24 stundir - 01.05.2008, Page 21
Ísafjörður
Kröfuganga leggur af stað frá
Baldurshúsinu á Ísafirði kl. 14
og verður gengið að Edinborg-
arhúsinu undir lúðrablæstri.
Ræðumaður dagsins er Finn-
bogi Sveinbjörnsson, formað-
ur Verkalýðsfélags Vestfirð-
inga. Einnig verður boðið upp
á tónlistaratriði, kvikmynda-
sýningar og ljósmyndasýn-
ingu svo fátt eitt sé nefnt.
Akranes
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðu-
sambands Íslands, verður að-
alræðumaður á 1. maí
hátíðarhöldum á Akranesi.
Safnast verður saman við
Kirkjubraut 40 kl. 14 og geng-
inn hringur. Að göngu lokinni
verður hátíðardagskrá í sal
Verkalýðsfélags Akraness á
sama stað. Kvennakór syngur
og boðið verður upp á kaffi-
veitingar.
Reyðarfjörður
Boðið verður upp á kaffiveit-
ingar í safnaðarheimilinu kl.
14-16. Kristín Björnsdóttir,
formaður Verslunarmanna-
félags Austurlands, flytur
ávarp. Lúðrasveit og upp-
lestur.
Akureyri
Stefna – félag vinstri manna –
heldur sinn tíunda morg-
unfund á baráttudegi verka-
lýðsins á Mongo sportbar,
Kaupangi á Akureyri. Fund-
urinn hefst kl. 11. Ræðumað-
ur dagsins er Viðar Þor-
steinsson, heimspekingur og
stjórnarformaður Nýhils.
Fundarstjóri verður Margrét
Guðmundsdóttir.
Samkomur
fyrsta maí
24stundir FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 21
Verð frá 9.990 kr.
JAKKAFÖT
Hátíðarhöld í tilefni alþjóðlegs baráttu-
dags verkalýðsins fara fram víða um land í
dag.
Fundur á Ingólfstorgi
Stærstu hátíðarhöldin verða í Reykjavík
en safnast verður saman við Hlemm kl. 13.
Gangan leggur af stað um hálftíma síðar og
verður gengið undir lúðrablæstri niður
Laugaveg, Bankastræti og Austurstræti og
staðnæmst á Ingólfstorgi þar sem útifund-
ur fer fram. Georg Skúlason, formaður Fé-
lags íslenskra bókagerðarmanna, flytur
ávarp ásamt fleirum Þá mun Gísli Einars-
son sjónvarpsmaður fara með gamanmál
og hljómsveitin Sprengjuhöllin leika nokk-
ur lög.
Bíósýning í Hafnarfirði
Hátíðarhöld verkalýðsfélaganna í Hafnar-
firði hefjast með því að boðið verður upp á
kvikmyndasýningu í Bæjarbíói. Þar verða
sýnd brot úr gömlum myndum úr bænum
frá árunum 1918 til 1986. Að sýningu lok-
inni fer kröfuganga frá bíóinu að Hraunseli
þar sem hátíðarfundur fer fram. Linda Bald-
ursdóttir, varaformaður Hlífar, flytur ávarp
dagsins en einnig verður boðið upp á
skemmtiatriði.
Kröfuganga á Akureyri
Á Akureyri safnast göngumenn saman við
Alþýðuhúsið kl. 13:30 og leggja síðan af stað í
kröfugöngu hálftíma síðar við undirleik
Lúðrasveitar Akureyrar. Að lokinni göngu
verður slegið upp hátíðarfundi í Sjallanum
þar sem flutt verða ávörp og tónlistarmenn
skemmta auk þess sem dregið verður í happ-
drætti í tilefni dagsins.
Þjáðir menn í þúsund löndum
Hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins
Kröfuganga Margir þramma
um götur með skilti á lofti í dag.
24stundir/Þorkell
Trúbadorinn Svavar Knútur kem-
ur fram á baráttutónleikum
Vinstri grænna á skemmtistaðn-
um Græna hattinum á Akureyri
að kvöldi 1. maí. Tónleikarnir
hefjast kl. 21 og er enginn að-
gangseyrir.
Svavar Knútur
á Grænum hatti