24 stundir - 15.04.2008, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8
VÍÐA UM HEIM
Algarve 20
Amsterdam 11
Alicante 17
Barcelona 16
Berlín 14
Las Palmas 21
Dublin 10
Frankfurt 8
Glasgow 10
Brussel 10
Hamborg 10
Helsinki 5
Kaupmannahöfn 10
London 10
Madrid 17
Mílanó 13
Montreal 2
Lúxemborg 4
New York 6
Nuuk -1
Orlando 13
Osló 9
Genf 10
París 8
Mallorca 17
Stokkhólmur 10
Þórshöfn 5
Suðlæg átt, 5-10 m/s. Skýjað að mestu sunn-
antil og úrkomulítið, en annars bjart með
köflum. Þykknar heldur upp vestanlands síð-
degis. Hlýnar í veðri og hiti 2 til 8 stig síðdeg-
is.
VEÐRIÐ Í DAG
5
3
-5
2
-1
Hlýnar í veðri
Suðaustan 8-15 m/s við suður- og vest-
urströndina og dálítil væta, en hægari og bjart
að mestu norðan- og austanlands. Hiti 3 til 10
stig, hlýjast á Suðvesturlandi.
VEÐRIÐ Á MORGUN
6
4
0
3
1
Allt að 10 stiga hiti
„Það er verið að ala á þeirri
staðalímynd að allir Pólverjar séu
veiðiþjófar,“ segir Einar Skúlason,
framkvæmdastjóri Alþjóðahússins,
um grein í nýjasta hefti Veiði-
mannsins sem ber heitið „Þeir
kunna að bjarga sér í Póllandi“. Í
greininni segir blaðamaður frá því
sem honum þykir vera frumstæðar
veiðiaðferðir heimamanns sem
hann rakst á í ferð sinni til Pól-
lands.
Blaðamanni Veiðimannsins
þótti skondið að fylgjast með veiði-
manninum bisa við að koma fá-
tæklegri bifreið sinni í gang: „Eftir
stóðu skellihlæjandi Íslendingar
sem fylgdust með einstökum til-
burðum pólsks veiðimanns sem
hafði líklega gilt veiðikort upp á
vasann líkt og þeir Pólverjar sem
fiska í dýrustu laxveiðiám Íslands.“
Og um stoltan veiðimanninn að
veiði lokinni segir hann: „Með
lopahúfuna niður að nefi brosti
veiðimaðurinn sínu breiðasta svo
yfirvararskeggið teygði sig út fyrir
horaðar kinnarnar.“
Einari þykir tónninn í greininni
vera yfirlætisfullur. „Það er verið að
setja Íslendinga skör hærra en Pól-
verja.“
Unnur Dís Skaptadóttir, pró-
fessor í mannfræði við Háskóla Ís-
lands, tekur undir að skrifin beri
vott um fordóma og fáfræði. „Höf-
undur áttar sig líklega ekki á því að
með svona skrifum sé verið að ýta
undir neikvæð viðhorf í garð Pól-
verja.“ hlynur@24stundir.is
„Eftir stóðu skellihlæjandi Íslendingar“
Eru allir Pólverjar veiðiþjófar?
Umdeild Greinin
þykir fordómafull.
Tillaga borgarfulltrúa Vinstri
grænna um að hætt verði við sölu á
húsinu við Fríkirkjuveg 11 til
Novators, fjárfestingarfélags Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar, verður
tekin fyrir á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í dag.
Novator átti á sínum tíma hæsta
tilboðið í húsið, en í því kom fram
að forsenda þess væri að nýir eig-
endur fengju að gera breytingar á
umhverfi hússins sem væru nauð-
synlegar í ljósi þess hlutverks sem
húsinu væri ætlað. Tillögur um
þessar breytingar hafa í þrígang
komið fyrir borgarráð en ávallt
verið teknar af dagskrá.
Borgarfulltrúarnir segja ljóst að
ef ekki er hægt að upfylla forsendur
tilboðsins sé réttast að hætta við
söluna. elias@24stundir.is
Tillaga Vinstri grænna í borgarstjórn í dag
Vilja hætta við sölu
Fríkirkjuvegar 11
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt þrítugan karlmann í 8 mánaða
fangelsi fyrir aðild að svonefndu
Tryggingastofnunarmáli. Á rúmlega
5 ára tímabili gaf kona sem þar starf-
aði út 781 tilhæfulausa kvittun fyrir
útborgun og blekkti gjaldkera TR til
að greiða að tilefnislausu tæpar 76
milljónir króna úr sjóðum stofn-
unarinnar. Þá var 52 ára gömul kona
dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir aðild að sama máli. Mál mannsins og konunnar voru
skilin frá aðalmálinu, sem ekki hefur verið dæmt í enn. Alls voru 20
ákærð í málinu. Maðurinn, sem dæmdur var í gær, var fundinn sekur
um að hafa haft milligöngu um að útvega reikninga, sem greitt var inn
á með sviksamlegum hætti. Inn á reikninga mannsins runnu rúmar 9
milljónir króna. Konan var ein þeirra sem tóku við fénu en inn á
reikning hennar voru á þriggja ára tímabili lagðar um 7 milljónir
króna í 69 færslum. mbl.is
Fangelsi fyrir aðild TR-máli
Foreldrasamtökin Vímulaus æska
taka í notkun nýtt Foreldrahús
við Borgartún 6 í dag.
