24 stundir - 15.04.2008, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir
www.honda.is
Hafðu samband
við sölumann o
g fáðu
sendan nýjan m
ótorhjólabæklin
g eða
náðu í hann á n
etinu á www.ho
nda.is
MÓTORHJÓL
27.2.2008 11:2
0:52
Honda CRF hjólin eru eingöngu hönnuð fyrir notkun utan vega, á þar til gerðum motocross svæðum.
Foreldrar eru hvattir til að meta aldur, stærð, þroska og hæfi leika barna sinna áður en þeir leyfa þeim að hjóla
á motocross hjólum. Vertu ábyrgur einstaklingur, notaðu ávallt hjálm og réttan hlífðarbúnað. Virðum íslenska náttúru.
Bæjarfulltrúar Á-lista gera at-
hugasemdir við fréttaskrif 24
stunda
Fyrir skömmu gerði bæjarstjór-
inn á Álftanesi athugasemdir við
fréttaskrif á forsíðu 24 stunda með
yfirskriftinni „Starfsfólk á flótta“. Í
forsíðufrétt var látið að því liggja
að bæjarstjórinn ætti í erfiðleikum
með samstarf við starfsfólk sitt. Þá
var fréttin þannig unnin að ekki
var leitað álits stjórnenda sveitarfé-
lagsins á efni hennar. Í svargrein
bæjarstjórans var vakin athygli á að
forysta sjálfstæðismanna á Álfta-
nesi virtist eiga góðan aðgang að
fréttasíðum blaðsins. Bæjarstjórinn
benti réttilega á að uppsagnir á
bæjarskrifstofum hefðu verið af
persónulegum ástæðum starfs-
manna sem ekki væri venja að
ræða opinberlega.
Árásir eftir uppskrift
En það er skammt stórra högga á
milli. Í 24 stundum þann 14. mars
sl. eru enn fréttaskrif sem ætluð eru
til að vega að heiðri bæjarstjórans á
Álftanesi og hafa af honum æruna.
Nú er yfirskriftin „ Deilt um laun
bæjarstjóra“. Í undirfyrirsögn er
svo leirinn hnoðaður, en þar segir:
„Bæjarstjóri Álftaness er jafnvel
sekur um fjárdrátt, segir í áliti lög-
manns.“ Orðin „jafnvel sekur“ og
aðrir fyrirvarar lögmannsins fá svo
ekki sérstaka umfjöllun í fréttinni
heldur er kynt undir áróðri um
brotlegan bæjarstjóra. Bæjarstjór-
inn er sagður taka sér laun fyrir
nefndarstörf þar sem aðrir bæjar-
stjórar sitji launalaust. Þarna er far-
ið rangt með.
Álits ekki getið
Þessi einlitaða frétt er spennt yfir
hálfa fréttasíðu, og þrátt fyrir ít-
arlegt samtal blaðamanns við bæj-
arstjórann er aðeins vitnað í örfá-
um orðum til ummæla hans. Öll
fréttin er lögð undir lögfræðiálit
Sveins Andra Sveinssonar lög-
manns sem pantað var af forystu
D-listans. Hvergi er getið rök-
semda bæjarstjóra eða bæjarfull-
trúa Á-lista sem þó eru einu aðilar
samningsins. Ekki er birt það
ákvæði í ráðningarsamningnum
sem deilt er um. Ekki er getið álits
Ragnars Aðalsteinssonar, lög-
manns sveitarfélagsins, eða álits
endurskoðanda sveitarfélagsins,
Grant Thornton, en bæði þessi álit
staðfesta lögmæti samningsins og
ganga í aðra átt en álit Sveins
Andra. Hér er sem sagt búin til ljót
árás á bæjarstjórann, byggð á
hæpnu lögfræðiáliti, en að engu
getið álita sem bæjarfélagið hefur
aflað hjá virtum lögmanni og end-
urskoðanda.
Í tilefni af þessari frétt viljum við
koma eftirfarandi á framfæri:
Samningur við bæjarstjóra var
löglega samþykktur í bæjarstjórn.
Aðilar að ráðningarsamningi bæjar-
stjóra eru tveir, annars vegar bæj-
arstjórinn og hins vegar bæjar-
fulltrúar Á-lista. Enginn ágreiningur
er milli þessara aðila um túlkun
samningsins eða launaákvæða hans.
