24 stundir - 06.05.2008, Side 15
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 15
Þegar Siv Friðleifdóttir, fyrr-verandi heilbrigð-isráðherra,
sakaði eftirmann
sinn í embætti,
Guðlaug Þór Þórð-
arson, um að vinna
að einkavæðingu
heilbrigðiskerfisins í
Silfri Egils á sunnudag neitaði
hann því hvorki né játti. Hann
benti Siv hins vegar á að Fram-
sóknarflokkurinn hefði staðið
fyrir einkavæðingu í heilbrigð-
iskerfinu. Siv vísaði því frá og
sagði að þar hefði aðeins verið um
einkarekstur að ræða. „Þetta er
alltaf leikur að hugtökum,“ svar-
aði Guðlaugur þá og bætti við:
„Þegar þú tekur bæklunaraðgerð-
irnar út af spítalanum og yfir til
einkaaðila, hvað er það? Þegar þú
tekur heilsugæsluna og býður
hana út til einkaaðila, hvað er
það?“
Borgarstjórinní Reykjavík,Ólafur F.
Magnússon, var
áberandi á ald-
arafmælisfagnaði
íþróttafélagsins
Fram síðastliðið miðvikudags-
kvöld og flutti meðal annars er-
indi. Sú athygli nægði honum
greinilega ekki því síðar um
kvöldið gerðist hann boðflenna í
miðju skemmtiatriði stuðmanns-
ins Egils Ólafssonar. Þar sem Eg-
ill gekk um salinn og flutti gam-
anmál og söng hrifsaði Ólafur
hljóðnemann af honum og sagði
að það færi vel á því að hann sem
borgarstjóri syngi lagið „Vorkvöld
í Reykjavík“ fyrir gesti. Egill lét
inngrip Ólafs ekki trufla sig og
„afgreiddi hann eins og drukkinn
gest á Stuðmannatónleikum, tók
af honum hljóðnemann og lét
hann setjast,“ eins
og einn sjón-
arvottur orðaði það.
Ólafur munað und-anförnu
hafa æft sig að syngja „Vorkvöld í
Reykjavík“ undir leiðsögn Stuð-
mannsins Jakobs Frímanns
Magnússonar og er þess vegna
ólmur í að koma fram. Boðaði
hann til dæmis Sjónvarpið sér-
staklega á afdrifaríkan íbúafund í
miðborginni á laugardag til þess
að hann gæti tekið lagið á sjón-
varpsskjám landsmanna. Þar varð
hins vegar ekkert af söngnum
enda var það annað sem fangaði
athygli gesta. elias@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, hélt athyglis-
verða ræðu á miðstjórnarfundi
flokksins síðastliðinn laugardag.
Þar tók hann m.a. fyrir hugleiðing-
ar sínar um Evrópumál. Þær hug-
leiðingar urðu meginuppistaðan í
ályktun sama fundar sem sam-
þykkt var einróma. Framsóknar-
flokkurinn hefur nú tekið frum-
kvæði í hvernig leiða eigi fram
þjóðarviljann um ESB, þ.e. hvort
Ísland eigi að stefna að ESB-aðild
eða ekki. Framsóknarmenn telja að
lýðræðislegasta leiðin sé sú að fram
fari þjóðaratkvæðagreiðsla um
hvort þjóðin eigi að veita stjórn-
völdum umboð (heimild) til að
hefja samningaviðræður við ESB
um hugsanlega aðild. Kalla má
slíka þjóðaratkvæðagreiðslu „þjóð-
aratkvæðagreiðslu 1, umboðsat-
kvæðagreiðslu“. Veiti þjóðin slíkt
umboð, þá færu stjórnvöld í samn-
ingaviðræður um hugsanlega aðild.
Niðurstaða þeirra samningavið-
ræða yrði lögð fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Seinni þjóðar-
atkvæðagreiðsluna má kalla
„þjóðaratkvæðagreiðslu 2, aðildar-
atkvæðagreiðslu“. Kalla má þessa
aðferð við að ná fram vilja þjóð-
arinnar „tvöfalda þjóðaratkvæða-
greiðslu“ til hægðarauka, en taka
það skýrt fram í leiðinni að ein-
ungis yrði um fyrri þjóðaratkvæða-
greiðsluna að ræða ef þjóðin myndi
í henni hafna því að veita stjórn-
völdum umboð til samningavið-
ræðna. Í ályktun miðstjórnarfund-
arins segir: „Útfærsla á þjóðar-
atkvæðagreiðslum verði skoðuð
frekar á komandi flokksþingi Fram-
sóknarflokksins að undangenginni
umræðu um Evrópumál sem fram-
kvæmdastjórn standi fyrir.“ Í þeirri
útfærslu þarf t.d. að skoða atriði er
lúta að þátttöku í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Á að setja lágmarksskilyrði
um þátttöku atkvæðisbærra manna
í þeim kosningum? Hversu afger-
andi þarf niðurstaða slíkrar at-
kvæðagreiðslu að vera? Á einfaldur
meirihluti að ráða eða á að gera
kröfu um aukinn meirihluta? Allar
þessar spurningar eru flóknar og
því eðlilegt að skoða málin vel áður
en þeim er svarað. Einnig þarf að
útfæra tímasetningar. Hvenær er
t.d. eðlilegt að atkvæðagreiðsla 1
fari fram? Fáist umboð til samn-
ingaviðræðna væri eðlilegt að
seinni atkvæðagreiðslan, atkvæða-
greiðsla 2, færi fram fljótlega í kjöl-
far niðurstöðu samingaviðræðna.
