24 stundir - 15.04.2008, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Robert Zoellick, yfirmaður Al-
þjóðabankans, segir hækkandi
matarverð geta steypt 100 milljón-
um manna í fátækustu ríkjum
heims í enn meiri fátækt. Yfirlýsing
Zoellicks kemur í kjölfar orða
Dominique Strauss-Kahn, fram-
kvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, um að hundruð þúsunda
manna ættu nú á ættu á að deyja úr
hungri. Strauss-Kahn segir að ef
áframhald verði á hækkunum geti
afleiðingarnar orðið skelfilegar.
„Líkt og sagan hefur sýnt okkur, þá
geta deilumál sem þessi endað með
stríði.“ Alþjóðabankinn hefur nú
lagt til nýja aðgerðaáætlun til að
efla landbúnaðarframleiðslu í
heiminum.
Ört hækkandi matarverð
Verð á helstu matvörum hefur
hækkað ört síðustu mánuði. Al-
þjóðabankinn telur að verð á
hveiti, hrísgrjónum og korni hafi
hækkað um 83 prósent á síðustu
þremur árum. Ástæðurnar eru
meðal annars taldar vera aukin eft-
irspurn í Kína og Indlandi, slæmt
veðurfar, útflutningsbann í fram-
leiðsluríkjum, hækkandi olíuverð
og nýting ræktunarlands til fram-
leiðslu lífræns eldsneytis.
Zoellick segir nauðsynlegt að
gripið verði til aðgerða til að
sporna við þróuninni. „Á meðan
margir hafa áhyggjur af því að ná
að fylla bensíntankinn, eru margir
úti í heimi sem eiga í mestu vand-
ræðum með að fylla maga sína.“
Hann kallar eftir frekari aðstoð við
hjálparþurfi í fátækari ríkjum
heims og fátæka bændur. Alþjóða-
bankinn vinnur nú að því að út-
vega bændum fjármagn til að geta
ræktað lönd sín. Zoellick segir þó
að efnaðari þjóðir heims verði að
auka stuðning sinn þegar í stað til
að útvega megi Matvælastofnun
Sameinuðu þjóðanna þær 500
milljónir Bandaríkjadala sem vant-
ar upp á neyðaraðstoð næstu vik-
urnar.
Þróunarríkin hafa hagnast
Henry Paulson, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, segir að þó
að ástandið sé víða slæmt þá hafi
hærra matvælaverð hjálpað þróun-
arlöndum mikið á undanförnum
árum. Hann bendir á að verðhækk-
anir síðustu ára hafi skilað fjölda
þróunarríkja miklum hagvexti.
„Þrátt fyrir þær hættur sem fylgja
því að hægst hafi á í bandarísku
efnahagslífi eru þróunarlönd á
leiðinni að ná að meðaltali sex pró-
senta hagvexti sjötta árið í röð.“
Paulson segir þróunarríki því
hafa stórhagnast á útflutningi á
grunnvörum, en að umbætur í við-
skiptaumhverfi væru nauðsynlegar
til að fólk geti brotist út úr fátækt-
inni. Hvatti hann stjórnvöld í þró-
unarríkjum að standa af sér þá
freistingu að grípa til verðstýringar,
sem væri ekki rétta leiðin til að
tryggja hag bágstaddra.
Mótmæli gegn verðhækkunum
Til átaka hefur komið víðs vegar
um heim í mótmælaaðgerðum al-
mennings gegn hækkandi mat-
vælaverði. Tugir manna létu lífið í
mótmælum í Kamerún í síðustu
viku, en ástandið hefur verið sér-
staklega slæmt á Haítí í Karíbahafi.
Fimm manns létust þar í óeirðum á
götum úti fyrir helgi og í gær var
starfsmaður Sameinuðu þjóðanna
myrtur í höfuðborginni Port-au-
Prince.
