24 stundir - 15.04.2008, Síða 40
24stundir
? Beygla með rjómaosti og skinku og te-bolli með kostar tvöfalt meira á Kaffitárií Reykjavík en á kaffihúsi í Berlín. Heilar1.250 krónur hér, en bara 629 krónur íBerlín. Hafið það, montnu Mið-Evrópubúar!Við þurfum fleiri fréttir af þessu tagi,fréttir sem lyfta okkur upp og sýna fram
á að hér býr alvöru fólk. Fjáð þjóð, sem
vílar ekki fyrir sér að borga tvisvar sinn-
um meira fyrir brauðið en aumingjar
annarra landa. Ég get lagt mitt af mörk-
um: Á Íslandi kostar Pet Shop plastdót
fyrir krakka miklu meira en í Amerík-
unni. Verðlag í Ameríku er fyrir ræfla.
Í fyrra ákváðu menn að lækka virð-
isaukaskatt af matvælum. Sumir sögðu,
að neytendur ættu að njóta góðs af. Þær
raddir voru frá einhverjum háskólaborg-
urum, sem höfðu búið of lengi í Mið-
Evrópu og voru orðnir hryggleysingjar af
dvölinni. Auðvitað var þetta gert til að
matvöruverslanir gætu hækkað álagn-
ingu sína.
Núna ætla stjórnvöld að fylgjast náið
með verðlagi hér á næstunni, svo fólk
geti beint viðskiptum sínum til fyr-
irtækja í samræmi við það. Þetta er frá-
bær hugmynd. Þá geta allir Íslendingar,
aðrir en mestu aumingjarnir, séð það
svart á hvítu að það er flottast að kaupa í
matinn í klukkubúðunum. Þar er mat-
urinn dýrastur og svo miklu, miklu dýr-
ari en á meginlandinu.
Einstaka undanvillingar geta verslað
þar sem ódýrast er. Þeir gera sér vonandi
grein fyrir hversu óþjóðlegt það er að
styðja slíkar verslanir.
Beyglað verðmætamat
Ragnhildur Sverrisdóttir
fyllist þjóðerniskennd í
verslunum
YFIR STRIKIÐ
Er hægt að
tryggja hærra
verð?
24 LÍFIÐ
Hundurinn Trouble þénaði 12
milljónir dollara í fyrra, meira en
bæði Scarlett Johans-
son og Jessica Alba.
Hundur toppar
Scarlett og Jessicu
»34
Páll Óskar stýrir Eurovision-
þættinum Alla leið sem hefst á RÚV
í maí. Valdir spekingar
verða með Páli.
Páll Óskar stýrir
sjónvarpsþætti
»38
Raunveruleikaþátturinn Hæðin
hefur slegið í gegn. Gulli Helga,
stjórnandi þáttarins seg-
ist upplifa drauminn.
Endurkoma Gulla
Helga vel heppnuð
»38
● Alice á Organ Í
kvöld fara fram
tónleikar til heið-
urs rokksveitinni
Alice in Chains á
Organ en á tón-
leikunum mun
einvalalið ís-
lenskra tónlistar-
manna heiðra sveitina og fyrrver-
andi söngvara hennar, Layne
Staley, sem lést í aprílmánuði fyrir
sex árum. „Við vildum bara minna
á kappann því hann hefur farið
halloka í umfjöllun. Hann var einn
af þessum hörkugóðu rokksöngv-
urum,“ segir Franz Gunnarsson
en hann er á meðal þeirra tónlist-
armanna sem spila á tónleikunum.
● Eykur
trúverðugleika
„Fyrst og fremst er
þetta bara við-
urkenning á því
starfi sem við er-
um búnir að vera
að vinna síðast-
liðin fjögur ár í
Háskólanum í Reykjavík. En þetta
eykur líka trúverðugleika fyrirtæk-
isins erlendis,“ segir Friðrik Heið-
ar Ásmundsson en hann fékk
ásamt þremur félögum sínum í
sprotafyrirtækinu Eff2 techno-
logies verðlaun í Frumkvöðla-
keppni Innovit um helgina. Verk-
efnið snýr að því að koma í veg
fyrir ólöglegt niðurhal á mynd-
böndum á netinu.
● Dagvaktin
hefst „Það eru
bara allir í góðum
gír, allir voða
glaðir í góðu veðri
í Þingholtunum,“
segir leikstjórinn
Ragnar Bragason
en tökur á þátta-
röðinni Dagvaktin hófust í Reykja-
vík í gær. „Fyrsti dagur er nú yf-
irleitt svolítið hægur á meðan fólk
er að koma sér af stað, fá tækin til
að virka og leikararnir að koma sér
í karakter.“ Í dag mun tökuliðið
kveðja borgarlífið og halda vestur í
Reykhólasveit þar sem megnið af
þáttaröðinni verður tekið upp.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við