24 stundir - 06.05.2008, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is
Þar sem tryggingar
snúast um fólk
VERTU MEÐ ALLAR
TENGINGAR Í LAGI
HÚSVAGNATRYGGING VÍS
Húsvagnatrygging VÍS er alhliða trygging fyrir tjaldvagna, fellihýsi
og hjólhýsi, sem tekur m.a. til áreksturs, veltu, útafaksturs, eldsvoða,
skriðufalls og innbús svo eitthvað sé nefnt.
Hafðu samband við þjónustuver VÍS í síma 560 5000 eða komdu
við á næstu þjónustuskrifstofu og fáðu nánari upplýsingar.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Alþjóða Rauði krossinn hefur
veitt um 14,5 milljónir króna
til neyðaraðstoðar í Mjanmar
vegna fellibyljarins Nargis
sem gekk yfir landið. Fréttir
ríkissjónvarpsins í landinu
herma að fjögur þúsund séu
látin, þriggja þúsunda sé
saknað og mörg þúsund hafi
misst heimili sín. Talið er að
95% heimila séu gjöreyðilögð.
Ákvörðun um frekara framlag
verður tekin þegar neyð-
arbeiðni liggur fyrir og um-
fang hjálparstarfs er ljóst.
bee
Aðstoð við fórnarlömb
Neyðarhjálp
til Mjanmar
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
„Það væri ólán ef Bjargráðasjóður
yrði aflagður.“ Þetta segir Lárus
Sigurðsson bóndi á Gilsá í Breið-
dal. Kristján Möller samgöngu-
ráðherra hefur lagt fram frumvarp
þess efnis á Alþingi. Rökin fyrir
því að leggja skuli Bjargráðasjóð af
eru sögð þau að hægt sé að kaupa
tryggingar sem taki á þeim áföll-
um sem sjóðurinn hefur bætt.
Mjög skiptar skoðanar eru hins
vegar meðal bænda um málið.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
hafa gagnrýnt samgönguráðherra
fyrir samráðsleysi við Bændasam-
tökin en ráðherra hefur hins vegar
vísað því á bug og jafnframt lýst
því yfir að ekki liggi á að leggja
sjóðinn niður. Vel sé mögulegt að
fresta frumvarpinu og taka það
upp á haustþingi.
Sjóðurinn tekur sárasta högg-
ið
Lárus segist hafa rætt við sinn
tryggingasala þegar honum barst
til eyrna að leggja ætti niður sjóð-
inn. „Minn tryggingasali sagði
mér að það væru ekki í boði trygg-
ingar sem tækju yfir tjón af því
tagi sem Bjargráðasjóður hefur
bætt fram til þessa. Að sama skapi
sagði hann mér að hann teldi afar
ólíklegt að hægt yrði að bjóða upp
á tryggingar fyrir sum þessara
tjóna nema því aðeins að iðgjöld
yrðu gríðarlega há. Það eru mý-
mörg dæmi um það að Bjargráða-
sjóður hafi tekið sárasta höggið af
fólki sem lent hefur í stóráföllum
sem ekki hefur verið hægt að
tryggja sig fyrir og það er ekki séð
hvað á að koma í staðinn.“
Vinnubrögðin ámælisverð
Haraldur Benediktsson for-
maður Bændasamtaka Íslands
segir það skoðun stjórnar samtak-
anna að halda þurfi úti sjóði eins
og Bjargráðasjóði. „Hvort sem
Bjargráðasjóður myndi starfa
áfram í breyttri mynd eða settur
yrði á fót nýr sjóður þá teljum við
nauðsynlegt að halda úti slíkum
stuðningi. Í skoðanakönnun sem
Félagsvísindastofnun gerði meðal
bænda fyrir stuttu kom í ljós ein-
dreginn vilji bænda til viðhalda
starfsemi Bjargráðasjóðs eða í
starfsemi í sama dúr.“
Endurskoðunarnefnd um starf-
semi Bjargráðasjóðs hefur starfað
á undanförnum misserum. Starfi
hennar var hins vegar ekki lokið
áður en frumvarpið var lagt fram.