Bæjarfulltrúar D-listans eru ekki
aðilar að samningnum og studdu
hann ekki við afgreiðslu í bæjar-
stjórn. Rétt er þó að geta þess að
þeir gerðu ekki athugasemdir við
launaákvæði hans við umræðu í
bæjarstjórn þar sem hann var sam-
þykktur í júní 2006. Umrætt launa-
ákvæði er eftirfarandi:
„Auk fastra launa fær bæjarstjóri
laun fyrir setu í stjórnum og ráðum
sem eru í samstarfi við önnur sveit-
arfélög, samtök þeirra eða ríkisvald
eða samtök og stofnanir sem ekki
falla undir stjórnsýslu bæjarfélags-
ins og sem bæjarfulltrúi í bæjar-
stjórn.“
Í lögfræðiáliti lögmanns sveitar-
félagsins, segir m.a.:
„Bæjarstjórn er stjórnvald og um
meðferð þess valds fer eftir stjórn-
sýslulögum nr. 37/1993.“ Framan-
greint ákvæði í ráðningarsamningi
stangast ekki á við ákvæði þeirra
laga. Málefnaleg sjónarmið eru að
baki því samningsákvæði, að greiða
skuli sérstaklega fyrir fundarsetur
bæjarstjóra utan stjórnsýslu.
Lokaorð álits lögmanns sveitar-
félagsins eru eftirfarandi:
„Samkvæmt framansögðu er
það fyrirvaralaus niðurstaða mín,
að framangreint ákvæði í ráðning-
arsamningi við bæjarstjóra sam-
ræmist lögum í hvívetna og sé
bindandi fyrir sveitarfélagið.“
Samanburður við laun
Það gæti verið áhugavert fyrir 24
stundir að bera saman laun bæj-
arstjórans á Álftanesi og laun ann-
arra bæjarstjóra, en þá mun koma í
ljós að þau eru lægri en almennt
gerist.
Eins gæti verið fróðlegt að bera
saman laun núverandi bæjarstjóra
og laun fyrrverandi bæjarstjóra og
sveitarstjóra D-listans til margra
ára á Álftanesi. Á síðasta kjörtíma-
bili D-listans vorið 2003 voru laun
þáverandi bæjarstjóra D-lista um
730 þúsund. Þessi laun framreikn-
uð samkvæmt launavísitölu væru
um síðustu áramót rúmar milljón
krónur.
Til samanburðar voru föst laun
núverandi bæjarstjóra 600.000 við
gerð samningsins í júní 2006 og eru
í dag 662.903,00 kr.
Að lokum má upplýsa blaðið um
að þóknanir til bæjarstjóra á Álfta-
nesi vegna starfa utan stjórnsýslu
eru um 30-40 þúsund kr. á mánuði
að jafnaði en geta þó verið breyti-
legar frá einum mánuði til annars.
Hættið persónulegum árásum
Hér hefur í stuttu máli verið
svarað rætnum persónulegum
árásum á bæjarstjóra Álftaness í
frétt 24 stunda í mars sl., en okkur
er kunnugt um að heimildarmaður
blaðsins er núverandi oddviti D-
listans og fyrrverandi bæjarstjóri á
Álftanesi, sá sami og kom af stað
fréttaskrifum um starfsmannahald
á bæjarskrifstofum. Við hörmum
þessi skrif en þykjumst sannfærð
um að þegar öll kurl eru komin til
grafar muni þau fyrst og fremst
hitta fyrir höfund sinn.
Við óskum eindregið eftir því að
sjálfstæðismenn á Álftanesi taki í
taumana og fái fulltrúa sína í bæj-
arstjórn til að taka upp ný og mál-
efnaleg vinnubrögð. Ekki verður
lengur unað við óbreytt ástand.
Röngum og ærumeiðandi
ásökunum svarað
UMRÆÐAN aKristján Sveinbjörnsson, forsetibæjarstjórnar og bæjarfulltrúi Á-
lista, Margrét Jónsdóttir, formaður
bæjarráðs og bæjarfulltrúi Á-lista,
Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, bæj-
arfulltrúi Á-lista
Við hörmum þessi skrif
en þykjumst sannfærð
um að þegar öll kurl eru
komin til grafar muni þau
fyrst og fremst hitta fyrir
höfund sinn.
Álftanes Kirkjan á
Bessastöðum.
Ritstjórn 24 stunda vísar
þessum síðbúnu athuga-
semdum bæjarstjórnarmeiri-
hlutans á Álftanesi rakleiðis
til föðurhúsanna. Við vinnslu
fyrrnefndrar fréttar um
starfsmannaflótta frá bæj-
arskrifstofu voru gerðar
ítrekaðar tilraunir til að ná
sambandi við bæjarstjóra,
eins og fram kom í blaðinu.
Hann kaus að svara með
grein. Það er sömuleiðis
rangt að í síðari fréttinni,
sem um er rætt, sé álits Ragn-
ars Aðalsteinssonar ekki get-
ið. Sjálfstæðismenn á Álfta-
nesi hafa jafngóðan aðgang
að 24 stundum og fylgismenn
annarra flokka á Álftanesi og
aðrir landsmenn.
Aths. ritstj.