24 stundir - 06.05.2008, Síða 6

24 stundir - 06.05.2008, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir Biðlistar eftir augasteinsaðgerðum ættu að heyra sögunni til eftir samning heilbrigðisráðherra við fyr- irtækin LaserSjón og Sjónlag um 1.800 augasteinsað- gerðir. Landspítalinn hefur á undanförnum misserum ekki annað eftirspurn, en með samningnum er ætl- unin að fjölga aðgerðum hér á landi um 44%, úr 1.800 í 2.600 á ári. Ráðherra telur að með þessum samningi ættu biðlistar eftir augasteinsaðgerðum að geta heyrt sögunni til á næsta ári. Samningurinn var undirritaður í framhaldi af út- boði og var niðurstaðan sú að ganga til samninga við augnlæknastofurnar LaserSjón og Sjónlag um samtals 1.600 aðgerðir næstu tvö árin. Samningnum er ætlað að tryggja styttri bið og greiðari aðgang að þjónustu, auk þess að auka val- möguleika hinna sjúkratryggðu. Greiðsluþátttaka sjúklinga verður sú sama, hvort sem aðgerðin er fram- kvæmd innan eða utan sjúkrahúsanna. Ský á augasteini er einn algengasti augnsjúkdómur á Íslandi og hindrar sjón líkt og móða á milli glerja. Hann er jafnan stigvaxandi, gengur ekki til baka og getur valdið blindu ef ekkert er að gert. atlii@24stundir.is Heilbrigðisráðherra gerir samning um augasteinsaðgerðir Ætlað að útrýma biðlistum Augnlæknir Ský á augasteini er einn algengasti augn- sjúkdómur á Íslandi. 24 stundir/Þorkell Þorkelsson Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Fjórar franskar Mirage 2000 orr- ustuþotur lentu á Keflavíkurflug- velli skömmu fyrir hádegi í gær. Þeim fylgja 110 hermenn sem munu sinna loftrýmisgæslu hér næstu sex vikur, til 20. júní. Er þetta í samræmi við þá stefnu NATO að ekkert aðildarríki skuli vera án loftrýmisgæslu. Bandaríkjamenn næstir Í kjölfar þess að fastaráð NATO samþykkti í júlí sl. að bandalags- ríkin sendu orrustuflugvélar til að sinna loftrýmisgæslu hér hafa ýmsar þjóðir sýnt áhuga á að koma að loftrýmisgæslunni. Ákveðið hefur verið að Banda- ríkjamenn og Kanadamenn gæti loftrýmisins í sex vikur í haust og síðan taki Bretar við. Á næsta ári er von á Spánverjum og Bandaríkja- mönnum auk þess sem mögulegt er að Danir komi að verkefninu. Aðspurður um hvort ekki sé óheppilegt að margir aðilar sinni gæslunni segir Þórir Ibsen, skrif- stofustjóri Varnarmálaskrifstofu, það ekki þurfa að vera verra en að verkefnið sé í höndum eins aðila því öll fari aðildarríkin að sömu reglum. Þá segir hann það skapa ýmsa möguleika að vera í varn- arsamstarfi við mismunandi þjóð- ir. Leitun að vitlausari útgjöldum „Þessar flugæfingar eru með ólíkindum vitlaus gjörningur og leitun að vitlausari útgjaldapósti en niðurgreiðsla á flugæfingum fyrir útlenda flugheri. Svo er búið að búa til þetta fína tækniheiti, „loftrýmiseftirlit“ en þegar menn fara að búa til svona bullorð er ástæða til að vera á varðbergi,“ segir Stefán Pálsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga og einn umsækjenda um starf for- stjóra Varnarmálastofnunar, sem tekur til starfa þann 1. júní nk. „Svo er reynt að setja þetta í þann búning að þetta sé varnar- ráðstöfun gegn Rússum, sem virð- ast vera nýi óvinurinn, og tilkynnt hverjir sinna eftirlitinu og hvenær. Það er eins og búist sé við að þeir séu það kurteisir að vera á sveimi þegar varnarlið er á staðnum.“ „Niðurgreiðsla á flugæfingum“  Fjórar franskar orrustuþotur og 110 franskir hermenn komnir til landsins  Með ólíkindum vitlaus gjörningur, segir Stefán Pálsson ➤ Í fjárlögum Alþingis fyrir2008 eru áætlaðar 533,8 milljónir í varnarmál. ➤ Þar af eru áætlaðar 200 millj-ónir vegna varnarsamstarfs Íslands innan NATO og 100 milljónir vegna gæslu og við- búnaðar á öryggissvæði við Keflavíkurflugvöll. KOSTNAÐUR VIÐ VARNIR Komnir Frönsku hermenn- irnir eru komnir til Keflavíkur. Sauðburður er hafinn víðast hvar um landið þó að enn sé hann ekki kominn á fullan snún- ing. Að sögn sauðfjárbænda eru það einkum ær sem að hafa verið sæddar sem eru bornar þó allur gangur sé raunar á því. Talsvert hefur verið um það að ær hafi látið lömbum í vetur og vor. Hafa menn jafnvel talað um faraldur hvað það varðar. Ekki hafi verið um svo umfangsmikið lambalát að ræða svo árum skiptir og kunna menn litlar skýringar á ástandinu. Vona að vorið fari að koma Veðurfar hefur mikið að segja um það hvernig lömb braggast á vorin og vonast bændur nú eftir því að vorið fari að koma af al- vöru en víða um land hefur verið kalt að undanförnu. Á þetta ekki síst við um landið norðan- og austanvert. Á næstu vikum má búast við mikilli törn hjá bænd- um um allt land en af samtölum við þá má samt sem áðurgreina tilhlökkun. freyr@24stundir.is Sauðfjárbændur verða svefnlitlir næstu vikur Sauðburður að komast á skrið Lömb Nýborin skagfirsk lömb 20% afs láttur af toppgr æjum fyr ir glugga flvottinn Ármúla 23 • Reykjavík Sími: 510 0000 Mi›ási 7 • Egilsstö›um Sími: 470 0000 Brekkustíg 39 • Njar›vík Sími: 420 0000 Grundargötu 61 • Grundarfir›i Sími: 430 0000 - hrein fagmennska! GLUGGAfiVOTTASKINN/SKAFA Visa Versa gluggaflvottaskinn/skafa – 20% fljótlegra a› nota flvottaskinn og gluggaflvöru í einu áhaldi. Til í tveimur stær›um. Au›velt a› festa á skaft til a› framlengja. Til í tveimur stær›um. HREINIR OG GLERFÍNIR GLUGGAR GLUGGAfiVOTTASÁPA Gluggaflvottasápan sem fagma›urinn notar. HIFLO fiVOTTAKÚSTUR HiFlo flvottakústur – samanstendur af 10 m slöngu, bursta me› stillanlegum li›, sápuskammtara og 64 umhverfisvænum sáputöflum. Hægt er a› kaupa mismunandi lengdir á sköftum (fylgja ekki me›). GLUGGAfiVARA Gluggaflvara me› flægilegu griphandfangi. Endurbætt gúmmí sem skilur engar rákir eftir sig. Au›velt a› festa á skaft til a› framlengja. Til í flremur stær›um. E N N E M M /S ÍA /N M 28 06 7

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.