Haraldur segir að Bændasamtökin
hafi ekki fengið að vita af því að til
stæði að leggja sjóðinn niður fyrr
en nokkrum dögum áður en
frumvarpið var lagt fram. „Okkur
finnast þetta ámælisverð vinnu-
brögð og erum hálfmóðgaðir yfir
því að þetta var lagt fram án sam-
ráðs við okkur. Ég hef hins vegar
trú á að þarna hafi verið um mis-
tök að ræða hjá ráðherra og við
leysum þetta vonandi bara í góðri
samvinnu.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Bændur vilja Bjarg-
ráðasjóð áfram
Samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarp um að Bjargráðasjóður verði lagður niður
Brunatjón Bjargráðasjóður
hefur meðal annars hlaupið
undir bagga þegar bændur
hafa lent í brunatjónum.
➤ Bjargráðasjóður var stofn-settur árið 1913 og var hlut-
verk hans að koma lands-
mönnum til hjálpar í hallæri.
➤ Eign sjóðsins var 659 millj-ónir króna í árslok 2007.
Sveitarfélögin, ríkið og
bændur hafa greitt í sjóðinn.
➤ Samkvæmt frumvarpinuverður eignum sjóðsins skipt
í þrennt milli þessara aðila.
BJARGRÁÐASJÓÐUR
Vinsældir bláu pappírstunnunn-
ar, sem byrjað var að dreifa í sept-
ember síðastliðnum, vaxa jafnt og
þétt, að því er segir í frétt frá Um-
hverfis- og samgöngusviði. Alls eru
1668 bláar tunnur í umferð og eru
um það bil 50 tunnur pantaðar
vikulega hjá Sorphirðu Reykjavík-
ur.
Í marsmánuði söfnuðust tæp-
lega 60 tonn af dagblöðum í bláu
tunnurnar sem er þriðjungur þess
magns sem safnast í grenndargám-
ana. Magnið sem safnast þar hefur
ekki minnkað að ráði þótt bláu
tunnunum hafi fjölgað.
„Það eru sérstakir sorpbílar sem
Æ fleiri velja bláar tunnur fyrir dagblöð
60 tonn í tunnurnar í
mars síðastliðnum
sækja bláu tunnurnar. Þetta verk
var boðið út og koma þessir bílar á
þriggja vikna fresti,“ segir Gunnar
Hersveinn, upplýsingafulltrúi Um-
hverfis- og samgöngusviðs Reykja-
víkurborgar. ibs
Hæstiréttur Íslands staðfesti í
gær úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur um að annar karlmannanna
sem staðnir voru að verki við að
stela mynt úr stöðumælum í
Reykjavík, sæti gæsluvarðhaldi til
miðvikudags. Hinn maðurinn
kærði ekki gæsluvarðhaldsúr-
skurðinn.
Mennirnir komu nýverið til
landsins. Talið er að þeir sérhæfi sig
í þjófnaði úr stöðumælum. Lög-
reglu bárust ábendingar um komu
mannanna til landsins. Þeir höfðu
ýmis verkfæri meðferðis við kom-
una hingað.
Lögreglan fylgdist með ferðum
mannanna í kjölfarið, en þeir fóru
margsinnis inn í verslanir og skiptu
smámynt, sem talið er að þeir hafi
stolið úr stöðumælum, í seðla.
Eftir að mennirnir voru hand-
teknir á dögunum fundust ýmis
verkfæri, stafræn myndavél og um
níutíu þúsund krónur í mynt og
seðlum í húsleit sem gerð var á
dvalarstað þeirra.
aegir@24stundir.is
Gæsluvarðhald yfir þjófum staðfest
Stöðumælaþjófar
áfram í varðhaldi
Fjölmenni fylgdist með þegar
nemendur við Háskólann í
Reykjavík skutu eldflaug á loft
skammt frá Grindavík í gær.
Eldflaug á loft
Vel heppnað