24 stundir - 22.05.2008, Blaðsíða 48
24stundir Hrein nautn með réttri hlíf... Germany100-120 cm, þrjár stærðirkrómlitað eða hvítt, án botnsFrá kr. 25.900
SIMPLY CLEVER
FJÖLSKYLDUBÍLLINN
SEM EYÐIR SVO
MIKLU MIKLU MINNA
Skoda Octavia 1,9 TDI® - 4,9 lítrar á hundraðið
Skoda Octavia er vandaður og ríkulega útbúinn verðlaunabíll í fullri stærð með pláss
fyrir alla fjölskylduna og rúmgott farangursrými. Nýja TDI® dísilvélin skilar miklu
og jöfnu afli og býr yfir frábærum aksturseiginleikum (einnig fáanlegur með bensínvél).
Skoðaðu Skoda Octavia - bílinn sem eyðir svo miklu miklu minna.
Allir kaupendur Skoda Octavia fá frítt fyrir fjölskyldu sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í eitt ár.
Verð frá kr. 2.490.00
Mánaðarleg afborgun: 29.900 kr.*
* Verð á Skoda Octavia 1,6
Miðað er við gengistryggðan bílasamning, útborgun 30% eða 747.000 kr. í 84 mánuði.
Árleg hlutfallstala kostnaðar er 11,65%.
? Farþegar Iceland Express frá Londontil Keflavíkur máttu gera sér að góðutæpra þriggja tíma seinkun þar sem flug-vélin þurfti að koma við í París að sækjafarþega. Hagsýnar húsmæður stórfyr-irtækjanna fara af stað þegar kreppir aðog byrja að reikna hvernig best sé að lifaaf. Venjulega leiðin er sú að reka tvær
skúringakonur til að sýna lit. Hrófla ekki
við ofurlaunum en skerða þjónustu við
almenning og rukka sama verð eða
meira. Jú, það er hægt að spara með því
að láta áætlunarvélar Iceland Express
skutlast þvers og kruss um Evrópu og
sækja farþega sem ella yrðu strandaglóp-
ar á flugvellinum. Eins og skilja mátti á
orðum talsmannsins: Við ákváðum að
sækja þá svona í staðinn fyrir að fella
flugið niður. Látið er í það skína að
framhald verði á þessum óvissuferðum
þar sem verðið sé svo lágt. Ætli íslenskir
flugfarþegar geti tekið undir það að
verðið sé svo lágt á Íslandi að slík fram-
koma sé boðleg?
Hvað mega verslanakeðjur segja? Verð
á matvælum hér er jú ekki nema sextíu
og fjórum prósentum dýrara en í Evr-
ópu. Væri til dæmis hægt að bjóða upp á
útrunnar matvörur? Hvað með leigubíl-
stjóra? Ef maður pantar bíl upp í Graf-
arholt er þá nokkuð athugavert við það
að bifeiðarstjórinn renni við í Mosfells-
sveit eða uppi á Kjalarnesi? Bensín er jú
orðið svo dýrt. Það er kannski ekki svo
skrítið að þeir sem eiga að setja lög og
sinna eftirliti með þessari starfsemi kjósi
frekar einkabílstjóra og einkaþotur.
Út í óvissuna
YFIR STRIKIÐ
Af hverju ekki
útrunnar
matvörur?
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
skilur að stjórn-
málamenn velji
einkaþotur.
24 LÍFIÐ
Myndin Never Back Down snýst
meira um fáklætt ungt fólk en
góða bardaga, segir
gagnrýnandi blaðsins.
Fáklætt og olíuborið
fólk
»40
Sprengjuhöllin lenti í ýmsum æv-
intýrum í New York þar sem sveit-
in lauk tveggja vikna
tónleikaferðalagi sínu.
Læstu sig inni á
hommahóteli
»46
Eurobandið er til í slaginn í Belgrad.
Forkeppni Eurovision er í kvöld og
nú á að tryggja Íslandi
sæti í úrslitum.
Bölvuninni aflétt á
þremur mínútum?
»46
● Bíður spennt
„Ég treysti þeim
alveg fullkomlega
til að takast á við
þetta og þau eiga
örugglega eftir að
standa sig rosalega
vel,“ segir Telma
Ágústsdóttir en
hún, ásamt Einari Ágústi Víð-
issyni, keppti í Eurovision fyrir Ís-
lands hönd árið 2000. Hún segir að
keppnin veki upp ýmsar minn-
ingar. „Þetta rifjar upp allar frá-
bæru minningar, þetta var alveg
ógeðslega gaman. Ég vildi bara að
ég hefði verið aðeins eldri, þá hefði
ég getað tekist betur á við þetta.
Skemmt mér betur.“
● Brenni mig
ekki á þessu
tvisvar „Það má
segja að brennt
barn forðist eld-
inn,“ segir Pétur
Þór Gunnarsson,
eigandi Gallerís
Borgar, en í nýj-
asta tölublaði Skírnis er því haldið
fram að fölsuð málverk séu enn í
umferð. Pétur var sem kunnugt er
sýknaður af ákæru í stóra mál-
verkafölsunarmálinu.
„Ég er mjög smeykur við að taka
við málverkum sem þó eiga að vera
alveg tipp topp nema þeim fylgi
eigendasaga,“ segir hann en fyrir
mánuði hélt hann fyrsta uppboðið
síðan málið kom upp.
● Lífið eftir
sveitarfélögin
„Ég hef ekki hug-
mynd um hvað ég
fer að gera, hef
haft um annað að
hugsa í 40 ár,“
segir Þórður
Skúlason. Hann
fer úr starfi framkvæmdastjóra
Sambands íslenskra sveitarfélaga í
ár. „Ég hef unnið að sveitarstjórn-
armálum í 40 ár, fyrst í hrepps-
nefnd á Hvammstanga. Sveit-
arstjórnarmálin hafa skilað mér
fjölda kunningja og vina um allt
land, segir Þórður. Ætli hann legg-
ist ekki í heimsóknir?
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is