Haítíska þingið samþykkti um
helgina að víkja forsætisráðherra
landsins, Jacques-Edouard Alexis,
frá völdum fyrir vanrækslu við
þjóðina. Haítí er eitthvert fátæk-
asta ríki heims, þar sem daglaun
flestra landsmanna eru ekki hærri
en sem svarar 150 krónum.
Zoellick segir
aðgerða þörf
Fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir hærra matarverð geta
komið fátækari ríkjum heims til góða Ekkert lát á hækkunum
➤ Stjórnvöld í nokkrum afhelstu framleiðsluríkjum
heims hafa gripið til þess
ráðs að setja hömlur á út-
flutning til að halda verðinu
niðri heima fyrir.
➤ Alþjóðabankinn hefur ákveð-ið að setja 10 milljónir Banda-
ríkjadala í matvælaaðstoð á
Haítí á næstunni.
HÆKKANDI MATARVERÐ
© GRAPHIC NEWSHeimildir: Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissj. Ljósmynd: Getty Images
Hækkun matarverðs leiðir til mótmæla víða um heim
Hækkun matarverðs hefur verið rakin til hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu, sem
hefur leitt til hærra áburðarverðs og flutningskostnaðar; þurrka, sem hafa eyðilagt
uppskeru í Ástralíu og Afríku; þeirrar ákvörðunar að nýta ræktunarland til framleiðslu
lífræns eldsneytis og útflutningshafta í nokkrum helstu framleiðsluríkjum heims.
Útflutningsbann Mótmæli gegn hærra
matarverði
Mexíkóborg,
Mexíkó
Sefrou,
Marokkó
Maputo,
Mósambík
Bankura,
Indland
Kaíró, Egyptaland
Rússland
Kasakstan
Nouakchott, Máritanía
Hækkandi matarverð
(mars 2007- mars 2008)
KORN
Hækkun
31%
Hækkun
74%
Hækkun
87%
Hækkun
130%
HRÍSGRJÓN SOJA HVEITI
Dakar, Senegal
Abidjan, Fílabeinsströndin
Douala, Kamerún Jakarta,
Indónesía
Kambódía
Víetnam
Argentína
Kína
Úkraína
Port-au-Prince,
Haítí
Illka Kanerva, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Finnlands, segir að
hann hafi hlotið ósanngjarna með-
ferð í tengslum við sms-hneykslið
sem leiddi til afsagnar hans fyrr í
mánuðinum. Í stórum viðtölum
við finnska fjölmiðla um helgina
segir Kanerva að Jyrki Katainen,
fjármálaráðherra og formaður
Hægriflokksins, hafi svikið sig og
að með málinu hafi stjórnmála-
menn fyrirgert rétti sínum til
einkalífs.
Kanerva segist hafa ætlað að
sækja um stöðu hjá Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandinu eftir að ráð-
herratíð sinni lyki. „Sú áætlun er
nú að engu orðin, líkt og restin af
lífsverki mínu.“
Kanerva sagði af sér eftir að upp
komst að hann hefði sent nektar-
dansmey um 200 vafasöm sms, þar
sem hann bauð henni í mat og for-
vitnaðist um klæðnað hennar. aí
Fyrrverandi utanríkisráðherra Finnlands
Segist hafa fengið
ósanngjarna meðferð Aðgerðir andstæðinga hvalveiðahafa leitt til þess að Japanar hafa
ekki náð að full-
nýta hval-
veiðikvóta sinn í
fyrsta sinn í tutt-
ugu ár. Sér í lagi
voru það liðs-
menn Sea Shep-
herd-samtak-
anna sem
trufluðu veiðar
Japana í suðurhöfum, en hval-
veiðiflotinn náði einungis að
veiða um 60 prósent af þeim
hvölum sem til stóð að veiða. Jap-
anar veiddu 551 hrefnu af 850
hrefna kvóta og engar langreyðar.
Nisshin Maru, móðurskip jap-
anska hvalveiðiflotans, kemur til
hafnar í Tókýó á þriðjudag. aí
Hvalveiðar Japana
Mótmæli tak-
mörkuðu veiðar