24 stundir - 06.05.2008, Side 11

24 stundir - 06.05.2008, Side 11
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 11 Ísland er í þriðja sæti og fellur niður um eitt frá í fyrra, hvað varðar aðstæður mæðra, í ár- legri skýrslu Barnaheilla. Skýrsla samtakanna kemur út í tengslum við mæðradaginn, sem er í dag. Í skýrslunni eru bornar saman aðstæður mæðra og barna í 146 lönd- um. Norðurlönd koma best út. Svíþjóð er í efsta sæti, þá Noregur og Ísland hlýtur brons í ár, en var í silfursæt- inu síðast. Afríkuríkið Níger er í neðsta sæti en mörg Afr- íkulönd sunnan Sahara raðast mjög neðarlega á lista. Mikill munur er á lífslíkum fátækra og ríkra. bee Styrkjum til 30 verkefna hefur verið úthlutað úr Þróun- arsjóði grunnskóla fyrir þetta skólaár. Alls fara 18,5 millj- ónir króna í 30 ólík verkefni, en umsóknir voru 63. Snæ- landsskóli fær hæsta styrkinn, 1,1 milljón króna, í verkefnið Að læra að læra, Lundarskóli á Akureyri fær 1 milljón í verk- efnið Svífum seglum þöndum og Álftanesskóli fær líka millj- ón í verkefnið Frá gráma til gleði – skólalóðin okkar. Til- gangur sjóðsins er að efla nýj- ungar, tilraunir og nýbreytni í grunnskólum. bee Nýtt ungmennahús var opnað á Menningarhátíð í Kópavogi um helgina. Það hefur fengið nafnið Molinn og er menning- ar- og tómstundamiðstöð ungs fólks á aldrinum 16–24 ára. Molinn er gjöf bæjarstjórnar handa ungu fólki í bænum á fimmtugsafmæli bæjarfélags- ins, sem var árið 2005. Efnt var til nafnasamkeppni og verð- launum heitið. Sá sem sendi tillöguna inn kaus hinsvegar að láta ekki nafns síns getið. Lista- og menningarráð Kópavogs ákvað að gefa BUGL verð- launaféð. Staða mæðra á Íslandi Færist niður um eitt sæti Styrkir til grunnskóla Snælandsskóli fær mest Nýtt ungmennahús Molinn opnaður í Kópavogi Lögreglan á Hvolsvelli rannsakar nú tildrög slyss sem átti sér stað við skála Ferðafélags Ís- lands að Landmannalaugum, síðla kvölds föstu- daginn 18. apríl síðastliðinn. Ökumaður velti jeppa á skála félagsins með þeim afleiðingum að tveir veggir brotnuðu en að sögn Páls Guð- mundssonar formanns FÍ er skálinn ónýtur eftir óhappið. Vitni að atvikinu tjáðu forsvarsmönnum FÍ að ökumaður jeppans hefði verið ölvaður, en hvorki hann né eigandi jeppans gerðu lögreglu viðvart vegna málsins. Skömmu eftir atvikið höfðu fleiri vitni samband við Ferðafélagið og fullyrtu að ökumaður hefði ekki verið ölvaður. „Það er auðvitað skýlaust lögbrot að tilkynna ekki lögreglu um svona atvik, jafnvel þótt engin slys hafi orðið á fólki,“ segir Sveinn K. Rún- arsson yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, sem ann- ast rannsókn málsins. Lögreglan á Hvolsvelli hóf rannsókn málsins í gær eftir að tryggingafélag bifreiðarinnar hafði samband við lögreglu og óskaði eftir því að mál- ið yrði rannsakað. „Við munum boða ökumann bifreiðarinnar til skýrslutöku og í framhaldinu munum við ræða við vitni að atburðinum. Við auglýsum eftir vitnum því þeim ber ekki saman um ástand ökumannsins. Við lítum það auðvitað mjög al- varlegum augum ef menn eru að nota bifreiðar undir áhrifum áfengis á svæðinu en við fáum reglulega ábendingar um slíkt. Rekja má fjögur banaslys á þessu svæði undanfarin ár til ölv- unaraksturs.“ Eins og áður segir er skálinn talinn ónýtur en kostnaður við endurbyggingu hans er talinn vera um þrjár milljónir króna. aegir@24stundir.is Geymsluhúsnæði Ferðafélags Íslands á Landmannalaugum er ónýtt eftir árekstur Lögreglan auglýsir eftir vitnum Brotinn Svo mikið var höggið þegar jeppinn valt á skála FÍ að gafl hans brotnaði og skálinn er talinn ónýtur. Sunnudagur 18. maí kl. 21.00 Íslenska vasafélagið verður með óvænta, gamansama og upplýsandi tónlistaruppákomu í Bláa lóninu sem fer umhverfis jörðina á 18 mínútum. Tónlistaruppákoman, sem markar endapunkt opnunarhelgar Listahátíðar í Reykjavík, byggir á íslensku þjóðlagi. Bláa lónið verður opið lengur í tilefni uppákomunnar. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 0 8 – 0 8 1 0 Menningarlegir miðvikudagar í Bláa lóninu Alla miðvikudaga í maí kl. 19.30 verða menningarlegir viðburðir í boði fyrir baðgesti Bláa lónsins. Bláa lónið er opið alla daga frá klukkan 10-20. Gestum er heimilt að dvelja í lóninu í 45 mínútur eftir að miðasölu lýkur. Spennandi matseðill er í boði á Lava veitingastaðnum. 7. maí DANSSMIÐJA ÍD Tímarúm er nýtt dansverk eftir Guðmund Helgason sem er samið fyrir Danssmiðju Íslenska Dansflokksins. Í þessu abstrakt- verki tekst höfundur á við hugtökin tími og rúm, hvernig þau fléttast saman og mynda eina atburðarás. Þrír dansarar hver af sinni kynslóðinni og hver úr sinni áttinni, sameinast í hreyfingu þangað til þeir halda áfram sína leið. 14. maí KLASSART Klassart á rætur sínar að rekja til Sandgerðis og hefur vakið mikla athygli fyrir góða blústón- list. Fyrsta plata sveitarinnar sem kom út á síðasta ári ber nafnið Bottle of Blues og er önnur plata væntanleg í haust. Þau Smári og Fríða Dís Guðmundsbörn, forsprakkar Klassart, munu vera á rólegu nótunum í Bláa lóninu og flytja frumsamin lög í bland við annað. 21. maí GRADUALEKÓR LANGHOLTSKIRKJU Gradualekór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar tók til starfa 1991 en í honum eru kórfélagar á aldrinum 14-18 ára. Kórinn hefur vakið sérstaka athygli fyrir það hve auðveldlega og með mikilli gleði erfið nútímaverk eru flutt. Kórinn mun leggja áherslu á íslensk verk. 28. maí FRUMSAMIN BULLA Bergur Ingólfsson leikari mun flytja frumsamda „bullu“ í ákveðnu ljóðaformi. Bullan byrjar háfleygt en fer svo út í ruglurím um líðandi stund en inni í því er sögð saga sem stöðugt fer út úr sér vegna þess að rímið býður upp á það. Bullan verður flutt á íslensku og ensku. www.bluelagoon.is

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.