24 stundir


24 stundir - 06.06.2008, Qupperneq 27

24 stundir - 06.06.2008, Qupperneq 27
24stundir FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 27 „Spænska liðið er feikilega sterkt og skemmtilegt og tvímælalaust eitt af þeim sigurstranglegustu. En þeir hafa verið það áður án þess að ná að fara langt og það er spurning hvort sagan vinni gegn þeim. Það er von- andi að liðs- heildin sé til staðar hjá þeim núna. Luis Aragones ákvað að velja ekki Raul og sýndi með því að hann gerir það sem hann telur henta liðinu best, en ekki einhverjum stjörnum.“ Skagamaðurinn Þórður Guðjónsson lék með Las Palmas á Spáni. Þórður Guðjónsson Spánn Grikkland tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM 2004. Liðið hafði ekki komist í úr- slitakeppni EM í 24 ár og fáir áttu von á að breyting yrði þar á. Undir stjórn Þjóðverjans Otto Rehagel reif liðið sig hins vegar upp, vann þá sex leiki sem eftir voru og tryggði sér sæti í Portúgal. Minnug háðuglegrar útreiðar sem landsliðið fékk 10 árum áður, á HM í Bandaríkjunum 1994, þorði gríska þjóðin hins vegar ekki að gera sér of miklar vonir. Grikkir voru í 35. sæti á styrkleikalista FIFA og lentu í riðli með Portúgölum, Spánverjum og Rússum. Fæstir töldu þá líklega til stórræða. Stórþjóðir engin mótstaða Með sigri á Portúgal í opnunar- leiknum og jafntefli gegn Spáni tryggði liðið sér farmiða í 8 liða úr- slit, með jafnmörg stig en betri markatölu en hinir síðarnefndu. Eins og það væri ekki nægilegt afrek gerðu Grikkir sér lítið fyrir og slógu út ríkjandi Evrópumeistara Frakka og því næst firnasterkt lið Tékka, sem hafði unnið alla leiki sína á mótinu. Í úrslitum mætti Grikkland gestgjöfunum að nýju og andstætt því sem allir töldu fyr- irfram að væri ógerlegt fóru þeir með sigur af hólmi … aftur. Grikk- land var orðið Evrópumeistari – knattspyrnuheimurinn stóð á gati. Lið með eitt stórt hjarta Afrek gríska landsliðsins má öðru fremur þakka stórkostlegri liðsheild og kænsku þjálfarans Re- hagel. Liðið innihélt engar stór- stjörnur en með því að leika ein- hvern skipulagðasta fótbolta sem sést hefur tókst því að leggja þrjár af stærstu knattspyrnuþjóðum heims að velli í útsláttarkeppninni, án þess að fá á sig mark. Sannaðist endanlega hið fornkveðna: Allt get- ur gerst í fótbolta! Sigur Grikkja á EM 2004 kom fótboltaheiminum í opna skjöldu Óvæntustu úrslit knattspyrnusögunnar? Meistarar Dimitrios Papadopoulos og Theodoros Zagorakis með bikarinn. D - RIÐILL „Svíarnir gera miklar væntingar til landsliðsins og það er svaka- lega mikið fjallað um það hérna úti. Svíar eru í nokkuð sterkum riðli, með bæði Spánverjum og Rússum, og hafa verið í meiðsla- vandræðum. Ég hef því ekkert brjálaða trú á þeim. En þeir eru auðvitað með baneitrað sóknarpar, Zlatan Ibrahimovic og Henrik Larsson, og það er mjög mikilvægt að þeir nái sér á strik.“ Dóra Stefánsdóttir er einn af sterkustu leik- mönnum sænska liðsins LdB FC Malmö. Dóra Stefánsdóttir Svíþjóð „Ég hef haldið með Grikklandi á stórmótum frá því ég spilaði þar. Mér líst mjög vel á liðið núna og tel að Karagounis og Basinas verði einna mik- ilvægastir. Otto Rehagel er einn besti þjálfari heims og er van- ur að ná árangri. Grikkir gera miklar kröfur til landsliðsins, en ég held að þeir fari ekkert fram úr sér í vænt- ingum þótt þeir hafi unnið síðast. Það yrði góður árangur að kom- ast upp úr riðlinum.“ Helgi Sigurðsson lék með Panathinaikos í þrjú ár og þekkir vel til grískrar knattspyrnu. Helgi Sigurðsson Grikkland „Rússar eru Króötum mjög þakk- látir fyrir að vinna England í undanriðlinum enda væru þeir að öðrum kosti ekki inni á mótinu. Þeir binda gríðarlegar væntingar við Guus Hiddink sem gerði frá- bæra hluti með Suður-Kóreu á HM 2002. Rússar búast við áfram- haldandi sig- urhátíð í landinu eftir að Zenit vann Evrópukeppni félagsliða, ís- hokkíliðið varð heimsmeistari og Eurovision vannst.“ Haukur Hauksson er fréttaritari RÚV í Moskvu og hefur búið þar í 18 ár. Haukur Hauksson Rússland 4 RIÐLAR, 16 LIÐ, HRIKALEG SPENNA, VÖNDUÐ UMFJÖLLUN FYRIR OG EFTIR LEIK. EM VEISLAN HEFST Á LAUGARDAGINN! JÚNÍ ER TÍMINN!

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.