24 stundir - 06.05.2008, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir
Chaiten-eldfjallið í suðurhluta
Chile gerði vart við sig á sunnu-
dag, eftir 9.000 ára dvala. Vís-
indamenn töldu áður að fjallið
væri kulnað.
Eldvirknin stökkti um 4.500 íbú-
um Chaiten-þorps í nágrenni
fjallsins á flótta. Hafa þeir farið
fram á að stjórnvöld komi þeim
fyrir á nýjum stað, fjarri eldgosa-
hættu.
Michelle Bachelet, forseti Chile,
sagði ekkert liggja fyrir um flutn-
ing þorpsins þegar hún heimsótti
hamfarasvæðið. „Augljóslega vilj-
um við að íbúar Chaiten geti snú-
ið heim sem fyrst, en við teljum
hættu vera fyrir hendi og enn
óljóst hvernig fjallið muni hegða
sér.“ aij
Náttúruhamfarir í suðurhluta Chile
Þúsundir hrekjast undan eldgosi
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Allt að 10.000 manns liggja í valn-
um eftir að hvirfilbylurinn Nargis
gekk yfir Mjanmar, sem einnig er
þekkt sem Búrma, á laugardag.
Þúsundir til viðbótar misstu heim-
ili sín í storminum og óttast er að
tala látinna muni hækka á næstu
dögum.
Óttast er um matarskort í fram-
haldinu, þar sem landbúnaðar-
svæði urðu illa úti.
Herforingjastjórnin hefur lýst
því yfir að þjóðaratkvæðagreiðsla
um nýja stjórnarskrá, sem ráðgerð
var á laugardaginn kemur, muni
fara fram þrátt fyrir hamfarirnar.
Óttast um líf 10.000
Fyrstu tölur stjórnvalda af
mannfalli hljóðuðu upp á að 351
hefði fallið. Ríkisútvarp Mjanmar
gaf nýjar opinberar tölur út í gær.
Hafði látnum þá fjölgað upp í
3.969 og sagt var að um 3.000 til
viðbótar væri saknað. Haft er eftir
vestrænum erindrekum í landinu
að tala látinna gæti verið nær
10.000.
Í veðurofsanum fór í sundur
fjöldi vega og rafmagnslínur féllu
víða til jarðar. Ennfremur er flug-
völlurinn í Rangoon lokaður,
þannig að landið er nánast ein-
angrað frá umheiminum í aðdrag-
anda þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þjóðin mun á laugardag kjósa
um nýja stjórnarskrá sem stjórn-
völd segja að muni innleiða lýð-
ræði í landinu. Stjórnmálaskýrend-
ur telja þó skránni frekar ætlað að
festa völd Herforingjastjórnarinnar
í sessi. Stjórnvöld segjast ekki
munu aflýsa kosningunum þrátt
fyrir ástandið.
Vont versnar
Reuters hefur eftir diplómata á
svæðinu að Rangoon, stærsta borg
landsins með fimm milljónir íbúa,
minni helst á stríðssvæði. „Tré á
öllum götum. Rafmagnsstaurar
fallnir. Spítalar í rúst. Lítið af
fersku vatni.“
Þótt ástandið sé slæmt eftir
hamfarirnar hafa íbúar Mjanmar
lengi búið við kröpp kjör.
Í Rangoon nýtur rafmagns til að
mynda jafnan ekki nema í fimm
eða sex klukkustundir á dag og í
stórum hlutum dreifbýlis Mjanmar
er ekkert rafmagn. „Þannig að það
er í raun ekkert merkilegt að það sé
rafmagnslaust,“ segir David Mat-
hieson, sérfræðingur Human
Rights Watch í málefnum landsins.
Mestu hamfarir
í Asíu í áraraðir
Fellibylur reið yfir Mjanmar, eitt bágstaddasta ríki Suður-Asíu um helgina Mann-
skæðustu náttúruhamfarir á svæðinu frá flóðbylgjunni jólin 2004 Þúsunda enn saknað
➤ Um 53 milljónir manna búa ílandinu.
➤ Því hefur verið stjórnað afherforingjum frá árinu 1962.
➤ Að minnsta kosti 31 maðurlét lífið þegar herinn barði
niður mótmæli búddamunka
í september 2007.
MJANMAR
© GRAPHIC NEWS
1.
2.
3.
Haing Gyi-eyja:
162 manns létust
Irrawaddy
Bago
Karen
I R R A W A D D Y - Ó S E Y R I N
4.
5.
Rangoon
Mon
Ban I TongRangoon (Yangon)
Andamanhaf
Irrawaddy-á
Nay Pyi Taw
Bangkok
TAÍLAND
Mandalay
320 km
200 mílur
M J A N M A R
( B Ú R M A )
Hamfarasvæði
Pyapon
Bogale
WakemaBassin
Negrais-
höfði
50 km
30 mílur
ÞÚSUNDIR LÁTAST Í FELLIBYL Á MANMAR
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, og Mahmoud Abbas, leið-
togi Palestínumanna, áttu fund í
gær þar sem reynt var að finna frið-
arviðræðum fyrir botni Miðjarðar-
hafs farveg.
Helgarheimsókn Condoleezzu
Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, til svæðisins lauk í gær. Hún
notaði tækifærið til að hvetja Ol-
mert og Abbas til að hittast til að
koma friðarferlinu af stað.
Sagðist Rice vonast til að hægt
væri að leysa deilu Ísraels og Palest-
ínu á árinu og að æskilegt væri að
viðræður væru komnar vel af stað
þegar George Bush Bandaríkjafor-
seti heimsækir Ísrael til að fagna 60
ára afmæli ríkisins seinna í mán-
uðinum. aij
Olmert og Abbas
funda saman
Hlíta áskorun Condoleezzu Rice
Viðræður hafnar Ehud Olmert og
Mahmoud Abbas mæta til fundar
STUTT
● Borgarstjóri Lundúna Íhalds-
maðurinn Boris Johnson lagði
Ken Livingstone í baráttunni
um borgarstjórastól í bresku
höfuðborginni á sunnudag. Li-
vingstone var einn af fjölmörg-
um fulltrúum Verkamanna-
flokks Gordons Brown sem
misstu sæti sín.
● Deilt um skipun Silvio Ber-
lusconi liggur undir ámæli
múslíma fyrir að ætla að skipa
hægrimanninn Roberto
Calderoli ráðherra í rík-
isstjórn sinni. Calderoli hefur
verið harðorður í garð músl-
íma í gegnum tíðina.
Rannsókn lögreglu á máli
Austurríkismannsins Josef
Fritzl hefur leitt í ljós að hann
hafi strax árið 1978 undirbúið
kjallarafylgsnið þar sem hann
kom dóttur sinni fyrir. Jafn-
framt er talið að hann hafi
misnotað hana kynferðislega
frá árinu 1976. Elisabeth Fritzl
var læst inni í 35 fermetra
geymslunni árið 1984 og
þurfti hún að dúsa þar þangað
til í apríl á þessu ári. aij
Níðingurinn Josef Fritzl
Lagði lengi
á ráðin