24 stundir - 22.05.2008, Blaðsíða 33
Samkvæmt 1.mgr 21.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73
1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi
aðalskipulagsbreytingar:
1 Reykholt í Bláskógabyggð. Endurskoðun landnotkunar
í þéttbýli.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps
2000-2012 innan þéttbýlisins Reykholt. Í tillögunni felst eft-
irfarandi:
1. Iðnaðarsvæði norðan Biskupstungnabrautar stækkar um
1 ha til suðurs.
2. Landbúnaðarsvæði norðan Biskupstungnabrautar breyt-
ist í íbúðabyggð (6,8 ha), athafnasvæði (2,3 ha) og opið
svæði til sérstakra nota (3 ha)
3. Athafnalóð við Vegholt breytist í opið svæði til sérstakra
nota.
4. Um 20 ha landbúnaðarsvæði sunnan Biskupstungna-
brautar breytist í íbúðarsvæðis.
5. Svæði með blandaða landnotkun athafnasvæðis og land-
búnaðarsvæðis breytist í íbúðarsvæði.
6. Gert er ráð fyrir tveimur hringtorgum á Biskupstungna-
braut auk þess sem öðrum tengingum fækkar úr 10 í 2.
Samkvæmt 1.mgr. 25.gr. skipulags-og byggingarlaga nr.
73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftir-
farandi deiliskipulagstillögur:
2 Efra-Apavatn í Bláskógabyggð.
Skógarhlíð, deiliskipulag frístundabyggðar.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar á spildu úr landi
Efra-Apavatns í Laugardal. Svæðið afmarkast af Urriðalæk til
norðurs- og norðvesturs, Laugarvatnsvegi að austan og
landamerkjum við Efra-Apavatn 2 að sunnan. Gert er ráð fyr-
ir 26 lóðum á bilinu 0,51 - 1,2 ha þar sem heimilt verður að
reisa 50-200 fm frístundahús og 30 fm aukahús. Nýtingar-
hlutfall má þó ekki fara upp fyrir 0.03. Stór hluti svæðisins
er ætlað undir skógrækt undir merkjum Suðurlandsskóga.
Aðkoma að svæðinu er um tengingu við Laugarvatnsveg,
syðst á svæðinu.
3 Iða II í Bláskógabyggð. Eyrarvegur.
Tillaga að deiliskipulagi þriggja frístundahúsalóða í landi Iðu
II, milli Skálholtsvegar og Hvítár, rétt neðan við brú að Laug-
arási. Gert er ráð fyrir að á hverri lóð verði heimilt að reisa
allt að 150 fm frístundahús og allt að 30 fm aukahús. Nýt-
ingarhlutfall má þó ekki fara upp fyrir 0.03.
4 Kjarnholt I í Bláskógabyggð.
Frístundabyggð og íbúðarhús.
Tillaga að deiliskipulagi tveggja svæða úr landi Kjarnholts I.
Á svæði 1, sem er á ræktuðu landi við bæinn Kjarnholt, er
gert ráð fyrir 3.456 fm íbúðarhúsalóð þar sem heimilt verður
að reisa allt að 250 fm íbúðarhús ásamt bílskúr. Svæði 2 er
um 20 ha að stærð og liggur upp að Tungufljóti, ofan við
eldra deiliskipulagt frístundasvæði. Þar er gert ráð fyrir 30
frístundahúsalóðum á bilinu 5.000 - 6.560 fm og verður
heimilt að reisa allt að 150 fm hús ásamt allt að 30 fm
geymslu. Nýtingarhlufall lóða má þó að hámarki vera 0.03.
5 Reykholt í Bláskógabyggð. Endurskoðun
deiliskipulags fyrir austurhluta þéttbýlisins.
Tillaga að endurskoðun á deiliskipulagi yfir austurhluta
Reykholts. Um er að ræða heildarendurskoðun á deiliskipu-
lagi þessa svæðis en í dag eru nokkrar deiliskipulagsáætlanir
sem ná yfir svæðið. Þá hafa verið gerðar þó nokkuð margar
breytingar á svæðinu, sumar sem ekki hafa hlotið endanlegt
gildi. Gert er ráð fyrir að við gildistöku þessa skipulags, falli
eldri deiliskipulagsáætlanir úr gildi. Tillagan er í samræmi við
breytingu á aðalskipulagi svæðisins sem auglýst er sam-
hliða.
Deiliskipulagssvæðið er um 78 ha að stærð og eru 80 lóðir
þar innan,50 íbúðarhúsalóðir, 16 garðyrkjulóðir, 6 verslunar-
lóðir og 8 athafnalóðir.
