24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir
STUTT
● Gæsluvarðhald Héraðs-
dómur Reykjavíkur úrskurð-
aði í gær að einn þeirra sex,
sem handteknir voru í tengsl-
um við grófa líkamsárás í
Keilufelli í mars, sæti áfram-
haldandi varðhaldi til 5. maí.
Fjórir voru úrskurðaðir í far-
bann til 5. maí en sjötti mað-
urinn er frjáls ferða sinna.
● Árétting Í viðtali við Salóme
E. Ingólfsdóttur um helgina
stóð: „Eingöngu er ráðlögð
brjóstamjólk til 6 mánaða ald-
urs.“ Salóme vill að fram komi
að ungbörn þurfa D-vítamín-
bætiefni frá 4 vikna aldri auk
brjóstamjólkurinnar og frá 6
mánaða aldri er ráðlagt að hafa
börn áfram á brjósti jafnhliða
því að þau nærast á fleiri fæðu-
tegundum og hafa mataræði
sem smátt og smátt verður fjöl-
breyttara.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
„Í Djíbúti skrifuðum við í raun
undir næsta stig,“ segir Ásta Þor-
leifsdóttir, varaformaður stjórnar
Reykjavík Energy Invest (REI), um
samkomulag um hagkvæmnisat-
hugun sem forsvarsmenn fyrirtæk-
isins undirrituðu ásamt stjórnvöld-
um í Afríkuríkinu Djíbútí í síðustu
viku. Samkomulagið felur einnig í
sér ákvæði þar sem djíbútísk
stjórnvöld skuldbinda sig til að
kaupa alla orku frá fyrirhugaðri
virkjun. Viðstaddir undirritunina
voru fulltrúar frá Alþjóðabankan-
um, fjármögnunarsjóði Alþjóða-
bankans (IFC) og Evrópska fjár-
festingarbankanum, en litið er til
þessara aðila varðandi fjármögnun
á mögulegri jarðvarmavirkjun í
landinu sem REI myndi þá byggja.
Auk raforkusölunnar felur sam-
komulagið í sér ákvæði um tilhög-
un leyfisveitinga og fyrirkomulag
tolla- og skattamála verði virkjunin
að veruleika.
Skilar öruggri arðsemi
Að undanförnu hafa farið fram
athuganir á því hvort jarðvarminn í
Djíbútí sé virkjanlegur. Ásta segir
þær athuganir hafa staðfest að ork-
an sé til staðar. „Verði af virkjun-
inni þá hafa stjórnvöld Í Djíbútí nú
lofað að kaupa orkuna á ákveðnu
verði sem skilar öruggri arðsemi.
Það sem snýr beint að REI núna er
hver stærð virkjunarinnar ætti að
vera og hvar ætti að staðsetja bor-
holur. Hin hliðin á þessu er síðan
fjármögnunin. Hún er á hendi
þessara stóru alþjóðlegu aðila sem
sýna þessu svona mikinn áhuga.“
Í kjölfarið munu starfsmenn
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) vinna
skýrslu um umhverfismat á svæð-
inu ásamt sérfræðingum frá Ís-
lenskum orkurannsóknum
(ÍSOR).
Viljayfirlýsing í Jemen
Íslenska sendinefndin fór einnig
til Jemens og Eþíópíu í ferðinni. Í
Jemen undirrituðu fulltrúar REI
viljayfirlýsingu um að fyrirtækið
myndi kanna möguleika þess að
byggja þar virkjun. Samkvæmt því
samkomulagi mun jarðvísinda-
stofnun Jemen nú senda REI allar
upplýsingar um jarðvarmarann-
sóknir sem hafa verið fram-
kvæmdar þar og í staðinn mun REI
mögulega senda jarðvísindamann
þangað til að kynna sér aðstæður.
REI á að vera búið að ljúka þessari
forathugun sinni fyrir lok ágúst
næstkomandi.
Að þeim tíma liðnum stendur til
að ræða frekar við þarlend stjórn-
völd. Í Eþíópíu var ekki skrifað
undir neitt að þessu sinni þar sam-
bærileg viljayfirlýsing var undirrit-
uð í janúar síðastliðnum.
Munu kaupa
alla orkuna
REI undirritaði hagkvæmnisathugun í Djíbútí Stjórnvöld þar
skuldbinda sig til að kaupa alla orku frá fyrirhugaðri virkjun
➤ REI undirritaði viljayfirlýsinguum samstarf við Djíbúti um
könnun á jarðhitasvæðum í
febrúar 2007.
