24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 25

24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 25
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 25 Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Í Þjóðminjasafni Íslands eru nokkrir gripir sem vitna um op- inberar refsingar á Íslandi, svo sem öxi og höggstokkur, gapastokkur og svarthol. Árni Björnsson þjóð- háttafræðingur hyggst ganga með gestum um grunnsýningu safnsins klukkan 12.05 í dag, kynna fyrir þeim þessa muni og setja þá í sögu- legt samhengi. Opinberar refsingar þekktust ekki á Íslandi fyrr en landsmenn urðu þegnar Noregskonungs, enda ekkert framkvæmdavald í landinu. Þá eru refsingar leiddar í lög, en ekki eru ýkja mörg dæmi um refs- ingar fyrr en kemur fram yfir siða- skipti á 16. öld. Ástæðan kann að vera sú að dómabækur hafi ekki verið færðar eða að þær hafi glat- ast. Síðan um 1600 eru á hinn bóg- inn til talsverðar heimildir og refsi- gleðin virðist mest á 17. og 18. öld. Lítið um heimildir Að sögn Árna er erfitt að full- yrða um hvort minna hafi verið um refsingar fyrir árið 1600 þar sem einungis er getið um þær í annálum. „Þeir voru mjög stutt- orðir og yfirleitt kom bara fram að manni hefði verið drekkt eða mað- ur hefði verið hálshöggvinn, en ekki hvar það hefði farið fram eða fyrir hvað. Skjöl frá þessum tíma hafa sennilega brunnið eða glatast á einhvern hátt og því er ekki hægt að slá neinu föstu. Hins vegar lítur flest út fyrir að refsigleðin hafi auk- ist mikið eftir að konungsvaldið efldist í kjölfar siðaskiptanna. Þar með voru konungur og kirkja orð- in eitt. Fram að því hafði kaþólska kirkjan haft mjög sterka stöðu og konungur og kirkja langt frá því alltaf sammála,“ segir hann. Fólk sem dæmt var til dauða var yfirleitt hálshöggvið, hengt eða því drekkt og að sögn Árna var nokkur kynjaskipting á aðferðunum. „Konum var í meira mæli drekkt heldur en körlum en það er ein- ungis til heimild um eina konu sem var hengd. Á galdratímabilinu, sem stóð frá 1635 til 1685 kom fyrir að fólk var brennt á báli fyrir galdra en að öðru leyti er einungis vitað um eina nunnu á Kirkjubæjar- klaustri sem var brennd á 14. öld.“ Hann bætir því við að sér hafi komið mjög á óvart að sjá þess get- ið að menn hefðu verið kviksettir. „Á það er minnst fjórum sinnum í annálum á 14. öld og þar af er einu sinni tekið fram hvert brot við- komandi var. Sá hafði átt mök við kýr.“ Sakamenn sem ekki voru dæmd- ir til dauða hlutu gjarnan líkamleg- ar refsingar á borð við húðstrýk- ingu, brennimerkingu og limalát. „Þjófar voru brennimerktir og svo voru stundum höggnar af þeim hendur eða þeir fingur sem þeir áttu að hafa stolið með. Gapa- stokkar, sem tíðkuðust gjarnan er- lendis, komu svo frekar seint til Ís- lands, enda markmiðið með þeim að veita mönnum smánarrefsingu á almannafæri á torgum bæja og borga. En hér voru engar borgir og engin torg þannig að eina leiðin til að hafa menn að athlægi á al- mannafæri var að festa þá við kirkjudyr. Kirkjurnar voru þá eini staðurinn þar sem fólk kom saman í hópum og hjá nokkrum kirkjum voru gapastokkar eða krókar til að festa þá við. Þetta þótti alltaf frekar skrítið því að kirkjan er hús Krists, sem boðaði bandingjum lausn, en samt voru bandingjar hengdir á hús hans.