24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 15
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 15
Vatnagörðum 24 - 26 • Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Allt frá árinu 1947 þegar Honda kom
með sitt fyrsta mótorhjól á markað hefur
keppnisandi og draumar án takmarka
einkennt fyrirtækið. Þessi hugsjón hefur
gert Honda að einu virtasta fyrirtæki í
mótorheiminum í dag.
Það er óumdeilanleg staðreynd að
Honda CRF motocrosshjólin hafa verið
í fremsta fl okki frá því þau komu fyrst
á markað. Ár eftir ár fá hjólin einróma
lof gagnrýnenda um allan heim. Með
endurbættum útfærslum af Honda CRF
250R og CRF 450R, sannar Honda enn
og aftur, að þau bestu geta orðið betri!
Komdu og vertu með okkur í sumar.
VERTU MEÐ OKKUR Í SUMAR
UMBOÐSAÐILAR: Bílver - Bernhard, Akranesi, sími 431 1985 • Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
Það brá mörgum í brún þegar
þáverandi meirihluti borgarstjórn-
ar ákvað að setja Fríkirkjuveg 11 á
sölu í október 2006. Gerð var út-
boðslýsing og duldist fáum að ver-
ið var að undirbúa sölu til ákveðins
aðila. Í útboðslýsingu stóð að um
væri að ræða húseignina að Frí-
kirkjuvegi 11 og 903 m2 lóð. Í febr-
úar 2007 bárust síðan 4 tilboð og
það hæsta var frá Novator, fyrir-
tæki í eigu Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar sem bauð 600 milljónir í
húseignina og 900 m2 lóð en í til-
boðinu segir enn fremur að það
byggi „á þeirri forsendu að heimild
verði veitt fyrir gerð viðhafnarað-
komu að húsinu frá Fríkirkjuvegi,
aðkomutorgi við sýningarsal í
kjallara og nýtingu baklóðar fyrir
aðkomu og bílastæði, sbr. með-
fylgjandi uppdrætti og samkomu-
lag verði gert um ný lóðamörk.“
Það kemur síðar í ljós að fyrir
þetta eru kaupendur tilbúnir að
greiða 200 milljónir til viðbótar. Á
óljósum uppdrætti má sjá viðhafn-
araðkomuna, torgið og stórt skarð
rofið í gerðið á bak við húsið.
Í febrúar 2007 samþykkti meiri-
hluti borgaráðs að taka hæsta til-
boði og fela sviðsstjórum fram-
kvæmda-, skipulags- og
umhverfissviðs að eiga viðræður
við kaupendur um hugsanlegar
breytingar á lóðinni og ef unnt
reynist að verða við þeim að meira
eða minna leyti. Kveðið er á um að
slíkur samningur verði lagður fyrir
borgarráð og að kaupverð greiðist
við afhendingu eignar, sem áætlað
var í síðasta lagi 1. september 2007.
Á bak við tjöldin
Nú er liðið rúmt hálft ár síðan
afhenda átti eignina en nýir eig-
endur eru ekki teknir við og húsið
stendur tómt. Samningsdrög voru
lögð fyrir borgarráð í febrúar og
ítrekað hefur staðið til að afgreiða
málið síðan. Í margvíslegum til-
raunum meirihlutans til að af-
greiða þetta vandæðalega mál er
mér kunnugt um það að reiknað er
með því að það verði komið til
móts við Novator, þ.e. gerð verði
viðhafnaraðkoma, torg og rofið
skarð í gerðið á bak við húsið og
sennilega komið í veg fyrir núver-
andi notkun gerðisins. Eftir það
hafi Novator neitunarvald varð-
andi allar hugsanlegar fram-
kvæmdir í Hallargarðinum og inn í
drögin er komið ákvæði þess efnis
að eigendur megi kalla til lögreglu
og loka garðinum ef „tignargestir“
séu í húsinu og það geti gilt fyrir
alla daga aðra en sumardaginn
fyrsta, 17. júní og Menningarnótt.
Íbúar í herkví
Á því eina og hálfa ári sem liðið
er síðan ákveðið var að selja Frí-
kirkjuveg 11 hafa borgaryfirvöld
ekki á nokkurn hátt haft samband
hvað þá samráð við íbúa svæðisins
og sennilega stendur það ekki til.
Íbúar hljóta þó að hafa fullan rétt til
þess að samráð sé haft við þá þar
sem verið er að ræða breytt skipulag
garðsins og gerðisins. Íbúum við
Laufásveg verður líklega um og ó
þegar þeir átta sig á því að þeir gætu
lent í herkví á milli ameríska sendi-
ráðsins og Fríkirkjuvegar 11 þegar
„tignargestir“ gista húsið. Það hefur
heldur ekki verið haft samráð við
Húsafriðunarnefnd ríkisins en hún
hlýtur að þurfa að fjalla um málið
þar sem um friðað hús og umhverfi
þess er að ræða og að mati Árbæj-
arsafns er húsið mikilvægur hluti af
umgjörð tjarnarinnar og götu-
myndar Fríkirkjuvegar.
Fullt forræði borgarbúa
Það er borginni til skammar
hvernig staðið hefur verið að mál-
um. Í raun er full ástæða til þess að
biðja alla hlutaðeigandi afsökunar.
Það á að biðja Novator afsökunar á
því að afgreiðsla málsins hefur
dregist úr hömlu. Það á að biðja
íbúa afsökunar á því að málið hafi
ekki verið borið undir þá og það á
að biðja bogarbúa og landsmenn
alla afsökunar á því að staðið hafi
til að setja forræði hluta af fegursta
opna svæði miðborgarinnar í
hendur einkaaðila. Undirritaður
lagði fram í borgarráði á fimmtu-
daginn svohljóðandi tillögu:
„Borgarráð samþykkir að leita leiða
til að afturkalla sölu á fasteigninni
að Fríkirkjuvegi 11 þar sem komið
hefur í ljós að nýr eigandi á erfitt
með að nýta eignina án verulegra
breytinga á almenningseign Reyk-
víkinga, Hallargarðinum.“ Tillög-
unni var frestað en Vinstri græn í
borgarstjórn leggja fram tillögu í
sama dúr á fundi borgarstjórnar á
þriðjudaginn. Verður hún tekin til
umræðu kl. 2 og hvet ég íbúa og
aðra áhugasama til að mæta á pall-
ana.
Höfundur er borgarfulltrúi VG
Verður Hallargarðurinn fyrir „tignargesti“?
UMRÆÐAN aÞorleifur Gunnlaugsson
Það er borg-
inni til
skammar
hvernig stað-
ið hefur verið
að málum. Í
raun er full
ástæða til þess að biðja
alla hlutaðeigandi afsök-
unar.