24 stundir - 06.05.2008, Side 17

24 stundir - 06.05.2008, Side 17
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 17 Verð á hráolíu hækkaði umtalsvert í gær og fór í fyrsta skipti yfir 120 Bandaríkjadali tunnan. Verð á hráolíu til afhendingar í júní fór í 120,21 dal tunnan í viðskiptum á markaði í New York. Skýrist hækkunin einkum af því að olíubirgðir virðast minni heldur en áður var talið og einnig af lækkun á gengi Bandaríkjadals. Jafnframt hafði áhrif til hækkunar sá óstöðugleiki sem ríkir í norðurhluta Íraks en þar hafa uppreisnarmenn úr hópi Kúrda átt í skærum við tyrkneska herinn. Um helgina sprengdu uppreisnarmenn í Nígeríu upp stöð í eigu Shell og fleiri aðila sem dregur verulega úr framleiðslugetu í land- inu. mbl.is Olíuverð í hæstu hæðum ExBoyFriendJewelry.com er síða sem tvær konur frá New York stofnuðu fyrir kynsystur sínar sem vilja selja skartgripina frá sínum fyrrverandi. Samtímis geta konur létt á hjarta sínu á síðunni, að því er sagt er frá á business.dk sem vitnar í New York Times. Annar stofnandi síðunnar, Meg- han Perry, fékk hugmyndina þeg- ar hún kvöld eitt sat og borðaði kótelettu og hugsaði um fyrrver- andi eiginmann sinn. Nú er trú- lofunarhringurinn hennar til sölu á síðunni. ibs Skartið frá fyrr- verandi selt Á tveimur nýjum gerðum af Dell- fartölvum er vinstri lykillinn fyrir stóra stafi svo breiður að staðsetn- ing hinna lyklanna hefur færst til. Það truflar verulega þá sem skrifa án þess að horfa á lyklaborðið. ibs Öngþveiti á lyklaborðinu Húsgagnaverslunin Epal hefur hækkað verð á húsgögnum sínum vegna gengissveiflna. Lesandi 24 stunda hafði samband við blaðið og benti á að stóll, svokölluð Sjöa, sem kostaði 29.800 krónur í jan- úar, kostaði nú 38.900 krónur. Eyjólfur Pálsson, forstjóri Epal, segir verð hjá versluninni að ein- hverju leyti ráðast af gengi. „Velt- an er rosalega hröð hjá okkur. Við erum að fá einn til fjóra gáma á viku, og ráðum ekki við gengið. Við höfum haft það markmið að leiðarljósi við verðlagningu hjá Epal, að varan kosti ekki meira hjá okkur en í landinu þar sem varan er framleidd. Það hefur gengið nokkuð vel,“ segir Eyjólfur, og bætir því við að viðskiptavinir Epal hafi hrósað versluninni fyrir að Sjöan sé nánast hvergi jafn ódýr og hjá Epal. hlynur@24stundir.is Gengið hefur áhrif á verð í Epal Lífeyriskerfi framtíðarinnar Endurmat norrænu velferðarríkjanna Fjölþjóðleg ráðstefna Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, Norræns öndvegisseturs í velferðarrannsóknum (REASSESS), Landssamtaka lífeyrissjóða og Tryggingastofnunar ríkisins, í Háskólabíói, 7. maí 2008 kl. 9 - 15:30. Fundarstjóri: Rannveig Traustadóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Setning: Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra I. hluti: Norrænu lífeyriskerfin og nýlegar breytingar þeirra (kl. 9-12) 1. Joakim Palme, prófessor við Stokkhólmsháskóla og forstöðumaður Institute for Future Studies: The Swedish Pension Reform and Beyond: Economic and Political Sustainability? 2. Olli Kangas, framkvæmdastjóri rannsókna, Tryggingastofnun Finnlands (KELA): Finland: Reforming pensions through piecemeal changes 3. Axel West Pedersen prófessor, NOVA Rannsóknarstofnun í velferðarmálum, Osló: The emerging Norwegian pension reform. A softer version of the Swedish prototype? 4. Jörgen Goul Andersen, prófessor og forstöðumaður Center for Comparative Welfare Research, Álaborgarháskóla. Denmark: A Social Democratic Multipillar System. Adequacy and economic sustainability, but political vulnerability? II. hluti: Lífeyriskerfi Íslendinga og endurskoðun þess (kl. 13-15:30) 5. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða: Íslensku lífeyrissjóðirnir: Einkenni og umbætur 6. Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og stjórnarformaður Tryggingastofnunar ríkisins: Íslenska lífeyriskerfið: Hvað þarf að endurbæta? Pallborð: Hvað þarf að bæta í íslenska lífeyriskerfinu? Stjórnandi: Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneyti Þátttakendur: Gylfi Arinbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ Halldór Sævar Guðbergsson, formaður ÖBÍ Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags eldri borgara Ólafur Ísleifsson, lektor Háskólanum í Reykjavík Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og alþingismaður Fyrstu fjögur erindin verða flutt á ensku en allt annað fer fram á íslensku Aðgangur er ókeypis, skránig er á netfanginu kolbeinn@hi.is

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.