Að mínu mati er nauðsynlegt að
setja lög um báðar atkvæðagreiðsl-
urnar, þ.e. eftir hvaða reglum þær
eigi að fara fram. Verði veitt umboð
til aðildarviðræðna er líka mikil-
vægt að áður en til þjóðaratkvæða-
greiðslu 2 kemur verði búið að
breyta stjórnarskrá þ.e. í stjórnar-
skrá verði skýrt kveðið á um að til-
teknar náttúruauðlindir verði í
sameign þjóðarinnar í anda þess
frumvarps sem Framsóknarflokk-
urinn hefur lagt fyrir Alþingi. Að
mínu mati væri ekki nauðsynlegt
að setja reglur um þjóðaratkvæða-
greiðslu 1, umboðsatkvæðagreiðsl-
una, í stjórnarskrá vegna eðlis
hennar, heldur væri réttara að setja
um hana sérlög. Í þessu sambandi
er eðlilegt að skoða hvernig aðrar
þjóðir hafa farið að. Í Noregi voru
sett sérlög um þjóðaratkvæða-
greiðslu varðandi mögulega aðild
að ESB þar sem hvorki voru gerðar
kröfur um tiltekna lágmarksþátt-
töku né aukinn meirihluta. Niður-
stöður þeirra kosninga voru ekki
lagalega bindandi heldur ráðgef-
andi. Sams konar tilhögun var
varðandi ráðgefandi þjóðarat-
kvæðagreiðslu í Svíþjóð og Finn-
landi um aðild að ESB. Hér skal
tekið fram að þessi norrænu ríki
fóru ekki þá leið sem framsóknar-
menn leggja til, þ.e. í Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi var ekki farið í
þjóðaratkvæðagreiðslu 1, heldur
einungis beint í þjóðaratkvæða-
greiðslu 2. Framsóknarleiðin er því
séríslensk sáttaleið. Í dönsku stjórn-
arskránni er kveðið á um að ef laga-
frumvarp feli í sér valdaframsal til
fjölþjóðlegra stofnana á grundvelli
alþjóðasamnings, þá þurfi frum-
varpið að hljóta samþykki 5/6 hluta
þingmanna. Hljóti frumvarp ekki
slíkan stuðning, en nýtur engu að
síður stuðnings meirihluta þing-
manna, er hægt að bera það undir
þjóðaratkvæði. Af framansögðu má
sjá að Framsóknarflokkurinn hefur
fyrstur flokka lagt fram lýðræðis-
lega sáttaleið til að komast að vilja
þjóðarinnar um hver staða okkar í
Evrópu eigi að vera.
Höfundur er alþingismaður
Lýðræðisleg sáttaleið
VIÐHORF aSiv Friðleifsdóttir
Hversu afgerandi þarf
niðurstaða slíkrar at-
kvæða-
greiðslu að
vera? Á ein-
faldur meiri-
hluti að ráða
eða á að gera
kröfu um
aukinn meirihluta?
Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús)
Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is
Mest seldu
pottar á Íslandi
Nokkrar staðreyndir um gæði pottanna.
• 3,5 hestafla dælur.
• TruGard hitari 4,4 kw, sá besti á markaðinum.
• Lokið þolir 1000 kg.
• Öflugt Ozon hreiniskerfi fylgir öllum okkar pottum.
• Botninn eru úr trefjagleri, (rotnar eða fúnar ekki.)
• 100% músheldur.
• Opnanlegar aðgangslúgur frá öllum hliðum.
• Gegnheill cedrusviður.
• Lífstíðarábyrgð á skelinni, sem er úr trefjagleri.
• 5 ára ábyrgð á öllum mótorum, rafkerfi.
• 24 tíma öflugt hreinsikerfi.
Arctic Spas eru framleiddir í Kanada.
Þola -50 gráður frost og henta einstaklega vel
íslenskum aðstæðum.
Vissir þú að Arctic
Spas eru ódýrastir
í rekstri af öllum
pottum framleidd-
um í heiminum!!