“ Árni Björnsson Fjallar um opinberar refsingar í sögulegu samhengi. Árni Björnsson eys úr viskubrunnum í Þjóðminjasafninu Saga refsigleðinnar Árni Björnsson ætlar að fjalla um opinberar refs- ingar á Íslandi fyrir gesti Þjóðminjasafnsins í há- deginu í dag. Þar eru meðal annars öxi og höggstokkur, gapa- stokkur og svarthol. ➤ Síðasta dauðarefsingin hér álandi var framkvæmd árið 1830 í Vatnsdalshólum þar sem karl og kona voru háls- höggvin. ➤ Til eru dæmi um að menn hafiverið dæmdir til að veita sjálf- um sér kjaftshögg fyrir óvandað orðbragð. Jón Hreggviðsson var einn af þeim, en hann hafði talað illa um konunginn. OPINBERAR REFSINGAR Tvær heimildarmyndir hol- lenska kvikmyndaleikstjórans Johns Appels verða sýndar í Hafn- arhúsinu næstkomandi fimmtu- dag, þann 17. apríl klukkan 20. Myndirnar heita The Last Victory frá árinu 2004 (88 mínútur að lengd) og The Promised Land frá árinu 2001 (50 mínútur að lengd). Að sýningum loknum verður boð- ið upp á umræður og fyrirspurnir, en leikstjórinn verður sjálfur við- staddur. Fyrr um daginn, eða klukkan 12, mun Appel halda op- inn fyrirlestur í Hafnarhúsinu um gerð handrita fyrir heimildar- myndir. Báðir viðburðirnir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. John Appel hefur gert fjölda heimildarmynda sem hafa unnið til verðlauna og viðurkenninga víða um heim. Hann hefur einnig víðtæka reynslu í stjórnun nám- skeiða með stuðningi MEDIA- áætlunar Evrópusambandsins. Frá árinu 2000 hefur hann starfað sem gestaprófessor við hollensku Kvik- mynda- og sjónvarpsakademíuna. Næsta fimmtudagskvöld í Hafnarhúsinu Tvær hollenskar heimildarmyndir Per Thorling Hadsun, forvörður frá Jyllands historiske museum, heldur fyrirlesturinn „Breytist í stein“ í Landnámssýningunni við Aðalstræti í dag klukkan 17. Hann stýrði forvörslu torfrústar frá landnámsöld, sem fannst óvenjuvel varðveitt við forn- leifauppgröft í Aðalstræti 16 árið 2001. Fyrirlesturinn verður haldinn á dönsku. Fyrirlestur um forvörslu Göran Rosberg fjallar um skipu- lagsmál í fyrirlestrinum „Var- anleg borgarþróun - sem dæmi Västra höfnin í Malmö“ í Nor- ræna húsinu í dag, þriðjudaginn 15. apríl milli klukkan 17 og 19. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er partur af dagskránni „Bygg- ingarlist í brennidepli, mannlíf í miðborg“. Varanleg borgarþróun Óskum að ráða frá 1. ágúst 2008: • grunnskólakennara á yngsta stig, miðstig og elstastig (áherslu á íslensku og ensku á elsta stigi) • grunnskólakennara í textílmennt, heimilisfræði, upplýsingatækni og tónmennta • skólaliða og starfsmenn í Frístund- síðdegisvistun • starfsmann með uppeldismenntun í Frístund Skoðaðu aðstæður og vertu með í liði sem byggir upp. Upplýsingar um störfin gefa skólastjóri og aðstoðarskóal- stjóri í símum skólans 540 4700, 821 5007, 821 5009 og netfang: sveinbjorn.njalsson@alftanesskoli.is og gudlaug.erla.gunnarsdottir@alftanesskoli.is Umsóknir sendist Álftanesskóla, 225 Álftanesi. Umsóknarfrestur til 23. apríl 2008 Sjá einnig vefina www.alftanesskoli.is og www.alftanes.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ. ,,Einn hefur yndi af þróttmiklum söng, annar vill staðreyndahjal” MENNING menning@24stundir.is a Þjófar voru brennimerktir og svo voru stundum höggnar af þeim hendur eða þeir fingur sem þeir áttu að hafa stolið með.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.