24 stundir - 06.05.2008, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Ég get alveg séð fyrir mér að lið Fram sé líklegur
kandidat til að koma dálítið á óvart. Hafa staðið
sig vel þá leiki sem ég hef séð þá spila og greinilegt að
þar er verið að vinna hörðum höndum.
Loks sýndu leikmennBarcelona klærnar með6-0 rúlli
yfir Valencia í
spænsku deild-
inni eftir 409
mínútna
markaþurrð en
þá skipti það
engu máli. Það
besta sem Börsungar geta von-
ast eftir nú er annað sætið og
verður forvitnilegt í meira lagi
að sjá hvort stórsigurinn nú
hvetji þá til dáða á Santiago
Bernabeau í Madrid gegn
meisturum Real Madrid um
næstu helgi.
Ferli Ottmar Hitzfeld semþjálfara Bayern lýkurmeð titli
en ekkert fé-
lagslið getur nú
náð Bæjurum
að stigum þó
að þrjár um-
ferðir séu enn
eftir. Eftir
verslunaræði fyrir leiktíðina
hefði allt annað verið hrein
hneisa en aldrei áður hafa verið
keyptir leikmenn til liðsins fyrir
slíkar upphæðir. Leikmenn á
borð við Franck Ribery, Luca
Toni, Marcell Jansen og Mi-
roslav Klose. Hitzfeld getur nú
snúið sér að þjálfun landsliðs
Sviss fyrir Evrópumótið í sum-
ar og vart seinna vænna.
Verulega syrti í álinn fyrirÍvar Ingimarsson ogBrynj-
ar Björn
Gunnarsson
hjá Reading
um helgina. Er
lið þeirra í
bullandi fall-
hættu í ensku
úrvalsdeildinni en það á góða
möguleika gegn botnliði Derby
County í lokaleiknum. Reading
þarf að vinna leikinn og á sama
tíma þurfa önnur úrslit að falla
rétt til að Íslendingarnir og lið
þeirra haldi sér í efstu deild.
Kanadískir fjárfestarskoða nú möguleikanaá því
að eignast Tott-
enham Hotsp-
ur en fjárfest-
arnir eru þeir
sömu og eiga
íshokkíliðið
Toronto Maple
Leafs. Hefur þeim verið tekið
fálega í London enda Totten-
ham strangt til tekið ekki til
sölu og engar fjárhagskröggur
sem ollið gætu breytingu á því.
Sven Göran Eriksson neit-ar að tjá sig um framtíðsína við
blaðamenn en
sterkar sögu-
sagnir ganga
þess efnis að
hann verði ekki
mikið lengur
þjálfari Man-
chester City. Stuðningsmenn
vilja hann áfram.
Ronaldinho fer ekki tilAC Milan. Þetta stað-festi framkvæmdastjóri
liðsins og hefur
snúið sér ann-
að að svo
stöddu. Áhugi
Chelsea er þó
enn til staðar.
Framtíð japanska Super Ag-
uri-liðsins í Formúlu 1 er í
miklu uppnámi eftir að yf-
irtökuhugmyndir féllu um
sjálft sig fyrir skömmu. Fær
liðið ekki að taka þátt í Tyrk-
landsmótinu um þessa helgi
jafnvel þótt það sé þangað
mætt með manni og mús. Lít-
ur út fyrir að liðið verði dreg-
ið úr keppni og lagt niður í
kjölfarið þannig að keppnis-
liðum í F1 fækkar í 10 lið í
fyrsta skipti í þrjú ár.
Ekki með
að sinni
Kári Steinn Karlsson hlaupari
heldur áfram að gera garðinn
frægan. Um helgina sló hann
25 ára gamalt Íslandsmet í
5.000 metra hlaupi um heilar
sex sekúndur en eldra metið
átti Jón Diðriksson. Fækkar
smám saman þeim metum er
lifa það lengi.
Loksins
Fyrsta siglingamót þessa sum-
ars verður haldið á laugardag-
inn kemur þegar opnunarmót
kjölbáta fer fram. Siglt verður
úr Reykjavíkurhöfn inn til
Hafnarfjarðar en umrætt mót
er með þeim vinsælli ár hvert.
Mótið gildir til Íslandsbikars.
Í kjölinn
Leikmenn íshokkíliðsins San
Jose Sharks eru líklega afar
fúlir enda úr leik í úr-
slitakeppni NHL eftir 2-1 tap
gegn Dallas Stars en hvorki
fleiri né færri en fjórar fram-
lengingar þurfti til að knýja
fram úrslitamarkið en leik-
urinn er sá áttundi lengsti í
sögu deildarinnar. Dallas
mætir nú Detroit Red Wings
sem margir spá titlinum þetta
árið.
Fjórar
framlengingar
SKEYTIN INN
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Þetta er ekkert auðveldasti leikur-
inn til að byrja á en við hræðumst
ekkert og raunsætt tel ég mögu-
leika okkar aldeilis ágæta að landa
stigum eða stigi gegn ÍA,“ segir
Ólafur Kristjánsson, þjálfari
Breiðabliks. Hann er sammála
kollega sínum uppi á Skaga að
bæði ÍA og Breiðablik séu sterkari
en fyrir ári og slagur liðanna nú
eigi að bera keim af því.