Vímulaus æska hefur rekið For-
eldrahúsið í Vonarstræti 4b í
Reykjavík frá því í apríl 1999 en
nú flyst öll starfsemin í ný húsa-
kynni í Borgartúni 6.
Nýtt Foreldra-
hús opnað
Samninganefndir Félags íslenskra
atvinnuflugmanna og Icelandair
hittast hjá ríkissáttasemjara á
morgun. „Við viljum skamm-
tímasamning fram á næsta vor
vegna óvissunnar í þjóðfélaginu
en fulltrúar Icelandair hafa al-
gjörlega hafnað því. Þeir vilja
samning til 30. nóvember 2010,“
segir Örnólfur Jónsson, formað-
ur samninganefndar flugmanna.
Hann segir það skýrast í lok vik-
unnar hvenær verkfall verður ef
til þess kemur en félagsmenn
hafa lagt til að undirbúningur
þess verði hafinn.
ibs
Flugmenn undirbúa verkfall
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Fjarvistir starfsmanna í fyrirtækj-
um hér á landi hafa aukist að með-
altali um rúmlega 2 daga á hvern
starfsmann á árunum 2004 til
2006. Það gerir aukningu upp á
tæplega 1.700 ársverk ef miðað er
við íslenskan vinnumarkað í heild
árið 2007. Þetta kemur fram í
gagnagrunni ParX viðskiptaráð-
gjafar IBM
Fjarvistirnar jukust að meðaltali
um 1,5 dag á hvern starfsmann á
milli áranna 2004 og 2005, en um
0,7 milli 2005 og 2006.
Verst mætt hjá hinu opinbera
Snorri Jónsson, mannauðsráð-
gjafi hjá ParX, segir mikinn mun á
fjarvistum á milli atvinnugreina.
Tíðastar séu þær hjá opinberum
stofnunum og munar mestu í lang-
tímafjarvistum. Fjarvistir séu til að
mynda helmingi algengari hjá hinu
opinbera en hjá hátæknifyrirtækj-
um.
„Þetta kemur mjög á óvart, og
þarfnast nánari skoðunar,“ segir
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, lekt-
or við viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands. Hann bendir þó á
að kröfur til starfsmanna séu að
aukast, sem og álagið, og hagræð-
ing innan fyrirtækja valdi því oft að
fleiri störf færast á hvern starfs-
mann. „Eitthvað þarf þá undan að
láta og oft er það heilsan.“
Fjölgun fjarvista getur haft mik-
inn kostnað í för með sér fyrir fyr-
irtæki og stofnanir. Ef miðað er við
meðalgrunnlaun félagsmanna
Stéttarfélags í almannaþjónustu
(SFR) árið 2007, 222 þús. kr. á
mánuði, kosta 1.700 ársverk rúma
4,5 milljarða. Ef miðað er við með-
algrunnlaun VR árið 2007, 329
þús. kr. á mánuði, kosta 1.700 árs-
verk rúma 6,7 milljarða.
Snorri segir þó erfitt að meta
kostnað vegna fjarvista. Ekki sé víst
að sá sem hleypur í skarðið fyrir
veikan starfsmann skili jafn mikilli
framlegð og sá sem leystur er af, né
hvort einhver yfirhöfuð geti leyst
hann af.
„Það er til mikils að vinna að
fækka fjarvistardögum, enda geta
ástæður fjarvista oft legið í þáttum
sem hægt er að fyrirbyggja,“ segir
Snorri. Hann segir þó erfitt að full-
yrða um hvað þurfi að bæta hjá
fyrirtæki til að fækka fjarvistum.
Fjarvistir tíðastar
hjá hinu opinbera
Fjarvistir aukast um 1.700 ársverk milli áranna 2004 og 2006
Kröfur til starfsmanna og álag hefur aukist, segir lektor
Snorri Jónsson Segir til
mikils að vinna að fækka
fjarvistardögum.
➤ Að meðaltali hafa fjarvistiraukist um rúmlega 2 daga hjá
hverjum starfsmanni hér á
landi, skv. könnun ParX.
➤ Um 130 fyrirtæki með um 60þúsund starfsmenn tóku þátt
í könnuninni.
FJARVISTAKÖNNUN
● Lést í eldsvoða Maðurinn
sem lést í eldsvoða í raðhúsi
við Skúlabraut 45 á Blöndu-
ósi að morgni sunnudags hét
Björn Kristjánsson, 48 ára.
Hann lætur eftir sig tvo
uppkomna syni.
Tilkynnt var um eldsvoðann
klukkan 6.15 á sunnudags-
morgun. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á
Blönduósi er íbúðin mikið
skemmd ef ekki ónýt eftir
eldsvoðann. Þá fór reykur
um nærliggjandi íbúðir í
raðhúsinu. Eldsupptök eru
ókunn.
Lögreglan á Akureyri fer
með rannsókn málsins auk
lögreglunnar á Blönduósi.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
STUTT