24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 12

24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Kristján Möller samgönguráðherra hefur viðrað hugmyndir um að lág- marksfjöldi íbúa í sveitarfélagi verði 1.000 manns. Þetta eru ekki nýjar hug- myndir og því síður eru þær óskynsamlegar. Þegar horft er á kort af sveit- arfélögum með færri en 1.000 íbúa, eins og það sem birtist hér í blaðinu um helgina, liggur í augum uppi að sveitarfélögin eru alltof mörg og margir möguleikar á sameiningu. Það er áreiðanlega rétt hjá ráðherranum að 1.000 manns er nálægt því að vera sú lágmarksstærð sem þarf til að sveitarfélag geti sinnt núverandi lög- bundnum skyldum sínum við íbúana og þeim verkefnum sem rætt er um að færa frá ríkinu til sveitarfélaganna, t.d. þjónustu við fatlaða og aldraða. Markmiðið með sameiningu sveitarfélaga er ekki sízt að greiða fyrir þessum verkefnatilflutningi; að færa verkefni hins opinbera og valdið yfir þeim nær fólkinu. Ef pínulitlir hreppar með fáeina tugi íbúa halda áfram að streitast á móti sameiningu, er ekki hægt að ganga eins langt og annars í að draga úr miðstýringu og færa valdið til fólksins. Samt er það svo þversagnakennt og kaldhæðnislegt að það er fólkið sjálft, sem hefur hafnað því að skapa aðstæður til að minnka miðstýringu opinberrar þjónustu. Þar kemur vafalaust margt til. Íbúar sveitahreppa ótt- ast að verða afskiptir um þjónustu ef þeir sameinast þéttbýliskjörnum. Jafnvel þótt fólk fái betri skóla með sameiningu sveitarfélaga, hrýs mörgum hugur við að senda börnin sín tugi kílómetra leið með skólabíl á hverjum degi. Sumir hafa áhyggjur af að þjónusta og stjórnarhættir verði ópersónu- legri, jafnvel bara í 1.000 manna sveitarfélagi. Rétta leiðin í sameiningu sveitarfélaga er ekki valdboð að ofan. Það er lykilatriði að hér eftir sem hingað til komi frumkvæðið og ákvörðunin frá sveitarfélögunum sjálfum. Hins vegar gætu stjórnvöld gert eina lagabreytingu, sem myndi líkast til greiða fyr- ir sameiningu sveitarfélaga. Þau gætu gert ráð fyrir þeim möguleika, að tiltekinn fjöldi íbúa í „gömlu“ sveitarfélagi geti farið fram á að fá að greiða atkvæði um að segja á ný skilið við sameinaða sveitarfélagið. Með þessu myndu menn skapa aukið aðhald með sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi að standa við þau loforð, sem iðulega eru gefin þegar kjósa á um sameiningu sveitarfélaga. Sömuleiðis hefðu íbúarnir tryggingu fyrir því að ef sameiningin stæði ekki undir væntingum, gætu þeir fengið litla, veikburða sveitarfé- lagið sitt aftur og tekið afleiðingunum. Vill fólkið valdið? SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Hér sitjum við uppi með sömu mennina áratugum saman í æðstu stöðum með þeim afleið- ingum að kerfin skilyrðast gagn- vart ákveðnum einstaklingum og vinum þeirra. Um þetta eru skelfileg dæmi. Afleiðingarnar verða spilling, getuleysi og skortur á fókus á það að þessar stofnanir og fyrirtæki eru til fyrir almenning en ekki stjórnendur, ráðamenn, stjórnmálaflokka og þeirra hégóma. Ég held að stóra málið fari að verða að við gerum hér eins og Bandaríkjamenn gerðu [...] að enginn mætti gegna embætti lengur en í átta ár. Pétur Gunnarsson eyjan.is/hux BLOGGARINN Ekki gott kerfi Þung umræða er nú um framtíð peninga- og gjaldmiðilsmála okk- ar Íslendinga. Nýjasta birting- armyndin er til- laga Samtaka atvinnulífsins um evruvæðingu einkageirans. Það held