24 stundir - 06.05.2008, Page 10

24 stundir - 06.05.2008, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir „Við viljum ganga út frá því að við eigum að hugsa um heilsuna heilsunnar vegna. Svo verðum við líka að vera með heilbrigt hugarfar þannig að við viðurkennum marg- breytileikann og það að það eru ekki allir grannir og geta ekki allir verið grannir,“ segir Sigrún Daní- elsdóttir sem fer fyrir Megrunar- lausa deginum í dag, þriðja árið í röð. Megrunarlausi dagurinn er al- þjóðlegur baráttudagur gegn megr- un, átröskunum og fitufordómum. Sigrún segir mikilvægt að vekja at- hygli á því að sú einfalda staðreynd að við erum öll mismunandi í lag- inu er ekki viðurkennd í samfélag- inu heldur eigi allir að vera grannir. „Megrunarboðskapurinn hefur dunið yfir í meira en öld en hann hefur samt augljóslega ekki haft neitt að segja hvað varðar vaxandi ofþyngd. Það er spurning hvort megrunaráróðurinn hafi jafnvel aukið á þann vanda. Við vitum að þegar fólk er stöðugt í megrunará- tökum þá þyngjast langflestir aftur og margir enn meira en áður, svo fólk sem hefur verið í raðmegrun- arkúrum í mörg ár er miklu þyngra en þegar það fór í sína fyrstu megr- un.“ fifa@24stundir.is Hugsa um heilsuna heilsunnar vegna Erum mismunandi Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur fifa@24stundir.is „Þetta er kirkjan sem er næst mér og ég hugsaði að það væri bara flott að vera fyrst til að fermast þarna,“ segir Margrét Björg Hallgrímsdótt- ir en hún fermdist síðastliðinn sunnudag í kirkjunni í Úthlíð í Biskupstungum. Margrét Björg býr í Miðhúsum sem er næsti bær og segist hún hafa velt því fyrir sér í dálítinn tíma að láta ferma sig þar en kirkjan er bændakirkja en ekki sóknarkirkja. Björn Sigurðsson bóndi í Úthlíð reisti kirkjuna til minningar um konuna sína Ágústu Margréti Ólafsdóttur og var hún vígð þann 9. júlí fyrir tveimur ár- um. Úthlíð er gamall kirkjustaður en þar hefur staðið kirkja frá upphafi kristnitöku á Íslandi. Kirkjan sem stóð á undan þessari var byggð árið 1861. Hún stóð í 70 ár en fauk í fár- viðri þann 9. febrúar 1935. Hún var þó orðin svo illa farin af fúa að ólíklegt er að fermt hafi verið í henni á síðustu öld. Syngur við messur Margrét Björg fór í fermingar- fræðslu til sr. Egils Hallgrímssonar síðastliðinn vetur en átta ferming- arbörn fermdust í prestakallinu. Hún segir fátt hafa komið sér á óvart í fræðslunni. „Ég held að ég hafi vitað eig- inlega allt því ég hef verið mikið í messum út af söngnum,“ segir Margrét Björg en hún er í Kamm- erkór Biskupstungna. Það er ung- lingakór fyrir 12-15 ára börn sem syngur stundum við messur. Fermingarbörnum eru gjarnan gefnar gjafir en þær gjafir sem Margréti þóttu bestar voru hnakk- ur og Englandsferð sem hún fékk frá foreldrum sínum. Fermdist ein í bændakirkju  Fyrsta barnið fermt í kirkjunni í Úthlíð í Biskupstungum  Kom fátt á óvart í fermingarfræðslunni enda oft verið við messu Fermingarbarnið Margrét valdi að fermast í Úthlíð. ➤ Nýja kirkjan var vígð 2006. ➤ Björn Sigurðsson bóndibyggði kirkjuna til minningar um konuna sína. ➤ Bróðir hans Gísli Sigurðssonhannaði kirkjuna og málaði altaristöfluna. ÚTHLÍÐARKIRKJA Hjúkrunarfræðingar á Landspít- alanum efna til fjöldagöngu gegn umferðarslysum á fimmtudaginn. Soffía Eiríksdóttir hjúkrunarfræð- ingur segir þetta vilja þeirra til að sýna samhug í verki með fórnar- lömbum umferðarslysa og skjól- stæðingum heilbrigðisstarfsfólks. „Gangan er jafnframt hugsuð fyrir okkur. Við þurfum einnig að losa, fá tilfinningalega útrás og við mun- um sleppa blöðrum til minningar um fórnarlömb.“ Hjúkrunarfræðingar höfðu frumkvæði að hliðstæðri göngu í fyrra sem um fimm þúsund manns tóku þátt í. Sami hópur hefur nú myndað fylkingu fólks úr ýmsum starfshópum tengdum málefninu til að standa að samkomunni. Í hópnum eru fulltrúar fleiri hópa heilbrigðisstarfsfólks, lögreglu, slökkviliðs, sjúkraflutningamanna, presta og útfararstjóra. Almenningur er einnig hvattur til að mæta, en gangan hefst klukk- an 16.30 og verður gengið frá Landspítala við Hringbraut, upp Skógarhlíð, framhjá Fossvogs- kirkjugarði og þaðan yfir á Land- spítala í Fossvogi. atlii@24stundir.is Fjöldaganga hjúkrunarfræðinga Ganga gegn slysum Umsóknarfrestur er til 30. maí Kynntu þér námið á www.hr.is VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK Tækni- og verkfræðideild HR býður upp á BSc NÁM Í VERKFRÆÐI • BSc í fjármálaverkfræði • BSc í hátækniverkfræði Tækni- og verkfræðideild HR leggur áherslu á framúrskarandi kennslu, öflugar rannsóknir og sterk tengsl við atvinnulífið. Umsækjendur í grunnnám í verkfræði þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða hafa sambæri- lega menntun og með haldgóða þekkingu í stærðfræði, raungreinum, íslensku og ensku. Miðað er við að nemandi hafi lokið a.m.k. 21 einingu í stærðfræði og 6 einingum í eðlisfræði. • BSc í heilbrigðisverkfræði • BSc í rekstrarverkfræði TB W A\ R EY KJ AV ÍK \ SÍ A Útsala Útsala Útsala Útsasala ala Útsala Útsala Útsala

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.