24 stundir - 01.05.2008, Side 23
24stundir FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 23
Ekki er ofsögum sagt að öllum er
hollt að hreyfa sig reglulega, hvort
sem fólk er í eða yfir kjörþyngd.
Með reglulegri hreyfingu er hægt
að minnka líkur á ýmiss konar lík-
amlegum kvillum, ekki síst hjarta-
sjúkdómum. En samkvæmt nýlegri
bandarískri rannsókn er ljóst að
konur í yfirþyngd eiga að jafnaði
frekar á hættu að fá margs konar
hjartasjúkdóma en konur í kjör-
þyngd, jafnvel þótt þær hreyfi sig
meira. Um 39.000 konur víðsvegar
í Bandaríkjunum voru rannsakað-
ar um nokkurra ára skeið. Ekki
kom á óvart að þær sem voru í
kjörþyngd og hreyfðu sig reglulega
voru síst líklegar til þess að fá
hjartasjúkdóma og að þær sem
væru í ofþyngd og hreyfðu sig ekki
áttu í mestri hættu á að fá hjarta-
sjúkdóma. Hins vegar vakti athygli
að þó svo að regluleg hreyfing
drægi úr hættu of þungra kvenna á
að fá hjartasjúkdóma dugði hún
ekki til ein og sér. Of þungar konur
sem hreyfðu sig reglulega áttu eftir
sem áður frekar á hættu að fá
hjartasjúkdóma en konur í kjör-
þyngd sem stunduðu enga hreyf-
ingu.
Með öðrum orðum: það er alltaf
góðra gjalda vert og nauðsynlegt að
hreyfa sig reglulega en ætli of
þungar konur að freista þess að
draga úr hættu á hjartakvillum er
nauðsynlegt að þær reyni að kom-
ast niður í kjörþyngd.
Konur og hjartasjúkdómar
Kjörþyngd besta
forvörnin
Hinir heimskunnu Stott pilates-kennarar Michael og Karen Christensen
eru á leiðinni til Íslands og ætla að halda sex stutt námskeið fyrir Stott
pilates-leiðbeinendur helgina 10. og 11. maí næstkomandi.
Námskeiðin verða haldin í húsakynnum Gigtarfélags Íslands við Ármúla
5 og í dansrækt JSB við Lágmúla 9 og eru sérstaklega ætluð sjúkraþjálf-
urum, íþróttakennurum, jógakennurum, ballettkennurum, einkaþjálf-
urum og öðrum sem vilja kynna sér pilates- og Stott pilates-æfingar nán-
ar.
Það er félag Stott pilates-kennara á Íslandi sem stendur fyrir námskeið-
unum. Skráning fer fram hjá Hrafnhildi í síma 894-1806 eða á stott-
pilates@medanotunum.is. Tekið er við skráningum fram til 2. maí.
Þekktir Stott pilates-kennarar
Alþjóðlegi hláturdagurinn verður
haldinn hátíðlegur hinn 4. maí
næstkomandi. Af því tilefni verð-
ur haldið upp á daginn með hlát-
urgöngu um Laugardalinn, þar
sem farið verður frá gömlu
þvottalaugunum klukkan 13 og
gengið inn í dalinn. Á leiðinni
verða teknar hláturjógaæfingar
undir leiðsögn Ástu Valdimars-
dóttur og Kristjáns Helgasonar
hláturjógakennara. Þá verður
hláturdagurinn haldinn í fyrsta
sinn á Suðurnesjum, nánar til-
tekið í Reykjaneshöllinni klukkan
14. Þar mun Marta í Púlsinum,
hláturjógaleiðbeinandi, leyfa
gestum að prófa hláturjógaæf-
ingar.
Hlægilegur
dagur
Filippseysk stjórnvöld hafa
ákveðið að banna líffæra-
ígræðslu fyrir útlendinga til þess
að stemma stigu við ólöglegri
nýrnasölu í landinu.
Hundruð útlendinga sækja land-
ið heim á ári hverju til þess að
fá nýrnaígræðslu og segja fil-
ippeysk stjórnvöld að ólögleg
sala á nýrum færist sífellt í
aukana. Fátækt fólk freistist til
þess að selja úr sér eitt nýra til
þess að græða peninga og er tal-
ið að salan fari oft fram í gegn-
um milliliði sem fá hluta sölu-
verðsins í sinn hlut.
Gegn nýrnasölu
Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús)
Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is
Rýmingarsalan
heldur áfram
þangað til allt er selt!!
Geggjaður afsláttur
af öllum vörum.
Ekki missa af þessu
Opið í dag
frá kl. 12:00