ég að sé ekki góð leið og vísa í niðurstöðu Jóns Þórs og Eiríks Bergmanns í bók þeirra um evruna. Sjálfkrafa upp- taka evrunnar er ekki góð leið heldur verðum við að taka form- lega ákvörðun um aðild að mynt- bandalagi. […] Við höfum tvo kosti; núverandi fyrirkomulag gjaldmiðilsmála eða aðild- arumsókn að Efnhags- og mynt- bandalagi Evrópu. Björgvin G. Sigurðsson bjorgvin.is Þung umræða Boðskapur Gores var ekki í gam- aldags ræðuformi en var skreytt- ur mikilli grafík og mynd- skeiðum; ekki skrýtið heldur, Gore er orðinn verðlaunaður kvikmyndafram- leiðandi. Ekki er þó hægt að mæla með því að menn sæki sýningar hans oft. Sjálfur sat ég svona sýningu úti í Færeyjum á ráðstefnu þar sem ég var með erindi. Las svo í frásögnum þegar heim var komið að allt var eins á báðum stöðum. Meira að segja brandarinn sem sagður var í upphafi sýning- arinnar úti í Færeyjum var sá sami í Háskólabíói. Einar K. Guðfinnsson ekg.is Endurunninn Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Þrátt fyrir ótvíræða kosti netsins hefur það því miður aukið möguleika kynferð- isbrotamanna á því að tæla börn og að hafa aðgang að og dreifa efni þar sem börn eru beitt kynferðislegu of- beldi. Mjög mikilvægt er því að stöðva útbreiðslu slíks efnis á netinu og hvetja Barnaheill almenning til virkr- ar þátttöku í að stöðva útbreiðsluna. Hægt er að senda ábendingar til Barnaheilla (www.barnaheill.is) eða á embætti ríkislögreglustjóra ef fólk rekst á efni þar sem sem börn eru sýnd á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum er alvarlegt brot á réttindum barna. Mikilvægt er að hafa í huga að við gerð og framleiðslu efnis sem sýnir barn á kyn- ferðislegan og klámfenginn hátt, svokallað barnaklám, er verið að beita það barn sem á myndinni er kynferð- islegu ofbeldi. Í hvert einasta skipti sem myndin er skoðuð heldur ofbeldið gegn barninu áfram. Vitneskja barns, sem beitt hefur verið kynferðislegu ofbeldi, um að mynd af því sé á netinu veldur því enn meira hug- arangri og miska. Hver sá sem verður uppvís að því að nýta sér slíkt myndefni er að fremja refsivert athæfi. Litlu máli skiptir þá hvort um íslenska eða erlenda heimasíðu er að ræða. Þó mikilvægt sé að finna brota- mennina, er ekki síður mikilvægt að finna börnin sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi og sýnd eru á netinu. Gagnagrunnur INTERPOL hefur að geyma hátt í milljón myndir sem sýna kynferðislegt ofbeldi gegn meira en 20.000 börnum. Hins vegar eru aðeins fyrirliggjandi upplýsingar um að rúmlega 500 þessara barna hafi fundist. Barnaheill leggja mikla áherslu á að börnin finnist og fái þann stuðning sem þau þurfa og vinna Evrópusamtök Barnaheilla - Save the Children ötullega á þeim vettvangi. Til að fleiri börn finnist þarf samræmdar aðgerð- ir hjá stjórnvöldum og lögreglu á al- þjóðavettvangi og samræmdar að- gerðir hjá stjórnvöldum, lögreglu og barnaverndaryfirvöldum í hverju landi fyrir sig. Í reynd þýðir það nýja forgangsröðun og meira fjármagn og eru íslensk stjórnvöld þar ekki und- anskilin. Höfundur er framkvæmdastjóri Barnaheilla, Save the Children, á Íslandi Þarf samhæfðar aðgerðir ÁLIT Petrína Ásgeirsdóttir petrina@barnaheill.is T.G.I. FRiDAYŚ ...snakkið er á leiðinni www.snakk.is ...engu öðru líkt! mikið úrval www.billiard.is Suðurlandsbraut 10 Reykjavík Sími 568 3920 & 897 1715 Fótboltasspil

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.