24 stundir - 06.05.2008, Síða 48

24 stundir - 06.05.2008, Síða 48
24stundir ? Einu sinni var tilgangur lífsins aðstofna fjölskyldu og fjölga sér. Í dag erþað fjarstæðukenndur draumur. Fjöl-margir komast hálfa leið og eignastbörn, en nöturlega staðreyndin er sú aðmeirihluti ástarsambanda endar á haug-unum. Það skiptir ekki máli því í dagsnýst lífið ekki um gamaldags hefðir og gildi. Tilgangur lífsins er að koma sím- anum í hleðslu. Einu sinni varð síminn minn raf- magnslaus. Ég gleymdi öllum heimsins vandamálum og lífið snerist um hleðslu- tæki. Leitin hófst með þreifingum stuttu áður en síminn varð algjörlega raf- magnslaus og af einhverjum ástæðum virtist ég einmitt þá þurfa mest á honum að halda. Þegar píp dauðans glumdi og síminn drapst varð leitin örvæntingafull. Ég skjögraði um eins og sært dýr og gat ekki hætt að hugsa um allt fólkið sem hlaut að vera að reyna að ná í mig. Síðustu droparnir voru kreistir úr símanum þangað til lífgunartilraunir urðu árangurslausar. Gráti næst féll ég á hnén og biðlaði til almættisins. Það væri alveg eins hægt að rífa úr mér hjartað. En viti menn! Ég var bænheyrður og hleðslutæki kom í leitirnar. Ég gleymi aldrei hvar ég var þegar síminn dó. Greiðslubyrði húsnæðislána eykst stöðugt og matvælaverð hefur aldrei ver- ið hærra. Þá er bensín á góðri leið með að verða munaðarvara og leiguhúsnæði er aðeins á færi auðmanna. Þetta veldur mér ekki áhyggjum á meðan síminn er fullhlaðinn. Dagurinn sem síminn dó Atli Fannar Bjarkason veltir fyrir sér tilgangi lífsins YFIR STRIKIÐ Er tilgangur lífsins að fjölga sér? 24 LÍFIÐ Hópurinn í kringum Eurobandið er til í slaginn, en neyðist til þess að fara til Serbíu á Eurov- ison án Páls Óskars Páll Óskar fer ekki með til Serbíu »46 Útón heldur all sérstakt námskeið fyrir poppara í Norræna húsinu í kvöld. Skattafræðsla er þar á matseðlinum. Skattnámskeið fyrir poppara í kvöld »42 ● Fyrsta konan formaður „Ég tek við mjög góðu búi af fyrr- verandi formanni sambandsins,“ segir Guðbjörg Jónsdóttir ný- kjörinn formaður Búnaðarsambands Suðurlands. Guðbjörg er fyrsta konan sem tek- ur sæti í stjórn Búnaðarsambands Suðurlands í eitt hundrað ára sögu þess. „Það eru framundan erfiðir tímar í landbúnaði og bún- aðarsamböndin hafa mikilvægu hlutverki að gegna með sinni fag- þjónustu sem ég vona að hægt verði að styðja við og útvíkka“ ● Spennandi hlutverk „Þetta leggst auðvitað mjög vel í mig, enda er þetta spennandi hlut- verk. Þetta er félag sem þjóðin lítur upp til og þeirra verka sem það stendur fyrir,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, nýkjör- in formaður Krabbameinsfélags Ís- lands. „Ég ætla að byrja á því að kynnast öllu því hæfa starfsfólki sem þarna vinnur og starfseminni sjálfri og bíða með stórar yfirlýsingar um hvort nýjar áherslur fylgi nýjum formanni,“ segir Sigríður og hlær, alsæl með hið nýja hlutverk. ● Mínus í plús „Það er alltaf gaman að spila í Þýskalandi. Hér dansa allir og syngja með, kunna textana ut- an að og brosa breitt,“ segir Krummi forsöngvari hljómsveit- arinnar Mínus sem er á tónleika- ferðalagi um Vestur-Evrópu. „Þjóðverjar eru nú betri en Eng- lendingar að þessu leyti, sem standa bara á sínum stað allan tím- ann og sötra bjórinn sinn.“ Sveitin hefur fengið góðar viðtökur áhorf- enda og gagnrýnenda. Ritstjórn Sími: 510 3700 ritstjorn@24stundir.is Auglýsingar Sími: 510 3700 auglysingar@24stundir.is Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við ÍS LE N SK A SI A. IS I SP 4 15 40 0 3. 20 08 Það var mikið um dýrðir og fallegt fólk á vel heppnaðri og glæsilegri verðlaunahátíð FM957 á laugardagskvöldið. Hlustendaverðlaun FM957 um helgina »40

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.