24 stundir - 06.05.2008, Síða 25
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 25
Tími nagladekkjanna er liðinn
þennan veturinn og nú þyrftu öku-
menn að vera búnir að skipta yfir á
sumardekk. Leyfilegt var að hafa
nagladekkin undir fram til 15. apr-
íl en ekki er þó amast yfir því þótt
slík dekk séu undir bílunum út
aprílmánuð. Eftir þann tíma mega
ökumenn fara að búast við aðgerð-
um lögreglu og sekt fyrir að vera á
nagladekkjum á sumartíma mun
vera 5.000 krónur á hvert dekk.
Allir búnir að
skipta?
Ekki veitir af því að gera það sem
hægt er til að spara eldsneyti.
Almenningi gefst kostur á að sækja
sparakstursnámskeið í boði
Volkswagen og HEKLU. Nám-
skeiðið er tveir tímar og ökukenn-
arar leiðbeina ökumönnum um
aksturslag er stuðlar að 15% elds-
neytissparnaði. Aðgangur er
ókeypis og takmarkaður sætafjöldi
er í boði. Skráning fer fram á
www.volkswagen.is.
Sparaksturs-
námskeið
Michelin Nordic framleiðandi á
dekkjum lét könnunarfyrirtæki
rannsaka það hversu hátt hlutfall
bíleigenda skiptir úr sum-
ardekkjum yfir í vetrardekk og
hversu margir nota heilsársdekk. Á
dönskum markaði kom í ljós að
19% bíleigenda sjá ekki ástæðu til
að skipta úr sumardekkjum yfir í
vetrardekk. Könnunin leiddi einn-
ig í ljós að 21% danskra bíleigenda
keyrir á heilsársdekkjum.
Heilsársdekk
verða æ vinsælli
Fyrir suma er það hrein útrás
fyrir hetjulundina þegar dekk
springur. Að vippa sér út, hnykla
vöðva, taka tjakkinn öruggum
höndum og reyna að setja tíma-
met í að snara nýju dekki undir
bílinn. Fyrir aðra er það hrein og
klár dómsdagsupplifun að þurfa
að skipta um dekk. Tjakkurinn
rennur úr höndunum á þeim og
tilraunir þeirra klaufsku og
kvíðnu geta endað á því að á
tjakknum er djöflast þangað til gat
er komið á undirvagn bílsins.
Þessir aðilar geta reynt að kom-
ast yfir framúrstefnulegan tjakk á
borð við The Exhaust Air Jack.
Það má reyna að nálgast gripinn á
netinu.
Hálfnað er verk þá hafið er!
Tjakkurinn er augljóslega hann-
aður fyrir þá sem hafa andúð á því
að skipta um dekk því bílstjórinn
þarf að hafa lítið fyrir því að lyfta
bílnum með aðstoð hans. Bílstjór-
inn setur stóra, appelsínugula
gúmmíblöðruna á réttan stað við
sprungna dekkið og tengir þar til
gerða slöngu við útblástursrör
bílsins. Stígur svo á bensíngjöfina í
um það bil 30 sekúndur þar til
blaðran fyllist af lofti og bíllinn
lyftist. Þá er bara að finna ein-
hvern með hetjulund og hnyklaða
vöðva í nágrenninu til að snara af
gamla dekkinu og setja nýtt á!
dista@24stundir.is
Nýjar leiðir til að skipta um dekk
Fyrir klaufa og kvíðna
Fyrirtaks lausn Fyrir
þá sem kvíða því að
skipta um dekk.
Í New York eru ruslabílarnir fag-
urlega skreyttir eins og sjá má hér á
myndinni. Enda kannski ekki hægt
að láta venjulega sorpbíla keyra um
í borg tískunnar. Dálítið öðruvísi
útlit en á hinum hefðbundu sorp-
bílum og fegra þeir umhverfið
meðan ruslinu er safnað saman.
Einnig gætu slíkir bílar verið til-
valið tækifæri fyrir unga listamenn
til að koma list sinni á framfæri.
Skreyttir
ruslabílar
Of lítið loft í hjólbörðum þýðir
aukna slysahættu og meiri elds-
neytiseyðslu. Til að koma í veg
fyrir slysahættu og óþarfa slit á
dekkjum þarf að skoða hjól-
barðana að minnsta kosti mán-
aðarlega. Upplýsingar um réttan
loftþrýsting er að finna innanvert
á dyrapóstinum ökumannsmegin.
Hvað getur gerst?
Slitnir hjólbarðar rýra aksturs-
eiginleika bifreiðarinnar. Heml-
unarvegalengdin verður lengri og
hætta eykst á að bíllinn renni til.
Ökumenn ráða mun verr við bif-
reiðina ef lítið loft er í hjólbörð-
unum, auk þess sem þeir slitna
mun hraðar. Ef of mikið loft er í
hjólbörðunum minnkar veggrip,
bíllinn verður óstöðugur við
hemlun og verri í akstri.
Á flestum bensínstöðum má fá
aðstoð við að rétta af loftþrýsting í
dekkjum auk þess sem á mörgum
þeirra liggur frammi loftþrýstings-
og dekkjaslitsmælir frá dekkja-
framleiðandanum Bridgestone.
Í könnunum alþjóðasamtaka
bifreiðaeigendafélaga kom í ljós að
um 38% bíla í umferð í Evrópu
eru með rangan loftþrýsting í
dekkjum sem eru dapurlegar nið-
urstöður sem ógna umferðarör-
yggi.
dista@24stundir.is
38 prósent bíla með rangan loftþrýsting
Of lítið loft í hjólbörðum
Kannaðu ástand hjólbarðanna Og
auktu með því öryggi þitt í umferðinni.
Sumardekk hjólbarðaþjónusta
Sumar- og heilsársdekk fyrir allar gerðir fólksbíla og jeppa.
Hagstætt verð og traust þjónusta.
Reykjavík Akureyri
Tangarhöfða 15 : 587 5810 Réttarhvammi 1 : 464 7900
Vagnhöfða 6 : 577 3080
www.alorka.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
07
53
Við tökum vel á móti þér
á þjónustustöðvum okkar!
Umboðsaðili fyrir Bridgestone hjólbarða