24 stundir - 06.05.2008, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Það sem hefur gerst á þessu ári er
að rekstrarkostnaður bifreiða er að
hækka umfram vísitölu neyslu-
verðs,“ segir Runólfur. „Við þekkj-
um það sjálf sem neytendur að
eldsneytisverð vegur þungt í
rekstrarkostnaði og af þeim þátt-
um sem við mælum hefur elds-
neytisverðið hækkað mest.“
Þurfum að gera aðra könnun
Runólfur segir útreikninga FÍB
miðast við nýja bifreið og taka til
bifreiða í mismunandi þyngd-
arflokkum. „Í rekstrarkostnaði er
falið verð á eldsneyti, viðhald og
viðgerðir, hjólbarðar, tryggingar,
skattar og skoðun, bílastæðakostn-
aður, þrif og vaxtakostnaður. Flest-
ir þátta er við mælum í könnun
okkar hafa hækkað frá því við
mældum verð í janúar og því er
ástæða til að endurtaka verðkönn-
un þar sem hún endurspeglar ekki
lengur rekstrarkostnað á árinu
2008.
Hækkun á verði eldsneytis
Í könnun á rekstrarkostnaði bif-
reiða vegna ársins 2008 kemur í
ljós mikill kostnaðarauki fyrir
neytendur vegna hækkandi verðs á
eldsneyti.
Ef miðað er við smábíl sem
keyrður er um 15.000 km á ári
með vél sem eyðir um 8 lítrum á
100 kílómetrum hefur rekstr-
arkostnaður slíkrar bifreiðar
hækkað úr 705.075 krónum í
781.235 krónur. Hækkunin nemur
76.160 krónum frá árinu 2007.
Hvernig má spara?
Runólfur segir margt hægt að
gera til að spara í rekstri bifreiðar.
Á heimasíðu FÍB segist hann hafa
tekið saman nokkur haldgóð ráð.
„Það má til dæmis skipuleggja
útréttingar og þá er betra að
stoppa nokkrum sinnum í einni
ferð en fara margar stuttar ferðir.
Það styttir vegalengd.
Þá er vert að minnast á að hrað-
akstur eykur bensíneyðslu og veld-
ur umhverfisspjöllum,“ bætir Run-
ólfur við. Það borgar sig að aka á
löglegum hraða og taka af stað
með jöfnum hraða, spara inngjöf-
ina og forðast snögghemlun. Þú
sparar bensín og dregur úr meng-
un.“ Runólfur bætir því við að það
hjálpi að velja greiðfærar umferð-
argötur. „Við segjum stundum:
Hugsaðu áður en þú ekur af stað.“
24stundir/Brynjar Gauti
Rekstrarkostnaður bifreiða hækkar og hækkar
Eldsneytisverðið veg-
ur mikið í kostnaði
Félag íslenskra bifreiða-
eigenda fylgist grannt
með rekstrarkostnaði bif-
reiða frá ári til árs. Fram-
kvæmdastjóri félagsins,
Runólfur Ólafsson, segir
eldsneytisverð vega mik-
ið í hækkun kostnaðar frá
árinu 2007 til 2008.
Fúlgur fjár Jeppaeigandi á
bíl sem eyðir um 11 lítrum af
bensíni á 100 km og er ekið
15.000 km á ári borgar rúmar
245.000 krónur á ári í bensín.
Kemur sér vel Toyota
Yaris 1.0 er sparneytnasti
billinn með bensínvél.
Sparaksturskeppni FÍB og Atl-
antsolíu fór fram um síðustu helgi,
laugardaginn 3. maí. Fyrsti bíllinn
var ræstur á hádegi en mikill fjöldi
hafði skráð sig til keppni.
Keppt var samkvæmt þeim lög-
um og reglum FIA sem gilda um
keppni af þessu tagi og var keppnin
tvískipt: Annars vegar kepptu at-
vinnumenn, þ.e.a.s. keppendur úr
bílgreininni en hins vegar almenn-
ingur. Markmiðið með keppninni
er að komast keppnishringinn á
sem minnstu magni eldsneytis.
Keppnisleið sparaksturskeppn-
innar er 143 kílómetrar og liggur
um Mosfellsdal, Mosfellsheiði,
niður Grafning, fram hjá Nesja-
völlum að Ljósafossi, í gegnum
Selfoss og um Þrengsli til Reykja-
víkur. Upphaf og endir keppninnar
var á bensínstöð Atlantsolíu við
Húsgagnahöllina, Bíldshöfða.
Um sparakstur
Bílarnir skulu vera með fullan
eldsneytistank og réttan loftþrýst-
ing í dekkjum. Keppt er í nokkrum
flokkum og veittar viðurkenningar
fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum
flokki. Í flokki almennings fór Jón
Smári Jónsson keppnishringinn á
3.53 lítrum á 100 kílómetrum.
dista@24stundir.is
Er eitthvað til sem heitir sparakstur?
Sparaksturskeppni FÍB
Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri
FÍB Ekki vanþörf á því
að læra sparakstur.
Gúmmívinnustofan
SP dekk - Skipholti 35 -105 R
Sími: 553 1055
www.gummivinnustofan.is
Sumardekk
Opið 8-18 virkadaga 9-15 laugardaga
Öryggi bílsins byggist
á góðum hjólbörðum
UPPLÝSINGAR O
is
ing Mjódd
Næsta námskeið hefst
7. maí n.k.
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.