24 stundir - 06.05.2008, Side 1
Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!
24stundirþriðjudagur6. maí 200884. tölublað 4. árgangur
UMM er glænýr
heilsubiti úr
spennandi hráefni
Um þessar mundir vinnur Mikael
Torfason að skáldsögu sem hann
segir vera spennubók um verð-
bréfagutta en Mikael stofnaði ný-
verið bókaforlagið GKJ
útgáfu.
Stofnaði forlag
KOLLA»18
Stöðugt áreiti útfjólublárra sólargeisla,
veðurs og vinda leiðir til þess að sól-
pallar upplitast og springa, að sögn
Einars L. Ragnarssonar en með reglu-
legu og góðu viðhaldi endist pallurinn
mun lengur.
Gott viðhald
GARÐURINN»34
43% munur á
kúplingsdisknum
NEYTENDAVAKTIN »4
Hópur rhesusapa í Ohama-
dýragarðinum í Osaka í Japan
hefur verið settur í megrun-
arkúr. Fá þeir fituskert fóður
og hafa gestir dýragarðsins
verið beðnir að hætta að gera
þeim þann óleik að ota að
þeim óhollu nasli.
Aparnir vega fullvaxnir um 11
kíló í náttúrunni. Er þriðj-
ungur þeirra 50 apa sem haf-
ast við í garðinum yfir kjör-
þyngd, en þyngsti karlapinn í
Osaka er rúm 29 kíló að
þyngd. aij
Megrunarkúr
fyrir apa
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 76,78 0,05
GBP 151,07 -0,38
DKK 15,94 0,47
JPY 0,73 0,22
EUR 118,99 0,47
GENGISVÍSITALA 153,50 0,29
ÚRVALSVÍSITALA 5.004,94 -3,22
8
9
5
7 7
VEÐRIÐ Í DAG »2
Eftir Hlyn Orra Stefánsson og
Elías Jón Guðjónsson
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri er einangr-
aður innan meirihluta borgarstjórnar í nei-
kvæðri afstöðu sinni til vinningstillögu um
skipulagningu Vatnsmýrarinnar. Aðrir borgar-
fulltrúar, jafnt innan meirihlutans sem minni-
hlutans, hafa lýst yfir ánægju sinni með tillög-
una, sem kynnt var almenningi í febrúar.
Afstaða sjálfstæðismanna óbreytt
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, segir afstöðu borgarfulltrúa
flokksins ekki hafa breyst í þeim efnum. „Ég er
hrifin af þessari tillögu og held að sama gildi um
alla borgarfulltrúa. Ólafur hefur áður sjálfur
sagt að hann sé hrifinn af þessari tillögu.“
Á fundum íbúahverfa í Hlíðahverfi, Laugar-
dal og miðborg kvað hins vegar við nýjan tón
hjá borgarstjóra. Á fundunum þremur tók hann
að eigin frumkvæði upp umræðu um vinnings-
tillöguna, sem hann sagði bera þess merki að
vera unnin af einstaklingum sem ekki skilji takt-
inn og þarfirnar í íslensku samfélagi. „Það eru
allir að vakna upp við þann vonda draum að
það eru ekki Íslendingar sem vinna þetta. Þetta
eru bara menn sem skilja ekki taktinn í íslensku
samfélagi,“ sagði Ólafur á fundi með íbúum
Laugardals.
„Hann er bara að lýsa sinni persónulegu
skoðun á vinningstillögunni,“ segir Kjartan
Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Stangast á við tillögu borgarstjóra
Í febrúar lagði borgarstjóri fram tillögu um
að stofnaður yrði stýrihópur til að vinna að
heildarskipulagningu Vatnsmýrarinnar á grund-
velli umræddrar vinningstillögu, og var tillagan
samþykkt af borgarráði. „Frá þeim tíma er búið
að ráða sigurverarana, hitta alla hagsmunaaðil-
ana og fara yfir með þeim hvernig hægt sé að
laga uppbyggingaráætlanir að vinningstillög-
unni,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar, sem á sæti í stýrihópnum.
„Spurningin sem maður situr eftir með er
hvort átök séu innan meirihlutans um þá vinnu
sem Sjálfstæðismenn hafa leitt við þetta skipu-
lag eða hvort maður eigi að láta eins og það sé
ekkert mark takandi á borgarstjóra,“ bætir
hann við.
Ólafur einsamall
BORGARSTJÓRI EINANGRAÐUR»4
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks eru ekki sammála borgarstjóra um vinningstillögu um
skipulag Vatnsmýrarinnar Borgarstjóri tók málið upp að eigin frumkvæði á íbúafundum
➤ Í febrúar lagði borgarstjóri til að stýrihóp-ur ynni að skipulagningu Vatnsmýrarinnar
á grundvelli vinningstillögu.
➤ Þriggja ára vinna liggur að baki henni.
➤ Á laugardaginn sagði borgarstjóri hættu áskipulagsslysi ef unnið yrði eftir tillögunni.
SKIPT UM SKOÐUN
Mary krónprinsessa af Danmörku og Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands, kynntu sér íslenska hönnun í gær og
heimsóttu meðal annars hönnuði í versluninni Kirsuberjatrénu á Vesturgötu. „Krónprinsessan keypti svokall-
aðan álfabolla eftir Kristínu Garðarsdóttur,“ segir Arndís Jóhannsdóttir, einn hönnuðanna. Mary og eiginmaður
hennar, Friðrik krónprins, komu til Íslands í gærmorgun í boði íslensku forsetahjónanna, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar og Dorrit Moussaieff. Krónprinshjónin halda héðan á fimmtudag.
Mary í heimsókn hjá hönnuðum
24stundir/Valdís„Krónprinsessan keypti svokallaðan álfabolla“
„Það eru ekki allir grannir og það
geta ekki allir verið grannir,“ segir
Sigrún Daníelsdóttir sem fer fyrir
Megrunarlausa deginum, sem
haldinn er hátíðlegur í
dag, þriðja árið í röð.
Bannað að vera í
megrun í dag
»10
Sparnaður heimilanna hefur aukist
að undanförnu. Bankarnir segja
aukinn áhuga vera fyrir sparnaði
hjá almenningi. Hagfræðingar
segja eðlilegt að sparnaður aukist
þegar að kreppir í efna-
hagslífinu.
Íslendingar
spara meira
»16 »14