum sé að 2-400 karlar fái kynörvun við það að horfa á eina eða tvær stúlkur dansa nakt- ar?“ Stefán segir að skilaboðin sem send séu með því séu í raun kvenfyrirlitning. Þá segist hann ekki geta látið uppákomur sem þessa viðgangast enda standi hreyfingin fyrir for- varnir, heilbrigði og góðan félagsanda. „Nekt- ardansar og allt sem þeim fylgir á ekki heima á opinberum samkomum í okkar hreyfingu.“ Líney Rut Halldórsdóttir, núverandi fram- kvæmdastjóri, tekur undir orð Stefáns og segir stefnu ÍSÍ ekki hafa breyst í þessum málum. Þetta er bara prívatskemmtun hjá mér Guðmundur Björgvinsson, varaformaður Hestamannafélagsins Harðar, skipulagði karla- kvöldið en markmiðið með því var að safna peningum til þess að bæta reiðvegi félagsins. Honum þykir ekki óeðlilegt að svara gagn- rýninni sem kom á karlakvöldið fyrir ári með því að halda kvöldið sjálfur. „Þetta er bara prí- vatskemmtun hjá mér,“ segir hann. Aðspurður um það hvort hann telji eðlilegt að fá fatafellur á skemmtun sem þessa segir Guðmundur: „Mér finnst það bara eðlilegt, þetta eru karlar að skemmta sér.“ Harðir á strippinu  Hestamenn í Mosfellsbæ horfðu á nektardans í einkasamkvæmi varaformanns Harðar  Félagið hlaut harða gagnrýni í fyrra fyrir nektardans og stóð ekki sjálft fyrir karlakvöldi ➤ Hinn 26. mars var kynnt á vef Hestamannafélagsins Harðar „karlakvöld Harðar“. ➤ Tilkynningunni var síðar breytt og nafn félagsins tekið út úr henni. AUGLÝSINGUNNI BREYTT Senn verður hjóla- og göngustígnum á Ægisíðunni breytt. „Eins og fyrirkomulagið er núna er hjólareiðabrautin of mjó til að hjólreiðamenn geti mæst þar. Við ætlum að fara yfir allan stíginn frá Ægisíðu upp í Elliðaárdal, skipta honum upp og breikka hjólreiðastíginn. Einnig tökum við út blindbeygjur og reynum að lýsa upp þar sem það passar. Svo erum við að skoða hvort hægt sé að setja hita undir stíginn á ákveðnum stöðum,“ segir Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi. Að sögn hans hefjast framkvæmdir í sumar en óvíst er hvenær þeim lýkur. Stígurinn verður tvöfaldaður 24stundir/Golli „Við ætlum að fara yfir allan stíginn“ Fjarvistir starfsmanna íslenskra fyrirtækja jukust um 1.700 ársverk frá árinu 2004 til 2006. Fjarvistir eru helmingi algengari hjá hinu opinbera en há- tæknifyritækjum. Fjarvistir tíðastar hjá opinberum »2 „Harðir dómar í fíkniefnamálum eru ekki einsdæmi í litlum sam- félögum sem þurfa sérstaka vernd fyrir fíkniefnum,“ segir Linda Hes- selberg, saksóknari í Færeyjum. Færeyingar sýna fulla hörku »6 »12 Námskeið á herragarði

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.