➤ Í síðustu viku skrifaði REI und-ir hagkvæmnisathugun um
nýtingu á jarðhita í landinu.
➤ Ætlunin er að fjármagn hanameð fé frá fjármögnunarsjóði
Alþjóðabankans og Evrópska
fjárfestingarbankanum.
➤ Rannsóknarboranir ættu aðgeta hafist í lok árs.
REI OG DJÍBÚTÍ
24stundir/G.Rúnar
Samstarfsvilji Guðlaugur Þór Þórð-
arson, þáverandi stjórnarformaður
OR, og utanríkisráðherra Djíbúti und-
irrita viljayfirlýsingu í febrúar 2007.
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á
skyr.is með jarðarberjum í 500 g dós. Hæsta verð
reyndist vera 43,9% hærra en lægsta verð eða 83
króna munur.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingu.
44% verðmunur á skyr.is
Sonja
McManus
NEYTENDAVAKTIN
skyr.is m/jarðarberjum 500 g dós
Verslun Verð Verðmunur
Kaskó 189
Krónan 189
Skagfirðingabúð 223 18,0 %
Samkaup-Strax 246 30,2 %
Hagkaup 257 36,0 %
11-11 272 43,9 %
Meistaranám í menntunarfræði
MENNTAVÍSINDASVIÐ www.khi.is
Umsóknarfrestur er til 15. apríl / Skráning og upplýsingar á www.khi.is
Fjölmenning · Fræðslustarf með fullorðnum – mannauðsþróun
Heimspeki menntunar · Íslenska – íslenskukennsla
Kennslufræði og skólastarf · Listmenntun – listasaga – verkmenntun
Mál og læsi · Menntunar- og kennslufræði yngri barna
Náttúrufræðimenntun · Sérkennslufræði
Stjórnunarfræði menntastofnana · Stærðfræðimenntun
Upplýsingatækni og miðlun
Suðurlandsbraut 24 • 108 Reykjavík • Sími 569 0900
Fax 569 0909 • lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is
Tilkynning
til sjóðfélaga í Aldursdeild (áður Stigadeild)
Lífeyrissjóðs bankamanna
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna vill vekja athygli á
breytingu sem varð á réttindakerfi Stigadeildar með
nýjum samþykktum sem tóku gildi 1. janúar 2008 og
heitir deildin Aldursdeild frá þeim tíma. Með
breytingunni er horfið frá stigakerfi og í stað þess tekið
upp aldurstengt réttindakerfi. Með tilkynningu þessari
vill stjórnin vekja sérstaka athygli á 37. gr. samþykkta
sjóðsins þar sem kveðið er á um að réttindamunur
sjóðfélaga, sem hugsanlega myndast milli stigakerfisins
og aldurstengda kerfisins verði jafnaður með greiðslum
inn á séreignarlífeyrissparnað. Þar sem einungis er um
jöfnun framtíðarréttinda að ræða, þá á þetta einungis
við um þá sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld til
deildarinnar í desember 2007 og hafa ekki hætt
iðgjaldagreiðslum til deildarinnar.
Með yfirlitum, sem eru að berast sjóðfélögum, fylgir
eyðublað, sem er beiðni um greiðslu áunninnar
fjárhæðar, sem sjóðfélagi hugsanlega á rétt á, til
vörsluaðila lífeyrissparnaðar. Er hér með skorað á þá
sjóðfélaga, sem vilja koma til álita við úthlutun
uppbótar, að skila beiðni þessari til skrifstofu sjóðsins,
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík FYRIR 30. APRÍL
2008. Sjóðurinn mun síðan á næstu vikum senda
sjóðfélögum Aldursdeildar bréf, þar sem fram kemur
hvort viðkomandi á rétt til séreignarframlags skv. 37.
gr. samþykktanna.
Að öðru leyti vill stjórnin benda á samþykktir sjóðsins
sem nálgast má á vefsíðu hans: www.lifbank.is.
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna.
Í boði eru fjölbreytt sveita- og garðyrkjustörf hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Nánari upplýsingar gefa Snorri í síma 843-5341(snorri@
lbhi.is) eða Kári í síma 8435306 (kari@lbhi.is)
Vantar þig
skemmtilega vinnu í sumar?