24 stundir - 15.04.2008, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Sverrir Viðar Hauksson, fram-
kvæmdastjóri bílasviðs Heklu,
hefur alltaf haft áhuga á elda-
mennsku. „Fjölskylda mín rak
ferðaþjónustu og ég var alltaf í
eldhúsinu. Áhuginn hefur fylgt
mér alla tíð síðan,“ segir Sverrir.
Óvæntur afmælisglaðningur
Árið 2005 kom kona Sverris
honum á óvart á afmælinu hans.
„Ég var búinn að kanna mögu-
leikann á því að fara í matreiðslu-
nám erlendis en á fertugsafmæl-
isdaginn fékk ég gjafabréf á
námskeið í Oxford á Englandi.
Konan var búin að vinna í því í
einhverja mánuði að skipuleggja
ferðina og ég hafði ekki hugmynd
um hvað væri í vændum.“
Námskeiðið er haldið á glæsi-
legu herragarðshóteli sem rekið er
af stjörnukokkinum Raymond
Blanc. Hótelið heitir Le Manoir
en það nafn á einstaklega vel við.
„Við gistum í risastóru herbergi
fyrir ofan gamla hesthúsið. Við
vorum með glæsilega svefnað-
stöðu og stórt baðherbergi.“
Fusion-eldamennska
Námskeiðið var að sögn Sverris
ekki fyrir algjöra byrjendur held-
ur frekar fyrir þá sem hafa reynt
fyrir sér í eldhúsinu. „Ég fór á fu-
sion-námskeið en hægt er að fara
á alls kyns námskeið á staðnum.
Nemendurnir voru aðeins átta og
við unnum í tveggja manna hóp-
um. Við byrjuðum á því að elda
hádegismat og þegar við höfðum
lokið við hann héldum við áfram
að elda. Dagurinn var fljótur að
líða enda var alveg ofsalega gam-
an allan tímann.“
Íslenskur yfirkokkur
Sverrir var fyrsti Íslendingurinn
til að fara á námskeið á Le Mano-
ir en hann var þó ekki eini Íslend-
ingurinn á staðnum. „Ég komst
að því að á staðnum starfaði ís-
lenskur kokkur og hann bauð mér
í spjall í eldhúsið. Kokkurinn
heitir Agnar og reyndist vera yf-
irkokkurinn á staðnum. Nú rekur
hann veitingahúsið Texture í
London ásamt fleiri Íslendingum.
Námskeiðið var ógleymanlegt
og ég mæli sannarlega með því
fyrir alla áhugamenn um elda-
mennsku,“ segir Sverrir að lok-
um.
Sverrir Viðar fór á matreiðslunámskeið á breskum herragarði
Varði heilum degi
í bresku eldhúsi
Íslendingar sækjast í sí-
auknum mæli eftir því að
fá meira út úr fríinu en
sólbrúnku og nýjar flíkur
í fataskápinn.
Námskeið erlendis er frá-
bær leið til þess að víkka
sjóndeildarhringinn og
læra eitthvað nýtt. Allir
geta fundið eitthvað við
sitt hæfi en á hverju hef-
ur þú áhuga?
Ástríðukokkur Sverrir
Viðar lærði að elda á
herragarði í Oxford
➤ Á staðnum er hótel, veitinga-staður og námskeiðshald.
➤ Býður meðal annars upp ánámskeið þar sem foreldrar
og börn geta lært saman.
➤ Allar upplýsingar er hægt aðnálgast á vefsíðunni
www.manoir.com.
LE MANOIR
24stundir/Frikki
Eins freistandi og það kann að
vera að trúa því að hægt sé að
ferðast í senn með mikinn far-
angur, fyrir lítinn pening og með
mikilli gleði, þá telja margir vanir
ferðalangar slíkt illmögulegt. Af
þessum þremur kostum sé ein-
ungis hægt að njóta tveggja í einu.
Eflaust vilja flestir eiga ánægju-
legar stundir á ferðalögum sínum
og séu menn ekki þeim mun efn-
aðri getur margborgað sig að
reyna að pakka eins litlu niður í
ferðatöskur og hægt er. Vissulega
gæti verið freistandi að pakka nið-
ur sléttujárninu, naglasnyrtisett-
inu, einu skópari fyrir hvern dag
sem fríið tekur og kraftgalla ef
vera skyldi að veður yrðu válynd.
En of þungur farangur er sjaldnast
til þess fallinn að auka þægindi á
ferðalögum ásamt því sem hann er
í langflestum tilfellum ónauðsyn-
legur.
Reyndir ferðalangar læra fljótt
að eitt par af gönguskóm og eitt
par af spariskóm duga yfirleitt fyr-
ir ferðalög erlendis og að sá tími,
sem fer í að setja föt í þvottavél á
ferðalaginu er í flestum tilfellum
hóflegur miðað við þyngslin sem
annars hefðu fylgt því að taka með
ný föt til skiptanna fyrir hvern
einasta dag. Fyrir utan hversu
þægilegt það er að hafa einungis
léttar töskur meðferðis, þá er alltaf
mögulegt að farangurinn týnist og
finnist aldrei aftur. Þá er betra að
tjónið sé lítið.
Gleði, sparnaður og mikill farangur í ferðalögum
Tvennt af þrennu í boði
LÍFSSTÍLLFERÐIR
ferdir@24stundir.is a
Ég komst að því að á staðnum
starfaði íslenskur kokkur og
hann bauð mér í spjall í eldhúsið.
113 fm íbúð á jarðhæð til leigu, aðeins reyklausir/reglusamir koma til
greina. Fallegar innréttingar, baðherbergi snyrtilegt með góðri innréttingu
og flísum. Parket á gólfum. Stór stofa. Hjónaherbergi og barnaherbergi.
Stórt og mikið þvottahús sem er með flísum og hefur einnig verið notað
sem tölvuherbergi. Laus strax. Leiga 140 þ. með hita og rafmagni.
Skammtímaleiga (3 mán. og möguleg framlenging + uppsagnafrestur skv.
samkl. Þar sem eignin er í sölu).
Uppl. í síma 553 2222 eða 891 9670 (Eggert) eignaver@eignaver.is
Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl.
Falleg 113 fm íbúð til leigu
í Hvömmunum í Hafnarfirði
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Vilnius
30. apríl
frá kr. 49.990
Frábær 4 nátta helgarferð!
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum í fjögurra nátta
helgarferð til Vilnius 30. apríl. Upplagt tækifæri til að njóta vorsins í þessari
fallegu borg og dekra við sig í aðbúnaði. Fararstjórar okkar kynna þér sögu
borgarinnar og heillandi menningu. Bjóðum frábær sértilboð á Hotel Europa
City *** og Hotel City Park ****. Vorið í Vilnius er komið á fleygiferð á
þessum tíma og þetta er því einstakur tími til að heimsækja borgina. Ath.
aðeins fá herbergi í boði á þessum kjörum.
Verð kr. 49.990
- *** gisting
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
með morgunverði í 4 nætur á
Hotel Europa City *** með morgunmat.
Verð kr. 54.990
- **** gisting
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
með morgunverði í 4 nætur á
Hotel City Park **** með morgunmat.
M
bl
9
89
89
5
Síðustu sætin!
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við