24 stundir - 06.05.2008, Blaðsíða 23

24 stundir - 06.05.2008, Blaðsíða 23
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 23 KYNNING Þegar sólin hækkar á lofti sést tölu- vert meira af mótorhjólum á götum borgarinnar og sala hjóla eykst eftir því. Jón Hjörleifsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Kross- götur, segir að vissulega aukist salan á mótorhjólum á þessum tíma en Krossgötur er með umboðið fyrir Triumph mótorhjólum. Jón segir Triumph vera ein sérstæð- ustu mótorhjól heims, bæði hvað gæði og útlit varðar, enda verið framleidd síðan 1905. „Eitt vinsæl- asta hjólið okkar er Street Triple 675 sem er uppselt út um allan heim, nokkrum mánuðum eftir frumsýn- ingu þess. Street Triple 675 er eitt eftirsóknaverðasta millivigtarhjólið á markaðnum enda vel útlítandi og með magnaða aksturseiginleika- .“Jón segist vera með ein fjórtán mótorhjól í sölu en algengt er að þeir sem þekkja Triumph mót- orhjólin vilji fátt annað. „Sport- hjólin okkar eru þekkt fyrir styrk og sveigjanleika á öllum sínum ferðum enda hönnuð fyrir fólk sem krefst alvöru frammistöðu. Triumph hjól- in eiga það sameiginlegt að vera yf- irleitt með fleiri hestöfl á kíló á hjóli heldur en önnur hjól og bestu hjól- in eru það alltaf. Það eru fjögur eða Krossgötur eru með umboð fyrir Triumph mótorhjól Ein sérstæðustu mótorhjól heims Triumph Krossgötur eru með umboð fyrir Triumph mótorhjól á Íslandi. fimm Triumph hjól sem hafa verið valin í hópi tíu bestu hjóla heims af viðskiptavinum og blaðamönnum,“ segir Jón sem finnst tími til kominn að landsmenn kynnist gæðum Tri- umph hjólanna. „Við erum með tvö utanvegahjól sem heita Scrambler og Tiger en hitt eru allt saman götu- hjól. Það er sama hvað við- skiptavinurinn leitar eftir, það má finna það allt í Triumph mótorhjóli og meira til. Ég er til dæmis með meira úrval í götuhjólum en nokkur annar. Auk mótorhjóla verðum við með mikið úrval fjarstýrða bíla, bílakerrur, fjórhjól og margt ann- að.“ Breska tryggingafyrirtækið Sheila’s Wheels hefur látið búa til hælaháa skó sem taka má hælinn af og breyta þeim þannig í þægilega, flatbotna akstursskó. Fyrirtækið sérhæfir sig í tryggingum fyrir konur sem rannsóknir sýndu að væru gjarnan í óþægilegum skóm við akstur, svo hér er komin þægi- leg lausn með aukagripi á sólanum og ekki þarf að hafa mörg mis- munandi skópör í bílnum. Breytanlegur ökuskór Fyrirtækið Berg Toys framleiðir þennan leikfangabíl sem sumir hafa kallað besta leikfang í heimi, Ferrari FXX fótstiginn bíl. Bíllinn er eins manns og er öllum helstu kostum Ferrari búinn, en stýrið er til að mynda leðurklætt. Eins og hinn eini sanni bíll kostar þessi far- arskjóti nokkuð mikið, staðlað módel kostar um 55.000 kr en vandaðri gerðir með aukabúnaði frá 165.000 kr. Fótstiginn Ferr- ari-leikfangabíll Árið 1936 fannst einhverjum það góð hugmynd að hengja hundinn sinn í þar til gerðum strigapoka ut- an á bifreið sína. Pokarnir þóttu hugvitsamlegir á sínum tíma fyrir þá sem vildu hlífa bílnum við óhreinindum og hárlosi er fylgja ferðalagi í bíl með hundi. Í dag eru breyttir tímar og þætti notkun á poka sem þessum vægast sagt grimmdarleg og ekki hættulaus fyrir hundgreyið. Sannkallað hundalíf

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.