24 stundir - 01.05.2008, Síða 1
24stundirfimmtudagur1. maí 200882. tölublað 4. árgangur
Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!
Hallgrímur Helgason er spenntur
vegna frumsýningar á Ástin er
diskó, lífið er pönk. Verkið sem
fjallar um baráttu diskós og
pönks verður frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu í kvöld.
Pönkið og diskóið
KOLLA»18
Daða Guðbjörnssyni listamanni
finnst hann vera hæfari til að tak-
ast á við daglegt líf og verjast áreiti
eftir að hann fór að stunda sahaja-jóga.
Löngun í áfengi hvarf og það sama má
segja um ýmis líkamleg vandamál.
Fíknin hvarf
HEILSA»22
115% verðmunur
á frostpinnum
NEYTENDAVAKTIN »4
Íbúar á grísku eyjunni Lesbos
hafa höfðað mál gegn sam-
tökum samkynhneigðra í
Grikklandi, í því skyni að
tryggja einkarétt eyjarskeggja
á að geta kallað sig lesbíur.
Talsmaður eyjarskeggja segir
íbúa enn þjást af þeirri „sál-
fræðilegu og siðferðislegu
nauðgun“ að samkynhneigðir
hafi eignað sér nafn eyjunnar.
Uppruna hugtaksins „lesbía“
má rekja til þess að gríska
skáldkonan Saffó orti konum
ástarljóð á eyjunni Lesbos. aí
Eyjarskeggjar
sannar lesbíur
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 75,11 0,83
GBP 149,08 1,36
DKK 15,69 0,72
JPY 0,72 -0,13
EUR 117,12 0,74
GENGISVÍSITALA 150,84 0,84
ÚRVALSVÍSITALA 5.211,53 -0,08
6
8
3
2 2
VEÐRIÐ Í DAG »2
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
„Á þessum árum telja 10-30% að þau gætu nýtt
sér endurhæfingu. Það er spurning hve stór hluti
þessa hóps hefði getað verið lengur heima ef kost-
ur hefði verið á endurhæfingu og góðri heima-
hjúkrun,“ segir Ingibjörg Hjaltadóttir, lektor í
hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og sviðsstjóri
hjúkrunar á öldrunarsviði Landspítalans.
Ingibjörg rannsakaði heilsufar aldraðra við
flutning inn á hjúkrunarheimili á árabilinu
1996-2006 og er það hluti af doktorsnámi henn-
ar í hjúkrun við Háskólann í Lundi.
„Á þessum árum kemur í ljós veikt en línulegt
samband á þá leið að eftir því sem líður á tíma-
bilið verða þeir sem nýir koma inn á hjúkr-
unarheimilin hressari. Þeir eru með meiri vit-
ræna getu og betri færni í að taka þátt í
félagsstarfi.
Hins vegar eru þeir með aukna verki, sem er
mjög umhugsunarvert og spurning hvort ekki sé
hægt að meðhöndla verki betur, t.d. hjá heilsu-
gæslunni.“
Þarf að forgangsraða betur
„Meðaldvalartími fólks á hjúkrunarheim-
ilum hér er þrjú ár á meðan hann er tvö ár
annars staðar á Norðurlöndum. Ef fólk gæti
verið heima hjá sér í eitt ár af þessum þremur
þá væri það mun ánægjulegra líf,“ segir Ingi-
björg.
Hún segir að á tímabilinu hafi um 100
manns á LSH verið á biðlista eftir hjúkrunar-
rýmum á ári. „Við höfum ekki getað tekið fólk
inn í endurhæfingu vegna þess að plássin hafa
verið nýtt fyrir fólk sem bíður eftir hjúkrunar-
rýmum. Ef það tækist að eyða biðlistanum
væri hægt að bjóða fólki upp á endurhæfingu
og þar með gera einhverjum hópi aldraðra
kleift að búa lengur heima.“
Fara afi og amma of
snemma á heimili?
Hluti aldraðra fer of snemma á hjúkrunarheimili að mati sérfræðings
➤ Voru upplýsingar úr heilsufarsmati þeirrasem fluttu inn á hjúkrunarheimili 1996-
2006 og metnir voru innan 90 daga frá
komu, alls 2206 einstaklingar.
➤ Heilsufarsmatið kallast RAI-mat og hefurverið notað síðan 1996. Eru íbúar hjúkr-
unarheimila metnir samkvæmt því þrisvar
á ári.
GÖGNIN
BIÐLISTAR ALDREI STYTTRI»8
"Það er fagnaðarefni út frá skjólstæðingum að ekki kom til neyðarástands. Ég treysti því að nú verði farið í það
samráð sem alltaf átti að vera í stað þess að alltaf væri talað að ofan og niður," sagði Elsa B. Friðfinnsdóttir, for-
maður Félags hjúkrunarfræðinga þegar samkomulag hafði náðst í deilu hjúkrunarfræðinga á níunda tímanum í
gærkvöld. Stjórnendur Landspítala hættu við að innleiða nýtt vaktafyrirkomulag sem kynnt hafði verið og taka
átti gildi 1. maí. Skipuð verður nefnd sem finna á leiðir til að koma á nýju vaktafyrirkomulag sem fell-
ur að vinnutímatilskipun ESB. Nefndin á að skila tillögum fyrir lok þessa árs.
Samið við hjúkrunarfræðinga
24stundir/Frikki
„Fagnaðarefni að ekki kom til neyðarástands“
»2
Segja má að launamenn verði af ein-
um frídegi í dag þar sem upp-
stigningardag ber upp á frídag
verkalýðsins. Framleiðslufyrirtæki
nýta æ oftar heimild til að
færa fimmtudagsfrídaga.
Tveir frídagar
fyrir einn
»16
Hekla kynnti í gær verðlækkun á
vinsælum tegundum nýrra bíla um
allt að 17%. Eigendur Heklu segja
lækkunina lóð á vogarskálarnar í
baráttu gegn ört vaxandi
verðbólgu.
Hekla keyrir á
verðbólguna
»4
»14