Hópurinn?
„Ég er svona að verða sáttur við
gang mála. Við höfum æft stíft í
vetur á nánast sama mannskap og
fyrir ári sem ég tel að verði stór
plús. Þetta er mjög fín blanda yngri
og eldri leikmanna og þeir nýju
strákar sem ég hef prófað í æfinga-
leikjum hafa staðið sig mjög vel.
Veturinn hefur farið í að laga það
sem mér fannst skorta á í fyrra og
við erum á réttri leið með það.“
ÍA?
„Skemmtilegt lið sem erfitt er að
kljást við en ég tel ekkert á okkur
hallað þó að leikurinn fari fram á
Skaganum. Við getum vel valdið
usla og á góðum degi tekið þrjú stig
af Skagamönnum þar. Þeir hafa
bætt sig og voru góðir fyrir ári og
ég gæti trúað að dagsformið skeri
úr um hvorum megin gleðibrosin
lenda eftir leikinn.“
Deildin?
„Mér líður hálfpartinn eins og
krakka sem bíður eftir að opna
jólagjöfina á aðfangadag. Ég er viss
um að mótið verður skemmtilegra
en áður vegna fleiri leikja og eins
líka af því að mér sýnist meira eða
minna öll lið hafa bætt sig.“
Spáin?
„Valur, FH og KR verða feikilega
öflug og við toppinn. Sagan sýnir
að nýliðarnir ættu að eiga á bratt-
ann að sækja en ég vil engu spá um
botnbaráttuna.
Dagsformið
skiptir miklu
Þjálfari Blika segir þá fullfæra um að valda usla uppi á Skaga
➤ AkkilesarhællBlika á síðustu
leiktíð var að
klára ekki leiki
sína og nið-
urstaðan níu
jafntefli eða
flest í deildinni.
➤ Liðið tapaði aðeins einumleik heima við, fyrsta leik sín-
um, en vann hins vegar að-
eins þrjá.
➤ Blikar voru þó grimmari fyrirframan markið en ÍA í fyrra
og munaði tveimur mörkum.
FYRIR ÁRI
Of mörg jafntefli Keppikefli
Blika nú er að vinna þá leiki
sem enduðu í jafntefli í fyrra
þrátt fyrir yfirburði liðsins.
24stundir/Golli
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Það eru komin fiðrildi í magann
af spenningi og ég get vart beðið
eftir að flautað verði til leiks gegn
Blikunum,“ segir Guðjón Þórðar-
son, þjálfari ÍA. Fyrsti leikur þeirra
gulklæddu í Landsbankadeild karla
þetta sumarið er heima gegn
Breiðablik á laugardaginn kemur
en bæði lið eru talin öllu sterkari
en á síðustu leiktíð. Guðjón er þó
ekki í vafa um að þrjú stig verði í
potti Skagamanna eftir helgina.
Hópurinn?
„Við erum góðir og klárir í mót-
ið. Ungu strákarnir okkar eru eldri
og vitrari en fyrir ári síðan og eldri
leikmenn hafa fyllt skörð annarra
sem farið hafa í vetur þannig að ég
er bjartsýnn. Ég met það svo að í
heildina sé ég með sterkari hóp en
fyrir ári.“
Breiðablik?
„Þeir hafa klárlega bætt sig.
Hópurinn er sterkari og eins hafa
þeir tekið á því sem miður fór í
fyrra miðað við leikina á undir-
búningstímabilinu sem ég hef séð
og til alls líklegir.“
Deildin?
„Mitt mat er að hún verði
skemmtilegri með þessari fjölgun fé-
laga og fleiri leikjum. Margir tala um
meira svigrúm vegna þess ef illa geng-
ur en þrjú töp þýða engu að síður að
taka þarf verulega til í garðinum.
Spáin?
Valsmenn mjög sterkir, FH og
KR verða góð og Fram gæti komið
verulega á óvart. Hafa staðið sig vel
í þeim leikjum sem ég hef séð og
greinilega verið að vinna hörðum
höndum.
Gulir og glaðir Þriðja
sætið í fyrra með mjög
ungan hóp leikmanna
að uppistöðu. Þeir eru
nú eldri og vitrari.
Vinnum Blika
á heimavelli
Einföld dagskipun þjálfara ÍA fyrir fyrsta leikinn: Sigur
➤ Sama við-ureign á síð-
ustu leiktíð
endaði 2-1
Skagamönn-
um í vil.
➤ Blikar tókuhins vegar þá gulu í kennslu-
stund í Kópavoginum, 3-0.
➤ Sex stig skildu liðin að í lokinen bæði töpuðu þó aðeins
fjórum leikjum allt tímabilið.
FYRIR ÁRI
LANDSBANKADEILDIN 2008 ÍA - Breiðablik laugardagur 10. maí