24 stundir - 15.04.2008, Blaðsíða 23
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 23
fylgja hvaða stjörnur hafa sést með
þær á götunni. Verðið fylgir og í
sumum tilfellum vefsíður þar sem
hægt er að panta töskurnar glóð-
volgar úr verksmiðjunni.
Skórnir sem stjörnunar kaupa
Skófíklarnir fá eitthvað fyrir
sinn snúð á vefsíðunni www.shoe-
wawa.com. Þar eru birtar myndir
og umfjallanir um alla nýjustu og
flottustu skóna ásamt því að tengja
þá við flottar Hollywood-stjörnur.
Á síðunni er líka bent á ljótustu
skó vikunnar en háhæluðu Croc-
skórnir hlutu þann heiður nýlega
og skyldi engan undra.
iris@24stundir.is
Bloggheimurinn vex stöðugt og
nú er svo komið að hægt er að
finna bloggsíðu um nánast hvað
sem er. Slúðursíðurnar eru til
dæmis oft mörgum dögum á und-
an fjölmiðlum með stjörnufrétt-
irnar og þær vinsælustu fá millj-
ónir heimsókna dag.
Ljótustu kjólarnir
Það sama á við um tískubloggið
en þegar Vogue tekur margar vikur
í að vinna greinar um nýjustu
strauma og stefnur birta tísku-
bloggarar sjóðheitar fréttir og
myndir.
Vefsíðan www.gofugyo-
urself.typepad.com er ein af þeim
allra vinsælustu. Að sjálfsögðu er
um að ræða síðu þar sem hin svo-
kölluðu tískuslys fræga fólksins eru
tíunduð en „fug“ er slanguryrði
sem gjarnan er notað ef einhver er
ljótur eða yfirmáta hallærislegur.
Þetta er sérlega skemmtileg síða.
Flottustu veskin
Vefsíðan www.purseblog.com er
sérstaklega hönnuð fyrir veskja-
sjúkar konur en þarna er hægt að
skoða allt það nýjasta og flottasta í
töskubransanum.
Nýjustu Lous Vuitton og Marc
Jacobs-töskurnar eru þarna í öllu
sínu veldi. Bloggsíðan segir frá
hverri tösku ásamt því að láta
Tískublogg njóta gífurlegra vinsælda um allan heim
Háhælaðir Croc-skór
þeir allra ljótustu
Tískublogg Allt það nýj-
asta í tískuheiminum.
Tískublöð eru sannarlega ekki ný
af nálinni. Tímaritið La Mode Ill-
ustrée er eitt af mörgum blöðum
sem gefin voru út í París til að
dömur borgarinnar gætu tollað í
tískunni. Blaðið var þó aðallega
ætlað dömum í efri stétt sam-
félagsins. Á forsíðunni hér að ofan
má sjá það sem var í tísku á þriðja
og fjórða áratug 18. aldarinnar og
þótti tilvalið í spássitúra.
Parísardömur
og tískan
Hönnuðurinn Gary Harvey vann í
áratug fyrir Levi Strauss og Doc-
kers Europe en byrjaði að hanna
kjóla fyrir tískuherferðir þar sem
honum fannst vinnan ekki nógu
skapandi. Einn þeirra kjóla sem
Gary hefur hannað er þessi sem
sést hér en hann er búinn til úr 30
eintökum af Financial Times.
Smart nema kannski í rigningu.
Kjóll úr 30 Fin-
ancial TimesOft hefur verið kvartað undan litlu
úrvali af fötum hér á landi. Að
sama skapi finnst ekki öllum gam-
an að sjá marga í sams konar flík-
um. Það er því tilvalið að vera dug-
legur að sauma sér sjálfur föt eða
fara með hugmyndir sínar til
saumakonu. Vitanlega getur flíkin
frá henni kostað skildinginn en oft
er það lítið dýrara en önnur svipuð
flík. Sú saumaða er hins vegar sér-
sniðin á þig.
Takið fram
saumavélina
Það getur verið úr vöndu að ráða þegar velja á föt til að nota í
vinnunni. Fæstir vilja alltaf vera í sömu gömlu tuskunum og flestir
vilja hafa fjölbreytni í fatavali án þess að þurfa að eyða fúlgum fjár. Þá
er nauðsynlegt að eiga nokkrar grunnflíkur sem má svo nota með
öðrum flíkum. Það er til dæmis tilvalið að eiga eina svarta sem og
eina gráa buxnadragt og helst pils í stíl. Þar með eru komnar nokkrar
mismunandi útgáfur af klæðnaði svo lengi sem skipt er um bol reglu-
lega.
Með því að eiga nokkrar tegundir af skyrtum og bolum í mismunandi
litum er hægt að mæta á hverjum degi vel til fara án þess að þurfa
alltaf að vera eins. Sokkabuxur í mismunandi litum gera sömuleiðis
heilmikið og hægt er að vera í sama pilsinu nokkrum sinnum, séu
sokkabuxurnar ólíkar. Það sama má segja um aðra fylgihluti eins og
hálsfestar, veski, sjöl og annað þess háttar.
Fjölbreytni í fatavali án útgjalda
Nýjar vörur frá
No Secret
Stærðir 42-56
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15
FLOTTAR
YFIRHAFNIR
jakkar og frakkar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00
og Eddufell 10.00-14.00