6 Vatnsholt í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Endurskoðun deiliskipulags frístundabyggðar.
Tillaga að endurskoðun deiliskipulags Hlíðahverfis sem er
hluti af deiliskipulögðu frístundahúsasvæði í landi Vatns-
holts. Svæðið er um 45 ha að stærð og liggur rétt norðvest-
an við Mosfell, með aðkomu frá Vatnsholtsvegi. Í tillögunni
er 51 frístundahúsalóð á bilinu 4.400 til 10.000 fm, þar af er
8 þegar byggðar. Heimilt verður að reisa 50-200 fm frí-
stundahús á hverri lóð en nýtingarhlutfall má þó ekki vera
hærra en 0.03. Samþykkt deiliskipulag svæðisins frá 1997
fellur úr gildi við gildistöku nýs skipulags.
7 Villingavatn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Frí-
stundahúsalóð nr. 31.
Tillaga að deiliskipulagi frístundahúsalóðar í landi Villinga-
vatns í Grafningi. Um er að ræða eldri lóð (nr. 31) sem
stækka á úr 1.230 fm í 6.230 fm. Heimilt verður að reisa um
190 frístundahús og allt að 40 fm aukahús. Hámarksnýting-
arhlutfall má þó ekki vera hærra en 0.03.
8 Borgarás í Hrunamannahreppi. Breyting á
deiliskipulagi frístundabyggðar.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðarinnar
Kjóabyggð sem er í landi Borgaráss og Efra-Sels. Breytingin
nær eingöngu til lands Borgaráss og felst í að gert er ráð
fyrir tveim nýjum um 1 ha frístundahúsalóðum á svæði næst
Hvítárholtsvegi . Þá hafa eldri lóðir í landi Borgaráss einnig
verið mældar upp og lóðir 1-3 við Krummabraut verið sam-
einaðar. Einnig er gerð breyting á skilmálum á þann veg að
á eldri minni lóðum verður heimilt að reisa 110 fm frí-
stundahús en á tveimur nýju stærri lóðum er miðað við nýt-
ingarhlutfall upp á 0.03.
9 Lindarsel úr landi Efra-Langholts.
Deiliskipulag nýbýlis
Tillaga að deiliskipulagi nýbýlisins Lindarsels (landr.
200036) sem er upphaflega úr landi Efra-Langholts. Um er
að ræða um 44 ha spildu milli Götu og Efra-Langholts, með
aðgengi frá Langholtsvegi.
Í tillögunni er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir íbúðarhús lög-
býlisins og að auki 3 frístundahúsalóðum og einni auka
íbúðarhúsalóð.
10 Miðbær, Miðfellshverfi í Hrunamannahreppi.
Deiliskipulag íbúðarhúsalóðar
Tillaga að deiliskipulagi íbúðarhúsalóðar úr landi Miðbæjar í
Miðfellshverfi. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir 3.470 fm
íbúðarhúsalóð úr landi Miðbæjar. Aðkoma að lóðinni verður
frá vegi að húsi Dalbæjar III.
11 Silfurmýri úr landi Miðbæjar í Hrunamannahreppi.
Deiliskipulag nýbýlis.
Tillaga að deiliskipulagi hluta lögbýlisins Silfurmýri (landr.
204821). Lögbýlið liggur rétt sunnan við Miðfellshverfið og
nær tillagan til tveggja svæða innan þess, merkt A og B. Á
svæði A sem er nyrst á lögbýlinu er gert ráð fyrir byggingar-
reit fyrir reiðskemmu og starfsmannahús, en á svæði B sem
er sunnar er gert ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir
íbúðarhús.
12 Tungufell í Hrunamannahreppi.
Deiliskipulag íbúðarhúsalóðar.
Tillaga að deiliskipulagi íbúðarhúsalóðar á bæjartorfu Tungu-
fells í Hrunamannahreppi. Í tillögunni felst að skilgreind er
1.600 fm íbúðarhúsalóð rétt vestan við kirkjuna þar sem
heimilt verður að reisa allt að 300 fm íbúðarhús.
13 Stóra-Ármót í Flóahreppi. Ósabotnar.
Deiliskipulag iðnaðarsvæðis.
Tillaga að deiliskipulagi iðnaðarsvæðis við Ósabotna,
vinnslusvæði Selfossveitna á bökkum Hvítár. Þegar hafa ver-
ið boraðar tvær borholur á svæðinu en í tillögunni er gert
ráð fyrir byggingarreit fyrir dælustöð auk þess sem fyrirhug-
að vinnslusvæði er skilgreint.
Samkvæmt 1.mgr. 26.gr. skipulags-og byggingarlaga nr.
