24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 20

24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is Hugmyndin að saumanámskeið- inu kviknaði fyrir rúmum þrem- ur árum þegar verið var að upp- færa valgreinar skólans. Þá datt kennurum það snjallræði í hug að halda stutt hraðnámskeið í kjólasaumi fyrir árshátíð skólans. Upp úr því var valið sett á lagg- irnar og hefur námskeiðið nú verið haldið þrisvar sinnum. Í ár voru um 20 stúlkur sem saum- uðu sér kjóla fyrir árshátíð skól- ans sem er nýlega afstaðin. Gaman að sauma eigin kjól „Við byrjuðum á því að skoða bæklinga hjá Gyðu þar sem við fundum fullt af hugmyndum. Einnig fór ég á netið og sá kjól þar sem var svipaður þeim sem ég saumaði síðan. Ég sýndi Gyðu kjólinn og hún teiknaði upp snið fyrir mig, en við notuðum líka snið sem hún átti og púsluðum þeim saman. Ég hafði séð kjólana sem stelpurnar saumuðu í fyrra og mig langaði til að sauma mér flottan kjól fyrir árshátíðina,“ segir Silja Guðbjörg Tryggvadótt- ir, nemandi í 10. bekk Rétt- arholtsskóla, sem tók þátt í nám- skeiðinu. Hún segir að það hafi verið mjög gaman að sauma sinn eigin kjól, en fyrst ákvað hún efnið sem er blátt satínefni. Saumaður í stykkjum Aðspurð um saumaskapinn segir Silja Guðbjörg hann ekki hafa verið svo erfiðan þar sem stelpurnar hafi fengið góða hjálp frá Gyðu. „Kjóllinn er saumaður í stykkjum og settur saman. Fyrst saumaði ég pilsið sem var dálítið vesen því að það þurfti að fella hverja einustu fellingu og setja fullt af títuprjónum í þær, en eft- ir það var þetta ekkert mál. Í handavinnutímum var alveg nóg- ur tími til að sauma kjólinn, ég fór bara í aukatíma daginn fyrir árshátíðina til að klára,“ segir Silja Guðbjörg. Satínefnin vinsælust „Það hafa allir komist að sem vilja ef hægt hefur verið að koma valinu fyrir, en stundatöflurnar eru misjafnar. Þessir þrír mán- uðir eru nákvæmlega nógur tími til að sauma kjól og hefur gengið vel. Stelpurnar fletta hjá mér blöðum og velja þar þá kjóla sem þeim líkar. Því næst reyni ég að finna snið sem eru lík viðkom- andi kjól í sniðablöðum og breyta þeim eins og þarf,“ segir Gyða. Hún segir sumar líka teikna upp sniðin sjálfar og séu satínefnin hvað vinsælust. Skól- inn útvegar efni sem stelpurnar velja sjálfar en þær geta síðan lagt út aukalega vilji þær kaupa dýrara efni. Stelpur í Réttarholtsskóla sauma eigin árshátíðarkjóla Satínefni vinsælust í kjólsauminn ➤ Mikilvægt er að vera óhrædd-ur við að þora og nota góð sniðablöð. Í þeim eru mál- tökur þannig að hægt er að mæla sig sjálfur yfir brjóst, mitti og mjaðmir. ➤ Þegar stærðin í viðkomandiblaði er fundin skal taka rúm- lega þá stærð og sauma eftir. AÐ SAUMA KJÓLHópur stúlkna úr Rétt- arholtsskóla saumaði sína eigin árshátíðarkjóla undir styrkri leiðsögn saumakennarans, Gyðu Jónsdóttur. Ein úr hópn- um, Silja Guðbjörg, segir saumaskapinn ekki hafa reynst erfiðan. Árshátíðarkjólar stelpn- anna Voru glæsilegir, Silja Guðbjörg er fremst til hægri. Hér eru nokkrar dagsetningar sem áhugafólk um tísku og tísku- viðburði ætti ekki að láta framhjá sér fara. Tískustarfskynning í New York Á hverju ári er haldið í New York svokallað Fashion Career Fair og verður það næsta haldið mið- vikudaginn 30. apríl næstkomandi í Metropolitan Pavilion. Hér koma saman þeir sem þegar vinna í tískuiðnaðinum og eru í leit að nýju starfi auk þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref. Fulltrúar helstu tískuhúsa og hönnuða verða á staðnum, meðal annars frá Polo Ralph Lauren. Ástralska tískuvikan París, Mílanó, New York, Lond- on og já, Sydney. Þar er haldinn stærsti tískuviðburður Ástralíu, Rosemount Australian Fashion Week, eða RAFW. Hér gefst hönn- uðum kostur á að sýna tískulínur komandi árstíða sem seldar verða í heildsölu. Einblínt er á götutísku og hingað hafa hönnuðir meðal annars frá Indlandi, Japan og Nýja-Sjálandi komið með hönnun sína. Innkaupafulltrúar leiðandi stórverslana og sérverslana sækja þessa tískuviku. Montreal Naffem Eina sýning sinnar tegundar í Norður-Ameríku á vönduðum úti- vistarfatnaði og fylgihlutum. Hér sýna yfir 200 hönnuðir frá öllum heimshornum vörur sínar svo sem loðfeldi og leðurvörur. Mikilvægir atburðir á tískudagatalinu New York, Montreal og Sidney Hönnuður og fyrirsæta Á áströlsku tískuvikunni. www.ynja.is Útsölustaðir: Nana Hólagarði, Esar Húsavík, Smart Vestmannaeyjum, Pex Reyðarfirði, Efnalaug Vopnafjarðar, Heimahornið Stykkishólmi Opnunartími Mán.-fös. 11-18, lau. 11-14 Hamraborg 7 Kópavogur Sími 544 4088 Ný sending frá Vanity Fair Fæst í hvítu, svörtu, gylltu og dökk rauðu Verð 4.990 Ennþá sama verðið Frábær verð og gæði – Persónuleg þjónusta Dr.Hauschka Náttúrulegar snyrtivörur Rósakrem fyrir þurra og viðkvæma húð Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber hjálpa til við að varðveita rakann í húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og veitir henni sérstaka vernd. Rósakremið inniheldur einungis hrein náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar lækningajurtir. Það er án allra kemiskra rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á einnig við um allar aðrar vörur frá Dr.Hauschka. Útsölustaðir: Yggdrasill Skólavörðustíg 16, Fræið Fjarðarkaup, Lyf & heilsa Kringlunni, Lífsins Lind Kringlunni, Lyfja, Maður Lifandi og Heilsuhornið Akureyri. dreifing:

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.