73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftir-
farandi deiliskipulagsbreytingar:
14 Helludalur í Bláskógabyggð. Skilmálabreyting.
Tillaga að breytingu á skilmálum frístundabyggðar í landi
Helludals. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að
reisa allt að 100 fm frístundahús á hverri lóð en með breyt-
ingunni er gert ráð fyrir að miðað verði við hámarksnýting-
arhlutfall upp á 0.03.
15 Myrkholt í Bláskógabyggð. Gistiheimil.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi í landi Myrkholts. Í
breytingunni felst að gert er ráð fyrir tæplega 1 ha lóð undir
allt að 500 fm gistiheimili fyrir ferðaþjónustu, norðaustan
við núverandi íbúðarhús og útihús jarðarinnar. Lóðin liggur
einnig upp að núverandi frístundabyggð að austanverðu.
16 Úthlíð í Bláskógabyggð. Nýjar frístundahúsalóðir
við Vörðuás.
Endurskoðuð tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístunda-
byggðar í landi Úthlíðar. Svæðið nær yfir lóðir 5-7 og 9 við
Vörðuás auk 18,1 ha svæði norðan þeirra. Tillagan felur í
sér að gert er ráð fyrir 13 stórum frístundahúsalóðum í
stað þeirra tveggja sem fyrir eru og verður heimilt að reisa
allt að 450 fm frístundahús á hverri þeirra auk 30 fm auka-
húss. Nýtingarhlutfall lóða má þó að hámarki vera 0.03.
Breytingartillagan kemur í stað áður auglýstrar breytingar á
sama svæði.
17 Ásgarður í Grímsnes- og Grafningshreppi,
land Búgarðs. Skilmálabreyting.
Tillaga að breytingu á skilmálum frístundabyggðar í landi
Ásgarðs, land Búgarðs. Svæðið nær yfir göturnar Freyj-
ustíg, Sólbakka, Ferjubakka, Mánabakka, Óðinsstíg, Herj-
ólfsstíg og Ásabraut 33-50. Í gildandi skilmálum er gert ráð
fyrir allt að 150 fm frístundahúsum og 25 fm aukahúsum.
Með breytingunni verður til viðbótar heimilt að hafa
geymslukjallara undir hluta eða öllu húsinu auk þess sem
stærð aukahúsa má vera allt að 40 fm. Nýtingarhlutfall lóðar
má þó ekki vera hærra en 0.03.
18 Borg í Grímsnesi. Hraunbraut 2-10
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Borgar. Breytingin nær
til athafnalóða við Hraunbraut 2 - 10 og felst í að heimilt
verður að reisa íbúðarhús á lóðunum í tengslum við þá
starfsemi sem þar fer fram auk mannvirkja tengdum léttum
og hreinlegum iðnaði og/eða gróðurhúsabyggð.
19 Minna-Mosfells í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Undirhlíðar, skilmálabreyting.
Tillaga að breytingu á skilmálum frístundabyggðar í landi
Minna-Mosfells, Undirhlíðar. Í gildandi skilmálum er heimilt
að reisa allt að 150 fm frístundahús á hverri lóð og 25 fm
aukahús en með breytingunni er gert ráð fyrir að aukahús
megi vera allt að 40 fm auk þess stærð húsa miðast við há-
marksnýtingarhlutfall upp á 0.03.
20 Reykjadalur í Hrunamannahreppi.
Breyting á deiliskipulagi Dalabyggðar.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðarinnar
Dalabyggð í landi Reykjadals. Í breytingunni felst að lóðirn-
ar Tjarnadalur 5 og Hlíðardalur 8, og Tjarnadalur 7 og Hlíð-
ardalur 10 eru sameinaðar. Þá er gert ráð fyrir að skilmálar
breytist á þann veg að stærðir húsa miði við nýtingarhlutfall
upp á 0.03 í stað þessa að miða við hámark upp á 90 fm.
Einnig verður heimilt að vera með 30 fm aukahús í stað 10
fm..
21 Gegnishólapartur í Flóahreppi.
Vélageymsla og skemma.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Gegnishólaparts. Í
breytingunni felst að skipulagssvæðið stækkar til norðurs
og þar gert ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir véla-
geymslu og skemmu/hesthúsi. Þá er einnig gerð lítilsháttar
breyting á legu aðkomuvegar um svæðið.
Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu viðkom-
andi sveitarfélags og hjá embætti skipulagsfulltrúa upp-
sveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofu-
tíma frá 26. maí til 23. júní 2008. Að auki er hægt að
nálgast tillögurnar á vefslóðinni http://www.sveit-
ir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar/ Athugasemdum við
skipulagstillöguna skulu berast til skipulagsfulltrúa upp-
sveita Árnessýslu í síðasta lagi 7. júlí 2008 og skulu þær
vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við
tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur
henni.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunnamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL